22.03.1971
Neðri deild: 66. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1326 í B-deild Alþingistíðinda. (1431)
179. mál, Áburðarverksmiðja ríkisins
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Ég geri mér ákaflega vel ljóst, að verkalýðsfélögin hafa ávallt verið og eru gætin í þeim efnum, hvað skuli festa með l. og hverju skuli halda í samningum. Og til þess að forðast slíka árekstra þá stendur í till., að umræddar samstarfsnefndir skuli eftir föngum leitast við að hindra eða leysa ágreiningsmál án þess að fara inn á svið kjarasamninga. Þar er dregin ljós lína á milli, svo að um slíka árekstra geti varla verið að ræða.
Um afstöðu verkalýðshreyfingarinnar í nágrannalöndunum er sjálfsagt sitthvað að segja en í þessari skýrslu, sem fimmmenningarnir gáfu og oft hefur verið vitnað í — mjög fróðleg og að mér virðist vel unnin skýrsla — stendur t.d. um nágranna okkar Norðmenn, þar sem talið er upp, hvað stjórnmálaflokkarnir í því landi vilji í þessum málum, að verkamannaflokkurinn, sem á 74 af 150 fulltrúum í Stórþinginu, heldur sér við till. um lýðræðisleg fyrirtækjaráð og óskar eftir, að fyrirtæki ríkis og sveitarfélaga séu notuð sem fordæmi í þessari þróun. Þarna er um mjög sterkan aðila að ræða og vitað er, að sambandið á milli verkalýðshreyfingarinnar og verkamannaflokksins í Noregi er ákaflega náið.
Ég vil taka undir það, sem hæstv. landbrh. sagði og síðasti ræðumaður staðfesti, að það muni hafa verið mjög gott samstarf og góður andi í Áburðarverksmiðjunni. Ég hef ekki annað heyrt. En ég vil líka benda á, að einmitt þetta eru góðar aðstæður til þess að taka upp nýbreytni sem þá, sem hér er um að ræða. Það er erfiðara að taka þetta upp, þegar um deilur er að ræða. E.t.v. segja menn, að það sé erfitt að sjá þörf fyrir slíka samstarfsnefnd í Áburðarverksmiðjunni undanfarin ár. En hv. 4. landsk. þm. og ég og fleiri, sem þekkja til kringum Sementsverksmiðjuna, eiga ekki erfitt með að sjá, að það hefði getað hreinsað loftið þar, ef slík samstarfsnefnd hefði verið til undanfarin ár. Við vitum aldrei, hvenær einhver ógæfa dynur yfir, hvenær einhver deilumál rísa upp, sem geta gert það að verkum, að það muni reynast þýðingarmikið að hafa slíkt samstarfstæki í höndum.
Hæstv. ráðh. sagði, að Alþ. væri hér að sletta sér fram í og það væri ekkert því til fyrirstöðu, að slík n. yrði sett upp samkv. bréfi, sem stjórn Áburðarverksmiðjunnar hefði gefið út. En hvers vegna hafa þá slíkar n, ekki verið settar fyrr í þessari verksmiðju, en hún hefur starfað í 15–20 ár? Svo að tilefnið til þess að sletta sér fram í er vissulega fyrir hendi. Ég skal ekkert efast um velvilja stjórnenda þar, og ég skal ekki einu sinni draga í efa velvilja hæstv. landbrh. í þessum efnum. Hann skýtur sér mjög á bak við bréfið, sem skýrir frá samþykkt, sem stjórn Sementsverksmiðjunnar hefur gert. En ég verð að minna hann á, að sjálfstæðismenn, flokksbræður hans, höfðu uppi ágreining um þetta í sementsnefndinni, löngu áður en þeir vissu um þetta bréf, og ég held, að þeir viti ekki um það enn þann dag í dag, og það hefur ekkert bréf verið gefið út í þeirri verksmiðju. Og í öðru lagi upphófst ágreiningurinn um þessa till. í landbn. Nd. Alþ. fyrir 2–3 vikum, en það vissi enginn um þetta bréf fyrr en í dag, svo að bréfið er að vísu plagg um einlægni og góðvilja allra hlutaðeigandi, en ekki fullnægjandi skýring á þeim ágreiningi, sem hefur orðið um málið.