02.04.1971
Efri deild: 89. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1333 í B-deild Alþingistíðinda. (1451)
179. mál, Áburðarverksmiðja ríkisins
Frsm. (Steinþór Gestsson):
Herra forseti. Hæstv. landbrh. hefur vakið athygli mína á því, að ef þetta frv. verður samþ., eins og það liggur fyrir, þá mundi af því leiða það, að landsútsvar af áburðarsölu mundi koma til framkvæmda nú, en var ekki áður, á meðan áburðarsalan var sérstakt fyrirtæki.
Hann hefur því farið þess á leit við mig og haft um það samráð við hæstv. félmrh., að ég flytti brtt., sem yrði til þess að halda óbreyttu því ástandi, sem verið hefur um skattlagningu þessara fyrirtækja. Tími hefur verið það naumur, að ég hef ekki getað náð saman fundi landbn., svo að ég hef leyft mér að flytja þessa brtt. einsamall og vænti þess, að menn sjái, að hér er um sanngirnismál að ræða.
Sú breyt., sem lagt er til, að gerð verði á þessu, er sú, að aftan við 12. gr. verði bætt þessum málslið: „Þó skal ekki reikna landsútsvar af verzlun með innfluttan áburð.“ Þessi breyting mundi viðhalda því ástandi, sem verið hefur, en þessi skattur eða landsútsvarið er 11/2% af heildarsölu þeirra fyrirtækja, sem Áburðarverksmiðjan fellur undir. Hér er um nokkurt fjármagn að ræða, en hins vegar er þess að vænta, að ekki þurfi að líða ýkja mörg ár þangað til við hættum að flytja inn áburð, og þessi skattur verði minni og minni og hverfi að lokum, en af innlendu framleiðslunni og framleiðslu Áburðarverksmiðjunnar verðum við að sjálfsögðu að greiða landsútsvar, eins og gert hefur verið.
Þessi till., sem ég hef hér borið fram, er bæði skrifleg og of seint fram komin, og ég vil fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann leiti afbrigða fyrir till. og hún megi koma fyrir til umr. og ályktunar d., og ég vil treysta því, að þdm. sjái nauðsyn þess að samþykkja hana.