05.04.1971
Neðri deild: 88. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1470 í B-deild Alþingistíðinda. (1560)

186. mál, Kennaraháskóli Íslands

Frsm. (Benedikt Gröndal):

Herra forseti. Ég geri ráð fyrir því, að allir hv. alþm. séu í huga sínum hlynntir þeirri hugmynd að dreifa opinberum stofnunum meira en gert hefur verið til þessa, þó að reynslan hafi verið sú, að erfitt hafi reynzt að koma slíkum hugmyndum í framkvæmd. Mér finnst það alls ekki fráleit hugmynd, að einhver meiri háttar stofnun til viðbótar við þær, sem þegar eru á Akureyri, verði þar. Hins vegar eru það mér vonbrigði, að hv. flm. skuli hafa látið þetta frv. fara í gegnum sex umr. og loks við þá sjöundu skuli þeir flytja svo veigamikið mál sem breyt. við frv. eins og það mundi vera, hvort sem um það væri að ræða að flytja kennaraháskólann til Akureyrar eða stofna annan kennaraháskóla á Akureyri, en mér sýnist, að það sé nú öllu frekar það, sem í till. felst. Hins vegar er mér kunnugt um það, að hæstv. menntmrh. er kominn til landsins úr handritaerindum sínum, þó að hann sé ekki mættur til þessa fundar, og ég vil óska þess við hæstv. forseta, að hann fresti þessari umr., svo að menntmrh. geti tekið þátt í henni og látið í ljós álit sitt á þessum síðustu brtt.