01.04.1971
Neðri deild: 80. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1335 í B-deild Alþingistíðinda. (1467)

282. mál, fávitastofnanir

Sjútvrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Eins og frv. þetta ber með sér eða réttara sagt aths. þess, þá er þetta fylgifrv. við frv. um almannatryggingar bein afleiðing af gildistöku þess frv., ef að lögum verður hér á Alþ. Ég tel, að ekki þurfi langa framsöguræðu fyrir málinu. Ástæðan til flutnings málsins er skýrð í 4–5 línum í aths. með frv., og vísa ég til þeirra. Ég legg til, að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.