26.03.1971
Neðri deild: 71. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1344 í B-deild Alþingistíðinda. (1485)

19. mál, veiting ríkisborgararéttar

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég kvaddi mér hljóðs út af brtt. á þskj. 628, og ástæðan var sú, að það er beygur í mér að fylgja því, að nokkru verði breytt nú í skyndi um nafnvenjur frá því, sem verið hefur undanfarin ár. Ég ætla þess vegna að greiða atkv. á móti þessari till., þó að ég sé í raun og veru ekki alls kostar ánægður með þær reglur, sem gilda, a.m.k. tel ég, að það þurfi að íhuga það í góðu tómi, hvort halda eigi alveg óbreyttri þeirri venju, sem orðin er um nafnbreytingar erlendra manna, sem fá íslenzkan ríkisborgararétt. Tel ég, að þetta sé kannske nokkuð vafasamt og þurfi að athuga það nánar. Samt ætla ég að greiða atkv. á móti því að gera á þessu breytingu á þá lund, sem stungið er upp á í þessari till. Ég mun gera ofurlitla grein fyrir þessu.

Það læðist að mér, að það sé í aðsigi herhlaup í þá átt að breyta íslenzkum nafnvenjum þannig að leyfa á ný að taka upp ættarnöfn. Ég hef fyrir mér í þessu, held ég, nokkuð örugga vitneskju um það, að n., sem hefur starfað að þessum málum undanfarið, leggi þetta til. Ég held, að hæstv. ráðh. hafi ekki sagt neitt um þetta í sinni ræðu, en ég tel, að ég hafi sæmilegar heimildir fyrir því, að þessi uppástunga sé í nál. eða till. n. af einhverjum alveg óskiljanlegum ástæðum, sem sjálfsagt eru þar tilgreindar. En þegar svona stendur á, að í aðsigi er herferð í þessa átt, sem ég er algerlega mótfallinn, að farið verði í, þá vil ég ekki eiga neinn þátt í því að losa um þessi mál á þann hátt, sem hér er ráðgert, heldur vil ég, að þetta bíði og málið verði skoðað í heild.

Það er mín skoðun, að alveg sérstakur þokki fylgi þeirri venju, sem við höfum haft um nafngiftir, og ég tel, að það væri mjög illa farið, að við yfirgæfum þá reglu og færum að taka hér upp ættarnöfn að erlendum sið. Ég álít, að einmitt þessi háttur á nafngiftum, sem við höfum haft, sé þýðingarmikið atriði fyrir okkur sem þjóð og geti með öðru góðu hjálpað okkur til þess að halda nösunum upp úr í þeim mikla þjóðarsjó, sem við fljótum í, og það sé því alls ekki skynsamlegt að breyta til. Ég skal ekki ræða þetta að öðru leyti nú, en aðeins segja þessi fáu orð, vegna þess að till. liggur ekki hér fyrir, en ég vil samt strax vara hv. þm. við þessu. Það er stundum með einstök mál af þessu tagi, að það er í gangi alls konar málflutningur, sem ekki ber mikið á, og þá er kannske hætt við því, að menn athugi þessi efni ekki nægilega vel eða til hlítar, áður en þeir taka að ánetjast meira eða minna, og því hygg ég, að það væri mjög nauðsynlegt, að menn hugsuðu sig vel um, áður en þeir léðu máls á því að breyta til í þessu efni, og ítarlegar og skynsamlegar umr. þurfi að fara fram um þetta mál, áður en menn færu að taka í mál að breyta um nafnvenjur.

Þá er það út af brtt. sjálfri, sem hér liggur fyrir. Mér finnst brtt. eiginlega svona hálft um hálft bera þess vott, að hún sé tekin út úr einhverju plaggi, sem gerir ráð fyrir nýrri nafnvenju. Hún er eitthvað svolítið skrýtin. Hún passar eiginlega ekki inn í þá löggjöf, sem við nú höfum um mannanöfn. Þegar ég fór að skoða hana, þá varð ég náttúrlega tortryggnari, þegar ég frétti um þessar bollaleggingar um breytingar, en ég hafði áður verið, og ég fór að bera þetta saman. Ég tek t.d. eftir því, að í þessari brtt., sem hér liggur fyrir, er tekið svo til orða, að börn þeirra, sem veittur er ríkisborgararéttur með l. þessum o.s.frv., fái ekki ríkisborgararétt, nema þau taki upp íslenzk eiginnöfn og kenninöfn samkv. l. um mannnöfn. En í gildandi l. um mannanöfn er þetta ekki sett svona upp, heldur á hver maður að heita einu íslenzku nafni eða tveimur og kenna sig til föður, móður eða kjörföður. En þessu orðalagi er ekki haldið í brtt., og það mætti segja mér, að þetta væri tekið út úr einhverju plaggi, sem gerir ráð fyrir ættarnöfnum. Það þarf að skoða þetta betur og samræma því orðalagi, sem er á gildandi l. um mannanöfn.

Ég vek líka athygli á því, að í síðustu l., sem samþ. voru um ríkisborgararétt, er þetta blátt áfram orðað þannig, að þeir, sem heita erlendum nöfnum, skulu ekki öðlast ríkisborgararétt með l. þessum, fyrr en þeir hafa fengið íslenzk nöfn samkv. l. um mannanöfn. En þessu orðalagi er ekki haldið í þessari brtt. heldur er hér farið að tala um eitthvað tvennt sundurgreint í þessu sambandi, þ.e. um íslenzkt eiginnafn og kenninafn. Þetta bendir allt í þá átt, að þetta sé ættað einhvers staðar annars staðar frá en úr gildandi l. um mannanöfn og það sé tæplega höfð í huga sú nafngiftavenja, sem við notum nú, heldur eitthvað nýtt.

Þá vil ég enn fremur benda á það, að í síðari mgr. brtt. stendur: „Barni, sem fæðist eftir að foreldri þess hefur fengið íslenzkt ríkisfang með l., skal gefið íslenzkt eiginnafn, og jafnframt skal það fá íslenzkt kenninafn.“ Þetta eru synir eða dætur þeirra manna, sem fá ríkisfang og fá að halda þeim nöfnum, sem greind eru á þskj. 576. Það eru þau börn, sem rætt er um í þessari mgr. Og þá er mér spurn: Þarf ekki faðirinn, ef íslenzku nafnavenjunni á að halda, að hafa nafn, sem hægt er að kenna sig við? Verður ekki að hugsa þetta skýrt? Verður ekki faðirinn að hafa nafn, sem hægt er að kenna sig við? Og það er ekki hægt að kenna sig við sum af þeim nöfnum, sem hér eru á þessu þskj. Ég vil ekki kasta hér nöfnum manna fram og aftur um þingsalinn, en það hlýtur að liggja hverjum manni í augum uppi, að það er ekki hægt að kenna sig, svo að vel fari eðaviðunandi sé, t.d. við nafn nr. 13, nr. 31, 35 og 40, og þannig mætti halda áfram að telja.

Vilji menn breyta um frá því, sem verið hefur, þá þarf að skoða þetta og setja einhver skýr og skynsamleg ákvæði um það, hvernig ákvarða á föðurnafnið. Og þá kemur ýmislegt til greina. T.d. gæti þar komið til greina, að þó að mönnum væri ekki skylt að breyta alveg um nafn, þá væri mönnum skylt, þegar þeir öðlast ríkisborgararétt með lögum, að taka nafn til viðbótar, sem börnin gætu kennt sig við, þannig að íslenzkri nafnvenju yrði haldið. Þetta er ein leiðin, sem hugsanleg er. Önnur leið er aðeins hugsanleg, en þó sýnist mér hún alls ekki samrýmast íslenzkri nafnvenju. Hún er sú að skíra barnið t.d. eiginnafni og föðurnafni, t.d. Sigríður Jónsdóttir. Og þetta Jónsdóttir, sem þar væri komið inn, hefði sama gildi og faðirinn hefði heitið Jón. En ég vona, að menn sjái það af því, sem ég hef verið að taka fram, að við þurfum að skoða þetta vel — einnig þeir, sem ekki telja rétt, að menn breyti um nafn, þegar þeir fá ríkisborgararétt. Það er ekki hægt að samþykkja þessa till. Það verður þá að semja alveg nýja till., sem er óumdeilanlega miðuð við gildandi lög um mannanöfn og alla tilhögun.

Ég held, að ástæðan til þess, hvað þetta er skrýtið, sé sú, að þetta sé tekið út úr frv., sem gerir ráð fyrir ættarnöfnum. Ég hef ekki séð það, en ég sé, að það hlýtur að vera þannig, því að það er farið að gera þarna fullum fetum ráð fyrir tveimur nöfnum, eiginnafni og kenninafni. Ég vil ekki eiga þátt í því að bora gat á mannanafnalögin á þennan hátt alls ekki — og tel, að langeinfaldast og eðlilegast á allan hátt sé að skoða þetta í einni heild og menn gefi sér tóm til þess og bíði þá eftir að sjá það frv., sem samið hefur verið. Ég vona, að við eigum það ekki eftir að fara að samþykkja að breyta um nafnvenju.

Ég hef þá ósk fram að færa í lokin, að þetta verði tekið til skoðunar í n. Þetta er ekkert hégómamál, sem hér er verið að tala um, því að þetta snertir mannanafnalöggjöfina. Ekki má koma á þetta ringulreið. Allshn. þarf að fá tóm til þess að skoða þessa brtt., og helzt vildi ég fara fram á, að hún yrði tekin til baka, þannig að við sættumst á það að bíða með þetta mál, þangað til mannanafnamálið kemur í heild og við höfum séð álitið, sem undirbúið hefur verið á vegum hæstv. ráðh. Þessu liggur ekkert á.