04.02.1971
Neðri deild: 43. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1420 í B-deild Alþingistíðinda. (1525)
186. mál, Kennaraháskóli Íslands
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég hef ekkert í þessum umr. minnzt á hið ömurlega ástand húsnæðismála Kennaraskóla Íslands, en ég tek undir það, sem hér hefur verið sagt af ýmsum hv. þm., að það, held ég, hefði verið mest aðkallandi og brýnasta viðfangsefni menntamálastjórnarinnar að taka á því máli fyrir löngu, áður en í slíkt óefni er komið, sem komið er varðandi það. Sannleikurinn er sá, að það hefur verið svo fjarri því á undanförnum árum, að Kennaraskóli Íslands hafi haft nokkur ytri skilyrði til þess að sinna sínum brýnustu skyldum við sína nemendur sökum húsnæðismálaöngþveitisins.
Ég held, að það hafi ekki verið neitt yfir mark skotið, þegar ég tók tvær till., sem lágu hér fyrir hv. Alþ. í sambandi við fjárlagaafgreiðsluna. Önnur till. mælti með því alveg sérstaklega, að einna brýnustu verkefnin, sem þyrfti að leysa og yrði að leysa, væru húsnæðismál kennaraskólans annars vegar og hins vegar húsnæðismál sjúklinganna á geðveikrahælinu á Kleppi. Það var hnittið hjá nemendum kennaraskólans, þegar þeir sendu hv. þm. jólakort, um það leyti sem var verið að afgreiða fjárlögin, og þar var snilldarlega teiknuð mynd af aðalhúsi kennaraskólans og myndir af ungmennum uppi á þaki og út úr öllum gluggum, og allt var krökkt og iðandi af fólki innan og utan og út úr þessari teiknuðu byggingu. Þetta var ákaflega hógvær og hnittin áminning til Alþ. um hið óleysta verkefni í sambandi við húsnæðismál Kennaraskóla Íslands, en það hefur ekki enn þá fengið áheyrn þrátt fyrir þessa undirstrikun nemendanna. Hitt verð ég að segja, að þó að þarna séu mjög lamaðir möguleikar hinna færari manna, sem enn starfa við kennaraskólann, til þess að láta starf sitt koma að gagni, þá er það ískyggilegast, að menntmrn. bókstaflega bregzt þeim mikla fjölda ungmenna, sem leitar náms í stofnuninni, með því að ytri skilyrði gera þeim ómögulegt að fá þá menntun, sem þeim er þar ætluð. Hvaða vit er t.d. í því að kenna ungmennum sálarfræði í hálfbyggðum sal og ætla þeim að hlusta þar — á þriðja hundrað manns — á fyrirlestra í sálarfræði og uppeldisfræði? Það er auðvitað engin kennsluaðstaða. Og þannig er um margt. Námið gat ekki komizt í gang í Kennaraskóla Íslands, fyrr en langt var á námstímann liðið, sökum húsnæðisskorts á s.l. hausti. Það var enginn möguleiki að koma kennslunni fyrir. Þetta hefði verið miklu brýnna verkefni en að lyfta allri kennaramenntuninni á næstu árum á háskólastig; það er ég alveg sannfærður um. En svo að ég víki að hinu dæminu, sem ég tók. Ég bið hæstv. ríkisstj. að hugsa um það á daginn og hugsa um það á nóttunni líka, hversu óforsvaranlegt er að láta sjúkt fólk vera í gömlum timburhjalli hérna inni á Kleppi. Það er ábyrgðarlaus ríkisstj., sem lætur daga, vikur og mánuði líða svo að taka ekki á því verkefni.
Hv. þm. Magnús Kjartansson vék einhverju að mér af vinsemd eins og fyrri daginn. Þetta er góður vinur minn, 6. þm. Reykv., og taldi, að ég hefði staðnað og gerði mér ekki grein fyrir þeim menntunarkröfum, sem samtíðin gerði. Það er alltaf þannig hjá þessum hv. þm. Hann fylgir bezt straumi tímans. Hann fylgist alltaf bezt með. Hann getur brugðið öllum öðrum um vanþekkingu og náttúrlega íhaldssemi miðað við hann sjálfan. Ráðh. fær sínar sneiðar ekkert síður en við hinir þm., og hann veit alltaf allt bezt. Hann er mestur verkalýðsmálafrömuður á Íslandi, þó að hann hafi aldrei í verkalýðsfélag komið, og hann veit mest um kennslumál, þó að hann hafi ekki lokið sínu embættisprófi. Ég óska honum til hamingju með hans snilli. Það er ekkert við því að gera annað. Við verðum að játa okkur alveg mál gagnvart honum, þó að hæstv. ráðh. væri hér að enda við að segja, að honum hefði tekizt að segja það heimskulegasta, sem hefði verið sagt á Alþ. um nokkurra ára bil, skildist mér. Útrætt um það.
Ég geri mér alveg fulla grein fyrir því, að stúdentsmenntun er nú að verða ámóta almenn í þjóðfélagi okkar eins og gagnfræðapróf fyrir nokkrum árum. En samt sem áður er það svo, að það er ekki öllu borgið í íslenzkum menningar- og menntamálum, þó að hver unglingur á Íslandi taki stúdentspróf. Stúdentspróf er engin heilög kýr í sambandi við menntun. Það er enn þá langt í land með það, að það verði talin brýn nauðsyn fyrir þá, sem ætla að helga sig aðalatvinnuvegi þjóðarinnar, sjómennsku, fiskiðnaði, vinnu í verksmiðjum þjóðfélagsins og annars staðar á vettvangi lífsins á fjöldamörgum þýðingarmiklum sviðum, að þeir hafi stúdentspróf. Það verður ekki á alveg næstu árum, að það verði heimtað af þeim öllum, og ég er ekkert viss um, að það sé nauðsynlegt. En ég hef undirstrikað það margoft, að það er mikið skarð fyrir skildi í okkar menntakerfi, að það er ekki séð fyrir hinni praktísku þekkingu og menntun, sem hið daglega líf heimtar og hin þýðingarmiklu störf þess fólks, sem sinnir því praktíska, ættu skilið. Og það er áreiðanlegt, að ef betur væri fyrir þeim hliðum menntunarinnar séð, þá væri það í mörgum tilfellum stúdentsprófi betra.
Ég vék að því í fyrri ræðu minni, að væntanlega yrði framkvæmdin sú á löggjöfinni um Kennaraháskóla Íslands, að stökkið yrði ekki svo stórt, að ekkert yrði þar óbrúað, og ég vil aðeins víkja að því örfáum orðum. Ég vil vænta þess, að framkvæmdin verði slík, að réttindi þeirra kennara, sem nú eru við nám í Kennaraskóla Íslands, verði tryggð, þegar hið nýja kerfi verður komið til framkvæmda, og þeir verði þá ekki taldir nein olnbogabörn þeirrar stéttar og ekki neinn annars eða þriðja „klassa“ lýður, þó að þeir hafi orðið að útskrifast, meðan kennaraskólinn var kennaraskóli, en ekki kennaraháskóli. Ég vona, að þarna verði ekki neitt tómarúm og réttindi þess fólks, sem hefur gengið í Kennaraskóla Íslands fram á þennan dag, og þess fólks, sem nú er í skólanum og lýkur fullgildu prófi, verði að fullu tryggð. En ég er ákaflega hræddur um, að það verði í reynd vitnað til þess, að kennararnir, sem komi úr Kennaraháskóla Íslands, hafi kostað meira til síns náms og eigi að njóta meiri réttinda, a.m.k. að njóta hærri launakjara, og þeim, sem ekki séu háskólagengnir, verði þá ætlað að standa undir kennaraþörfinni úti um byggðir landsins.
Það mætti segja mér það, því að ég óttast það, sem hv. 2. þm. Norðurl. v. sagði hér áðan, að það kunni að fara svo, að eins og nú er læknaskortur og hörgull á prestum í þjónustustörfum úti um land, þá kynni að verða kennaraskortur, eftir að háskólaprófið væri orðinn löggildingarstimpill á kennaranum. Þetta óttast ég. Og ég held, að það sé full ástæða til þess að vera við því búinn, að hv. þm. Gunnar Gíslason, 2. þm. Norðurl. v., því miður hafi þarna rétt fyrir sér. Ég óttast þetta líka. En í sambandi við réttindi kennara vil ég segja það, að ég tel það alveg fráleitt að láta koma eftir þetta frv. — og alveg aðskilið frá því — frv. um réttindi kennara. Það á vitanlega að vera þáttur í þessu sama frv. um réttindi kennaranna, eins og þau verða, þegar hið nýja kerfi tekur til starfa. Og það er ómissandi þáttur í þessari lagasetningu um réttindi kennaranna.
Hæstv. ráðh. varð við þeirri ósk minni að skýra orðið skor og taldi það ófyrirgefanlega fáfræði að þekkja ekki þetta nýyrði. En ég játa þetta alveg kinnroðalaust á mig. Mér dugir ekki sú menntun, sem ég hef. Ég hef af engri háskólamenntun að státa. Mér dugir ekki aldarfjórðungsseta á Alþ. til þess að þekkja þetta orð og ekki 20 ára kennarareynsla og skólastjórastarf. Ég þekki ekki þetta orð í þessari merkingu, skor og skorarstjóri og það allt saman; það var mér hebreska. En til þess eru ráðh. að þeir viti eitthvað meira en almúginn, og þá er að fara í þessa smiðju og fá skýringu á þessu, því að frv. skýrði það ekki.
Ég spurði líka um, hvað í þessu fælist, sem kemur fram í 10. gr. um leiðsagnar- og starfsþjálfunarskylduna næstu 2 ár, eftir að kennari hefur lokið kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands. Og nú hefur hæstv. menntmrh. sagt, að þessi leiðsögn og starfsþjálfun eigi að fara fram á fyrstu tveimur starfsárum kennarans, þegar hann er kominn út í kennslu og er farinn að starfa, og þá er hann ekki talinn eftir allt saman fullgildur kennari, fyrr en hann hefur notið leiðsagnar og starfsþjálfunar allt að tveimur árum. Það hlýtur þá að eiga að verða skylda eldri kennaranna við skólann, kannske kennaranna frá Kennaraskóla Íslands, að annast þessa starfsþjálfun og leiðsögn, leiðbeina háskólamönnunum, þegar þeir koma og byrja að kenna. Þessi starfsþjálfun hlýtur að fara fram í skólunum í starfi; það sagði menntmrh. Og þannig verður þetta nú. Ég hefði nú haldið, að það hefði verið ástæða til að breyta III. lið 6. gr., þar sem segir, að 12 vikur á þremur árum eigi að verða starfsþjálfun, verkleg þjálfun á þriggja ára námstímanum, þ.e. einar 4 vikur á ári í Kennaraháskóla Íslands í verklegri þjálfun, kennsluæfingum. Það er allt of lítið. Það er enginn vafi á því, og ég held, að það væri ástæða til þess a.m.k. að tvö- eða þrefalda það, að það væru 12 vikur á vetri, sem þeir ættu að sinna starfsþjálfun, kennsluæfingum undir leiðsögn hinna færu kennara, sem verða í kennaraembættunum við Kennaraháskóla Íslands.
Það hefur komið í ljós, enda óséð í frv. um réttindi kennara, að kennararéttindin koma úr þremur áttum. Þau eiga að koma frá Kennaraháskóla Íslands, þau eiga að koma frá Háskóla Íslands í vissum greinum og þau eiga að koma frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands, eða a.m.k. er látið líklega um, að þaðan eigi sumir kennarar að fá sín réttindi. Ég held, að það sé stofnað til óþarflega mikils glundroða, að því er þetta snertir og sennilega margt fleira, og ég tel, að hæstv. menntmn. fái ærið að starfa við að kanna þessi nýmæli, sem í frv. þessu felast, og leggja mat á það, hvort þau séu öll til mikilla bóta. En um það efast ég fastlega, og a.m.k. að öllu óbreyttu mundi ég ekki ljá þessu frv. atkv. mitt.