04.02.1971
Neðri deild: 43. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1403 í B-deild Alþingistíðinda. (1520)
186. mál, Kennaraháskóli Íslands
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Ég vil fyrst leyfa mér að benda á það, sem ég tel hafa komið alveg skýrt fram í þessum almennu umr., sem orðið hafa um skólamál, bæði í sambandi við það frv., sem hér liggur fyrir, og eins í sambandi við hin frv. tvö, að brýna nauðsyn ber til þess að endurskoða skólakerfið á framhaldsskólastiginu og í þeim efnum ríkir beinlínis hættulegt ástand. Og einmitt hvernig farið hefur fyrir kennaraskólanum á undanförnum árum, sýnir þetta máske gleggst einstakra dæma. En auðvitað eru fjöldamörg dæmi, sem sýna, hve ástandið í þessum efnum er hættulegt, önnur en dæmið um kennaraskólann.
Okkur vantar skóla í mörgum greinum og námsbrautum. Ég ítreka enn áskorun mína til hæstv. ráðh. um, að hann láti þegar ganga í að endurskoða þessi mál rækilega og þá með það fyrir augum, að gerð verði áætlun um nauðsynlega framhaldsskóla til hliðar við menntaskólana og eðlilegar námsbrautir í menntaskólunum. Þar á ég við viðskiptaskóla eða verzlunarskóla og námsbrautir. Þar á ég ekki síður við tækni- og iðnaðarnámið, sem þarf að endurskoða frá rótum og sópa burt því gamla kerfi í iðnaðarnáminu, sem við höfum búið við, eins og hér kom fram af hálfu hv. þm. Reykv., Hannibals Valdimarssonar, og fá í staðinn iðnskóla og tækniskóla, sem eru skeyttir við skyldunámið og í beinu framhaldi af því. Enn fremur þurfum við fiskiðnaðarskóla, og það er nánast þjóðarhneyksli, að hann skuli ekki vera kominn á fót þrátt fyrir margra ára baráttu vaskra manna. Við þurfum einnig fleiri bændaskóla og sjómannaskóla og marga aðra skóla eða námsbrautir í þeim skólum, til þess að við fáum það starfsfólk í helztu þjóðfélagsgreinar, sem nauðsyn ber til. Eins og stendur, er þetta allt í öngþveiti. Það er talað með óljósum orðum um fjölfræðiskóla, sem eigi að taka við af skyldunáminu, og skilst mér, að það sé nafn á þeim deildum, sem komið hefur verið upp með framhaldsnámi fyrir gagnfræðinga. Það er talað um fjölfræðiskóla, án þess að nokkuð sé nánar skilgreint, hvað menn raunverulega eiga við. Hér þarf að koma til röskleg heildarendurskoðun, því að þetta ástand er þegar búið að baka okkur óútreiknanlegt tjón.
Ég benti á það í umr. í gær, að eitt geigvænlegasta vandamálið á skólamálunum væri skorturinn á kennurum á framhaldsskólastigi. Undir þetta hygg ég, að allir kunnugir taki. Ég spurði hæstv. ráðh, um þessi efni og bað hann að gefa okkur nokkrar upplýsingar um þessi mál, því að þetta er auðvitað náskylt því máli, sem hér er til umr., og í raun og veru óhugsandi að slíta þetta tvennt í sundur, kennaramenntun á skylduskólastiginu og kennaramenntun fyrir framhaldsskólastigið. Og það sýna þær umr. glöggt, sem hér hafa orðið, og kem ég nánar inn á það síðar.
Ég gerði mér vonir um, að það gæti orðið ávinningur að því fyrir þessar umr. að beina þessum fsp. til hæstv. ráðh., en því miður varð ég fyrir sárum vonbrigðum. Nú vil ég biðja hæstv. forseta að láta sækja hæstv. ráðh. Ég held ekki áfram, nema það verði hægt. (Forseti: Hæstv. ráðh. hefur sennilega aðeins brugðið sér frá, en hann hefur setið hér í þingsalnum í dag, svo að —) Já, ég sætti mig ekki við að ræða þessi mál, án þess að ráðh. sé við og sízt þann kafla, sem ég er að hefja í ræðu minni. (Forseti: Það hefur þegar verið gerð ráðstöfun til þess að vekja athygli ráðh. á orðum þm.) Þá bíð ég á meðan. (Forseti: Ráðh. er kominn.)
Já, hæstv. ráðh. Ég var að minnast á, að í umr. í gær drap ég á vandamálið um kennaraskortinn á framhaldsskólastiginu og taldi, að það væri alveg nauðsynlegt að draga það vandamál inn í það mál, sem við erum nú að ræða. Og ég beindi nokkrum spurningum til hæstv. ráðh. í því sambandi. Ég gerði mér vonir um, að það væri ávinningur að því og mundi verða til þess, að fram kæmi fróðleikur um þetta, ef þessar fsp. kæmu fram. Ég bað hæstv. ráðh. m.a. að gera okkur nokkra grein fyrir áliti sínu á því, hvað yrði af þeim mönnum, sem fá kennaramenntun í háskólanum. Hversu margir þeirra færu í kennslu, og hversu margir þeirra færu í önnur störf? Og ef mikil brögð væru að því, sem ég óttast, að þeir færu í önnur störf, hvers vegna þeir færu þá ekki í kennslu, eins og þeir eru menntaðir til. Enn fremur bað ég hæstv. ráðh. að ræða það atriði, hvort B.A.-deildirnar mundu vera of litlar til þess að anna því verkefni, sem þeim væri ætlað. Enn fremur bað ég hann að ræða, hversu tilfinnanlegur kennaraskorturinn væri og hvort það mundi vera rétt, að aðeins 16% af þeim, sem kenna við framhaldsskóla, hefðu raunverulega kennararéttindi til þess, og loks spurði ég hæstv. ráðh. um það, hverjar væru till. hans til úrbóta í þessum málum, því að mér væri það ljóst, að þetta efni hlyti að vera í stöðugri rannsókn á vegum hæstv. ráðh.
Ég gerði mér von um, að það yrði ávinningur að því að draga þessi atriði inn í umr., en því miður varð ég fyrir sárum vonbrigðum, því að hæstv. ráðh. vék sér alveg undan því að ræða þessi þýðingarmiklu mál. Og hann sagði, og það undraðist ég mjög, að þetta mál væri of flókið til þess að skýra það. Ég vil ekki, að hæstv. menntmrh., hver sem hann er, tali þannig. Þetta mál getur ekki verið svo flókið, að það sé ekki hægt að skýra það. Hitt hefði hæstv. ráðh. getað sagt, að hann hefði ekki við hendina þær upplýsingar, sem þyrfti til þess að skýra þetta mál til hlítar, og það hefði ég skilið, að hann hefði sagt það. En vegna þess að þetta mál bar hér á góma í gær og umr. var frestað þangað til í dag, þá vil ég enn ítreka þessa fsp. mína til hæstv. ráðh. og biðja hann að gefa okkur upplýsingar um þessi efni. Hann hefur vonandi notað tímann síðan í gær til þess að grennslast eftir því í sínu rn., hvernig ástatt er að þessu leyti. Hæstv. ráðh. sagði, að hann gerði sér vonir um, að gerðar yrðu tilraunir í háskólanum til þess að bæta úr þessu erfiða ástandi, því að hann mælti ekki á móti því, að ástandið væri alvarlegt í þessum efnum.
Þessi yfirlýsing er að mínu viti alveg óviðunandi af hálfu hæstv. ráðh. Hér er um miklu alvarlegra vandamál að ræða en svo, að það sé hægt að afgreiða það með því að segja okkur, að verið sé að athuga um að gera einhverjar tilraunir í háskólanum til þess að bæta úr. Hér verður hæstv. ráðh. að taka forustuna og finna leiðir til þess að leysa þetta mál. Í því sambandi komum við inn á spurninguna um réttindi kennara og þ. á m. réttindi þeirra kennara, sem á að útskrifa úr Kennaraháskóla Íslands. Það kom fram hjá hæstv. ráðh., að það er í raun og veru óljóst enn þrátt fyrir frv., hvaða till. eru uppi af hans hendi um réttindi þessara kennara, því að hann sagði, að það væri í undirbúningi annað frv., sem ætlað er í framhaldi af þessu og á að koma einhvern tíma seinna, um réttindi kennara. En það er auðvitað eitt það allra þýðingarmesta í sambandi við það mál, sem hér er um að ræða, að þetta mál sé tekið til meðferðar og afgreiðslu, um leið og kennaramenntunin er ákveðin. Auðvitað verður þetta að fylgjast að. Það verður að gera sér alveg fullkomlega grein fyrir því, hvað þessum kennaraháskóla, sem á að stofna, er ætlað að gera. Er honum einvörðungu ætlað að kenna þeim, sem leggja fyrir sig kennslu á skylduskólastiginu, eða er honum einnig ætlað að sinna því hlutverki að útskrifa a.m.k. að einhverju leyti þann kennarahóp, sem sinnir verkum á framhaldsskólastiginu. Þetta sýnir okkur m.a., að þetta mál þarf allt mjög gaumgæfilegrar athugunar við í heild sinni og þetta verður ekki slitið úr samhengi við vandamálið um framhaldsskólakennarana.
Ég kasta hér fram þessari spurningu: Getur það yfirleitt komið til mála að stofna kennaraháskóla af því tagi, sem hér er gert ráð fyrir, einvörðungu til þess að útskrifa kennara fyrir skylduskólastigið? Nær það nokkurri átt, að kennarar, sem hafa stúdentspróf og síðan þriggja ára háskólamenntun, komi ekki til greina sem kennarar í framhaldsskólunum. Fram að þessu höfum við, eins og hér var bent á rétt áðan, haft þriggja ára háskólanám, sem gert hefur verið ráð fyrir, að þeir nytu, sem yrðu kennarar í framhaldsskólunum. Og þetta kemur mönnum enn til þess að spyrja um það, sem vitanlega þarf að kryfja til mergjar og ég raunar drap aðeins á í ræðu minni í gær, en hæstv. ráðh. kom ekkert inn á: Ef á að leggja í að stofna kennaraháskóla á annað borð, á þá ekki að hafa þar alla kennslu í kennarafræðum á háskólastigi? Ef á að leggja í það á annað borð að stofna kennaraháskóla, er þá ekki skynsamlegt, að í þeim kennaraháskóla fari fram öll háskólamenntun kennara? Og því fremur kemur þessi spurning upp í hugann, þegar það er athugað og krufið til mergjar, að það verður aldrei þannig, að kennaraháskólinn verði í framkvæmdinni eingöngu fyrir þá kennara, sem eiga að kenna á skylduskólastiginu. Það þarf ekki mikinn spámann til þess að sjá, að málunum verður ekki haldið svo aðgreindum. Þaðan kemur einnig fjöldi kennara, sem hljóta að taka að sér kennslu á framhaldsskólastiginu. Hér eru sem sé mjög þýðingarmikil og vandasöm Íandamæramál á ferðinni, ef það á að hafa stofnanirnar tvær, og þetta knýr allt til rannsóknar á því, hvort það er ekki skynsamlegt að hafa eina stofnun. Síðan getur verið mismunandi tilhögun á náminu eftir því, hvort menn stefna aðallega að því að kenna á skylduskólastiginu eða hvort menn vilja einnig kenna á framhaldsskólastiginu.
Loks vil ég minnast hér á eitt atriði, sem er talsvert þýðingarmikið, og það er þetta: Ef kennaraháskóli verður stofnaður, á hann þá að vera tveggja ára eða þriggja ára skóli? Hæstv. ráðh. sagði, að það hefðu verið mjög skiptar skoðanir um það hjá þeim, sem unnið hafa að undirbúningi málsins, og mér skilst hjá þeim, sem hafa haft aðstöðu til þess að segja álit sitt á því, hvort skólinn ætti að vera tveggja eða þriggja ára skóli. Mér finnst þetta ekkert einkennilegt. En mér finnst það athyglisvert, að í grg. frv. er hvergi vikið að því einu einasta orði, að nokkur ágreiningur hafi komið fram um þetta eða það sé yfirleitt nokkurt álitamál, að skólinn eigi að vera þriggja ára skóli. Ég læt í ljósi þá skoðun, að það sé hiklaust skylt að láta koma fyrir okkur á hv. Alþ. og þ. á m. í menntmn. greinilegan rökstuðning fyrir báðum þessum sjónarmiðum, þannig að við höfum fullkomlega aðstöðu til þess að gera okkur grein fyrir þeim rökum, sem færð eru fram annars vegar fyrir því að hafa skólann tveggja vetra skóla og hins vegar fyrir því að hafa hann þriggja ára skóla. Ég vona, að hæstv. ráðh. geri ráðstafanir til þess, að þessi þáttur málsins verði skýrður og borinn fram á þann hátt, sem viðunandi má teljast, til þess að hægt sé að mynda sér skoðun á þessu vandasama máli. Það er að sjálfsögðu ekki nægilegt í þessu sambandi að láta aðeins koma fram rökstuðning fyrir því, sem meiri hluti þeirra manna, sem stuðlaði að þessu frv., vildi vera láta, en láta hitt algerlega liggja í þagnargildi. Ég man ekki eftir því, að það hafi farið fram neinar almennar umr. um þetta á opinberum vettvangi, þannig að maður hafi stuðning í þeim til þess að skapa sér skoðun um þetta efni. Hafi það verið, þá vænti ég, að okkur verði á það bent.