05.04.1971
Neðri deild: 87. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1334 í B-deild Alþingistíðinda. (1455)

179. mál, Áburðarverksmiðja ríkisins

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Smávegis breyting var gerð á frv. um Áburðarverksmiðjuna í Ed., flutt af Steinþóri Gestssyni, þ.e. að til viðbótar við 12. gr. komi: „Þó skal ekki reikna landsútsvar af verzlun með innfluttan áburð.“ Þessi brtt. er fram komin vegna þess, að landsútsvar hefur aldrei verið lagt á áburðareinkasölu ríkisins eða innfluttan áburð. Þegar menn gerðu sér grein fyrir því, að það gæti verið, að landsútsvar yrði lagt á innflutta áburðinn, eftir að l. um Áburðarsölu ríkisins og Áburðarverksmiðju ríkisins voru sameinuð, þá þótti sjálfsagt að flytja þessa brtt. til þess að fá framkvæmdina eftirleiðis, eins og hún hefur verið hingað til. Hér er ekki um neina breytingu að ræða frá þeirri framkvæmd, sem verið hefur, heldur er með brtt. lagt til, að það verði óbreytt ástand í álagningu landsútsvars á Áburðarverksmiðjuna og ekki verði lagt landsútsvar á innfluttan áburð eftirleiðis fremur en hingað til.