19.11.1970
Neðri deild: 21. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 296 í B-deild Alþingistíðinda. (146)
75. mál, sauðfjárbaðanir
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Eins og kom fram hjá hv. 11. landsk. þm., sem var að ljúka hér máli sínu, þá kom landbn. á fund til þess að fjalla um þær till., sem ég og tveir aðrir hv. þdm. höfðum hér fram borið við þetta frv. Ástæðan, eins og ég gat um, þegar málið var til umr. hér síðast við 2. umr., var, að þetta frv. var lagt fram hér á hv. þingi 28. okt., en samkvæmt gildandi lögum þá er böðunartíminn frá 15. okt. Sem sé 13 dögum eftir, að kom fram á böðunartímann, var þetta fyrst lagt hér fram í deildinni. Í sumum héruðum er það þannig, að ef góð tíð er, strax þegar slátrun er lokið, þá nota menn þann tíma til að baða einmitt til þess að spara sér fóður.
Ég get nú ekki fallizt á þau rök, sem hv. 11. landsk. þm. var að tala um áðan í sambandi við, að það væri svo mjög nauðsynlegt að baða alls staðar á sama tíma, vegna þess að hvorki færi- né fellilús hefur sézt — jafnvel ekki í áratug í heilum héruðum — eins og segir hér í þessu frv., og þannig er það, þar sem ég þekki bezt til. Þrátt fyrir það, að framkvæmdin við böðunina hefur verið þannig, að það hefur verið byrjað seinni partinn í október að baða og sumir hafa ekki baðað fyrr en kemur langt fram yfir miðjan vetur, þá er samt þessi góði árangur. En mér sýnist bara, að þeim, sem hafa lagt í þann kostnað nú að baða, sé í raun og veru gert órétt með því að samþykkja þetta frv. óbreytt. Og af þessu tilefni vaknar bara sú spurning, hvort jafnvel þeir bændur, sem eru búnir að baða og telja sig hafa orðið að gera það samkvæmt lögum, geti ekki farið fram á skaðabætur fyrir slíkt. Það getur alveg verið spurning. En þetta er ekkert stórmál, og ég ætla ekki að fara að ræða það hér frekar. Ég veit um það, að í ýmsum sveitum, a. m. k. þar sem ég þekki bezt til, er meiri hluti af bændunum búinn að baða, eins og hefur verið gert á undanförnum árum, og ég harma það, ef þetta frv. verður samþ. á þennan hátt, þó að ég hins vegar vilji samþykkja það. Ég vil ekki setja fót fyrir þetta frv., vegna þess að ég veit, að ýmsir, sem ekki eru búnir að baða, eru sannarlega í þörf fyrir það að losna við það, en það hefði verið hægt að koma til móts við þá bændur, sem eru búnir að því, ef það hefði verið nægur skilningur á þessu máli hjá hv. landbn.