19.03.1971
Efri deild: 70. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1334 í B-deild Alþingistíðinda. (1458)
282. mál, fávitastofnanir
Sjútvrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Hér er um að ræða frv., sem er nánast liður í frv. því, sem er til umr. síðar á dagskránni varðandi almannatryggingar og þarf ekki sérstakrar skýringar við. Breytingarnar, sem felast í gildistöku þessa frv., ef að lögum verður, eru nátengdar því frv. og nauðsynlegt, að þessi frv. verði samferða gegnum þingið, þar sem þau eru samantvinnuð, en meginuppistaða þessa frv. er sú, að lagt er til, að sjúkratryggingadeild greiði einnig styrk vegna fávita, sem dveljast á viðurkenndum dagvistarheimilum.
Ég legg til, herra forseti, að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.