03.02.1971
Neðri deild: 42. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1379 í B-deild Alþingistíðinda. (1514)

186. mál, Kennaraháskóli Íslands

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Þar sem nú líður nær lokum þingfundartíma, mun eflaust ekki þykja óeðlilegt, að ég svari nokkrum fsp., sem til mín hefur verið beint í þessum umr. En fyrst vildi ég láta í ljós ánægju yfir því, að mér virðist þeir hv. þm. stjórnarandstöðunnar, sem talað hafa, hafa fallizt á þá meginstefnu, sem í þessu frv. felst, að því er varðar framtíðarskipun kennaramenntunarinnar. Þó fer það ekki fram hjá mér, og ég vek á því athygli, að undirtektir hv. þm. stjórnarandstöðunnar undir þetta frv. hafa — og það harma ég — ekki verið eins algerlega jákvæðar og þær voru fyrir nokkrum dögum undir frv. um skólakerfi og grunnskóla. Ég vona, að þetta bendi ekki til þess, að von sé á þess konar deilum eða átökum um þetta frv., sem hindri framgang þess á þessu þingi. En þetta hefur ekki farið fram hjá mér, og ég vek athygli á því í því skyni einu að undirstrika ósk mína um það og ósk ríkisstj. um það, að frv. fái sem skjótasta meðferð í hv. menntmn. og það verði afgreitt á þessu þingi, því að ég tel öldungis nauðsynlegt, að sú breyting, sem fyrirhuguð er og mér skilst, að þm. séu í megindráttum sammála um og kennarasamtökin og kennaraskólinn leggja mikla áherzlu á, að nái sem fyrst fram að ganga, geti komið til framkvæmda á hausti komanda. Að öðrum kosti mun verða um að ræða öngþveiti, framlengingu á ástandi, sem varað hefur lengur en ég og aðrir þeir, sem eru áhugamenn um málefni kennaraskólans og kennaramenntunarinnar, hefðu viljað, að hefði varað.

Tveir hv. þm. hafa harmað það, að frv. skyldi ekki hafa verið útbýtt fyrr en núna í byrjun síðari hluta þingsins, að það skyldi ekki hafa komið fyrir augu þm., þegar þingið kom saman í haust, 10. okt. s.l. Þetta var óframkvæmanlegt af þeirri mjög svo einföldu ástæðu, að menntmrn. fékk frv. ekki frá n., sem samdi það, fyrr en 23. okt. s.l., m. ö. o. eftir að þing er komið saman. Og ég hygg, að það megi teljast rösk handtök í menntmrn. og hjá ríkisstj. að hafa lokið athugun á svo viðamiklu máli sem hér er um að ræða, og samstaða náðist um það í ríkisstj., þ.e. fyrst og fremst á milli menntmrn. og fjmrn., að leggja málið fyrir og æskja þess, að þingið afgreiði það nú þegar á þessu þingi. Það eru hraðari vinnubrögð en yfirleitt tíðkast og helgast eingöngu af því, að við í menntmrn. — og höfundar frv. — höfum talið vera hér um óvenjulega mikilvægt mál að ræða. Ég lét þess einnig getið í framsöguræðu minni, að hér er um meginstefnu að ræða, sem hefur verið kunnug öllum áhugamönnum um málefni kennaraskólans í 1–2 ár, og í raun og veru á því engum, sem lætur sig málið verulega skipta, að veitast erfitt að mynda sér skoðun á málinu. Ég hygg raunar, að flestir hafi myndað sér skoðun á málinu á undanförnum mánuðum og árum og eigi það við um alla þá þm., sem sérstakan áhuga hafa á málinu og sérþekkingu hafa á því og munu því sérstaklega um það fjalla.

Tveir hv. þm. hafa einnig vikið að því, hvers vegna kennaranáminu sé ekki ætlaður staður í háskólanum, fyrst gert er ráð fyrir því sem aðalreglu, að stúdentspróf sé inngönguskilyrði og væntanlegt kennaranám fari fram á háskólastigi. Ég sé enga ástæðu til annars en vera algerlega hreinskilinn, hvað mig persónulega áhrærir í þessu efni. Þegar sú hugmynd fyrst kom upp fyrir nokkrum árum að breyta kennaranáminu og flytja það á háskólastig, þá var ég persónulega þeirrar skoðunar, að eðlilegasta lausnin í því efni væri sú að fela sérstakri háskóladeild að annast menntun barnakennara, eins og það var í raun og veru ætlunin með B.A.-náminu í háskólanum að mennta framhaldsskólakennara. Húsnæðismál skipta þarna engu máli, því að ný deild í háskólanum hefði auðvitað enn um sinn getað verið staðsett hvar sem er í jafnlitlum bæ og Reykjavík er. En þetta sjónarmið mætti mikilli andstöðu af hálfu forvígismanna kennaraskólans og raunar samtaka barnakennara einnig. Og þau rök, sem þessir aðilar færðu fyrir því að hafa kennaranámið í sérstökum kennaraháskóla, eins og raunar algengast væri annars staðar, en ekki í hinum almenna háskóla þjóðarinnar, voru þau, að kennaranámið væri þess háttar sérnám, sem að ýmsu leyti væri öðruvísi og gerði aðrar kröfur til kennara og nemenda en almennt háskólanám gerði. M.ö.o., þó að það væri flutt á háskólastig, þá væri ekki ástæða til þess að feta þar í fótspor þeirra akademísku „tradisjóna“, sem mótuðu háskóla eða „universitet“ bæði hér og annars staðar, enda væru dæmi um þetta með nýjar greinar eins og t.d. tæknifræði og verkfræði ýmiss konar, að þær hefðu flutzt úr „universitetunum“, úr hinum almennu háskólum, yfir í sérstaka tækniháskóla, sérstaka verkfræðiháskóla, og þess vegna væri eðlilegt að láta þróun kennaramenntunarinnar, sem byrjað hefði á framhaldsskólastigi, þróast sjálfstætt, láta þær gömlu stofnanir vaxa, enda hefði það verið gert annars staðar í stað þess að kippa þeim upp með rótum og sá rótunum að þessari nýju menntun í allt öðrum jarðvegi, sem væri hinn akademíski jarðvegur gamalla háskóla. N. reyndist á þessari skoðun, og ég hef fyrir mitt leyti og ríkisstj. fallizt á hana. Annars væri frv. ekki flutt í því formi, sem það nú er flutt.

Ég játa fúslega með þessum tveimur hv. þm., að þetta er engan veginn sjálfsagt mál. Það má færa mörg og skynsamleg rök fyrir því ekki sízt í jafnlitlu þjóðfélagi og á Íslandi, að ástæðulaust sé að hafa tvo háskóla, og það mætti vel skipuleggja nýja háskóladeild með þessu nýja verkefni þannig, að gamlar venjur, gamlar „tradisjónir“, gömul náms- og kennsluviðhorf í háskóla yrðu ekki til trafala í því nýja námi, sem hér er verið að efna til. En með hliðsjón af því, að skoðanir sérfróðra manna um kennaramenntun, forvígismanna kennaramenntunarinnar og kennarasamtakanna, virtust vera eindregnar á þessum málum, þá hefur það orðið niðurstaða mín að gera skoðanir þeirra að mínum í þessu efni. Ég tel það ekki heppilegt, að einstakir fagráðh., sem flytja og fjalla um mjög mikilvæg mál, leggi meiri áherzlu á sínar eigin persónulegu skoðanir en skoðanir þeirra manna, sem eru ráðandi í þeirri stétt eða þeim stéttum, sem hlutaðeigandi mál snertir. Ég hef — og um það eru mörg dæmi — yfirleitt fylgt þeirri reglu í mínum störfum að hlusta vel og vandlega á rök, þó að það væri ekki alveg í samræmi við mínar persónulegu skoðanir í einu og öllu, og a.m.k. því aðeins að mín skoðun og minna félaga í ríkisstj. væri þeim mun ákveðnari og sannfæringin þeim mun traustari, þá hef ég talið rétt að láta sjónarmið sérfræðinganna og þeirra, sem hlut eiga að máli, ráða varðandi meðferð málsins a.m.k. varðandi flutning málsins. En ég endurtek, að mér koma þessar spurningar engan veginn á óvart. Þær voru í mínum huga lengi vel –jafnvel árum saman, þó að niðurstaðan hafi orðið sú, að ég flyt hér málið fyrir hönd ríkisstj. sem heildar í þessu formi.

Hv. þm. Magnús Kjartansson taldi, að ákvæðin um verkaskiptinguna væru ekki nógu ljós. En það eru alveg skýr ákvæði í 1. gr. l., og ég hygg, að þessi ákvæði séu síður en svo óskýrari en hliðstæð ákvæði almennt í lögum eru, þ.e. að Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands er heimilað að skipta með sér verkefnum og viðurkenna sambærilegar námsgreinar eða námsþætti hvor annars til þess að forðast tvíverknað. Þetta mundi að sjálfsögðu verða skýrt nánar í reglugerð. Heimildin er alveg skýlaus þegar í 1. gr. frv. Það mundi síðar verða verkefni reglugerðar með eðlilegum hætti að kveða nánar á um, hvernig þessu samstarfi og þessari verkaskiptingu skuli háttað.

Þá sagði hv. þm., að hann teldi óljós ákvæðin um inntökuskilyrði. Það væri gert ráð fyrir stúdentsprófi sem meginreglu, en svo væru óljós ákvæði um það, hvers konar annað nám gæti veitt rétt til inntöku í kennaraskólann. En ég er síður en svo þeirrar skoðunar, að ákvæðin séu óljós. Um þetta gildir það sama og hitt. Þau eru þvert á móti mjög skýr miðað við það, sem hliðstæð ákvæði eru í annarri skólalöggjöf. Í 4. gr. frv. segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Inntökuskilyrði í Kennaraháskóla Íslands eru: 1. Stúdentspróf. 2. Annað nám, ef skólastjórn telur það jafngilt og mælir með því, en menntmrn. fellst á það.“

M.ö.o., skólastjórn hefur frjálsar hendur um það að meta annað nám hliðstætt menntaskólanámi og þarf ekki annað en gera till. til menntmrn. um þá niðurstöðu sína, og þá er málið leyst fyrir hlutaðeigandi aðila. Þetta eru frjálslegri ákvæði en eru t.d. í gildandi háskólalögum. Og svo kemur það, sem er algert nýmæli, það er ekki í gildandi háskólalögum og er algert nýmæli í lögum, sem fjalla um háskólamenntun. Í þriðja lagi segir:

„Heimilt er skólanum að úrskurða um inntöku nemenda með hliðsjón af hæfniprófi eða öðrum matsaðferðum, en fullnægja skulu þeir ákvæðum þessarar gr. Ákveða má í reglugerð lágmarkseinkunn í íslenzku og fleiri greinum.“

Það er ekki til ákvæði í öðrum íslenzkum lögum um háskólanám hliðstætt þessu, að heimilt sé að veita rétt til háskólanáms samkv. hæfniprófi eða öðrum matsaðferðum, sem taldar eru fullnægja kröfum, sem sjálfsagt er að gera í slíku efni. Sú gagnrýni er því engan veginn á rökum reist, að inntökuskilyrðin í kennaraháskólann séu ekki skýr eða þröng. Þau eru þvert á móti skýr og víð.

Þá spurði hv. sami þm., hvort ákvæðið um kjör rektors í frv. táknaði stefnubreytingu af hálfu stjórnvalda varðandi ráðstöfun í embætti. Það ber auðvitað ekki að skilja ákvæðið þannig, heldur einungis þannig, að hér er um að ræða annan háskóla og það þótti eðlilegt, að hliðstæðar reglur giltu um val rektors í þessum nýja háskóla og nú gilda um val rektors í gamla háskólanum. Rektor háskólans er einn af fáum æðstu embættismönnum ríkisins, sem er ekki skipaður af ráðh., heldur kosinn af kennurum. Það var till. n., sem ríkisstj. féllst á, að það væri eðlilegt, að sama skipun gilti um þennan nýja væntanlega háskóla, og sé ég ekki annað en það megi teljast algerlega eðlilegt.

Ég veit ekki, hvort ég hef skilið spurningu hv. þm. rétt um það, að það væri óeðlilegt, að þeir, sem lykju kennaraprófi í vor í kennaraskólanum, skyldu ekki eiga að fá inngöngu í kennaraháskólann. (MK: Ég sagði með kennaraprófi almennt.) Almennt, já, að það væri óeðlilegt, að þeir fengju ekki inngöngu í kennaraháskólann. Þessi spurning ber vott um algeran misskilning eða ber vott um það, að þm. hefur ekki gert sér grein fyrir eðli gildandi kennaraskólalöggjafar og þeirrar nýju löggjafar um kennaraháskóla, sem við erum hér að ræða um. Af hverju skyldi kennari, sem þegar hefur kennarapróf, full réttindi, æskja inngöngu í kennaraháskólann til þess að læra þar upp sömu hlutina að verulegu leyti sem hann hefur áður lært? Enda mundi hið nýja próf ekki veita nein meiri réttindi en kennarinn nú hefur. Er það meining hv. þm. að bera fram í alvöru þá spurningu, hvers vegna kennari, t.d. kennari, sem nú starfar við einhverja skóla, eða kennari, sem lýkur prófi úr kennaraskólanum í vor, eigi ekki að fá réttindi til þess að ganga inn í kennaraháskólann? Til hvers skyldi hann ganga inn í kennaraháskólann og sitja þar í þrjú ár til þess að fá engin meiri réttindi en hann hefur? Þetta er svo furðuleg spurning, að mig rekur í rogastanz, að hennar skuli spurt af þm. Sannleikurinn er auðvitað sá, að þeir, sem hafa lesið núverandi lög um kennaraskóla og lesið þetta frv., vita, að væntanlegir kandídatar úr kennaraháskóla, stúdentar eða þeir, sem eru með jafngildi stúdentsmenntunar plús þriggja ára nám, fá engin meiri réttindi en kennaranemi, sem lýkur kennaraprófi í vor. Kennsluréttindin eru nákvæmlega þau sömu, svo að spurningin er fullkomlega út í bláinn.

Hv. þm. nefndi það, að ég mundi hafa þreytzt á því að vera menntmrh. í 14 ár. Ég held, að þessi spurning beri vott um það, að hann hafi gamlazt meira á því að vera þm. í þrjú ár en ég á því að vera menntmrh. í 14 ár, svo að mér sýnist þetta bera vott um meiri þreytumerki en ég vona, að á mér sjáist.

Hv. þm. Eysteinn Jónsson lýsti eftir skýringum á kennaraskortinum á framhaldsskólastiginu. Sannleikurinn er sá, að fyrir nokkrum árum var efnt til átaks í málefnum háskólans, þ.e. háskólanum var falið það verkefni beinlínis að mennta kennara fyrir framhaldsskólastigið. Í því skyni var allt B. A.-nám háskólans endurskipulagt frá grunni. Því miður verður að játa, að þessi tilraun hefur ekki skilað þeim árangrí sem skyldi. Á því eru margar og mjög flóknar skýringar, sem ég sé ekki ástæðu til að reyna að gera tilraun til að ræða hér; til þess er málið of flókið. En ég segi aðeins, segi aftur og undirstrika: Sú tilraun, sem hafin var fyrir nokkrum árum og stendur enn yfir í því að láta háskólann með sínu B.A.-námi sjá fyrir nægilegum fjölda háskólamenntaðra manna fyrir framhaldsskólastigið, hefur ekki gefizt eins vel og skyldi, og er þarna enn eitt verkefni, sem þarf að taka á til þess að bæta úr þeim tilfinnanlega skorti, sem er á kennurum á framhaldsskólastiginu. Þetta mál hefur verið til rækilegrar athugunar í menntmrn. og háskólanum. Ég hef látið þá skoðun í ljósi við háskólann og þá einkum við forvígismenn B.A.-námsins, að við í rn. teljum ekki þær ráðstafanir, sem þegar hafa verið gerðar, hafa borið tilætlaðan árangur, og ég vona, að það verði gerðar einhverjar þær breytingar á skipan mála innan háskólans, sem bæti úr því, sem þarna er um að ræða.

En að öðru leyti varðandi ræðu hv. þm. Eysteins Jónssonar vildi ég upplýsa, að í samningu er frv. um réttindi kennara á hinum ýmsu skólastigum, og hafa ýmsir aðilar óskað þess, að það frv. fengi að sjá dagsins ljós, þó að það yrði ekki samþ., áður en háskólinn tæki til rækilegrar athugunar þetta mál, sem ég skil vel, að hv. þm. vekti máls á.

Hv. þm. Sigurvin Einarsson spurði tveggja spurninga, og það ætti að verða það síðasta, sem ég segi að þessu sinni. Hann spurði, hvort hinir nýju nemendur kennaraháskólans mundu ekki fá sama rétt til námslána og aðrir stúdentar hafa nú, og er þessari spurningu að sjálfsögðu svarað játandi. Annað hefði aldrei komið til greina, enda í fullkomnu samræmi við gildandi lög um lánasjóð námsmanna.

Varðandi hitt atriðið, sem hann spurði um, hvort ekki ætti að bæta launakjör kennara í framhaldi af samþykkt jafnviðamikillar löggjafar og þess frv., sem hér er um að ræða, þá vildi ég aðeins segja í upphafi, að í nýgerðum kjarasamningum milli ríkisins og BSRB mun engin stétt opinberra starfsmanna hafa hlotið jafnmikla hækkun launa sinna — jafnmikla bót kjara sinna — og einmitt kennarar. Er þetta alveg óumdeilt meðal allra, sem til málavaxta þekkja. Og ég tel kennarastéttina vera mjög vel komna að þeirri miklu kjarabót, sem hún er nýbúin að fá, og hana síður en svo hafa verið of mikla, þó að ýmsir aðilar hafi talið hana og kjarabætur opinberra starfsmanna yfirleitt allt of miklar. Þeim mönnum er ég algerlega ósammála, og á það sérstaklega við um kennarastéttina. Það er alveg augljóst mál, að það hefur háð kennarastéttinni á undanförnum árum, að laun hennar hafa ekki verið nægilega góð; starf hennar hefur ekki verið nægilega vel metið til launa. Á þessu varð gagnger breyting í síðustu samningum opinberra starfsmanna, sem kemur fram í því sem sé, að engin ein stétt hlaut jafnmikla launabót og einmitt kennararnir. Það er viðurkenning á því, að laun þeirra hafi verið vanmetin undanfarin ár og laun þeirra þá verið orðin of lág. En nú mun enginn geta haldið því fram með sanni, að kennarar séu ekki hlutfallslega a.m.k. jafn vel launaðir og opinberir starfsmenn yfirleitt.

Að því er spurningu hv. þm. Sigurvins Einarssonar snertir, vil ég að síðustu segja þetta: Ég skildi spurningu hans svo, hvort fyrir því hefði verið hugsað, að hinir nýju kennarar, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, að brautskráist á sínum tíma og hafa auðvitað lengri námstíma að baki en kennarar fram að þessu, fái hærri laun en kennarar hafa hlotið hingað til. Svo skildi ég spurninguna. Ég vona, að það sé réttur skilningur. Það er ákvæði í nýgerðum samningi ríkisstj. og BSRB um þessa væntanlegu kennara. Að vísu eru ákvæðin eldri en þetta frv. Þar er gert ráð fyrir nýju kennaraprófi að loknu stúdentsprófi plús tveggja ára námi, og slíkum kennurum er í einu ákvæði samningsins skipað í 18. launaflokk, þ.e. sama launaflokk og þeim kennurum, sem byrjaðir voru störf fyrir 1963. En kennarar almennt eru tveimur launaflokkum neðar. Kennarar almennt eru í 16. launaflokki, en geta þó unnið sig upp í 18. flokk annars vegar með starfsreynslu og hins vegar með viðbótarmenntun, svo að það hefur þegar verið hugsað fyrir því, að kennaranámið lengist verulega, ef þetta frv. verður að lögum. Það er þegar hugsað fyrir því — ég veit ekki, hvoru ég á fremur að þakka það, BSRB og kennarasamtökunum eða ríkisstj., það má þakka það báðum jafnt að hafa haft þá fyrirhyggju — að það eru væntanlegir á markaðinn kennarar með lengra nám að baki en hingað til hefur átt sér stað, og þeim kennurum er skipað í hærri launaflokk en þeim, sem skemmra námið hafa að baki.