22.03.1971
Efri deild: 71. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1504 í B-deild Alþingistíðinda. (1574)
281. mál, almannatryggingar
Kristján Ingólfsson:
Herra forseti. Það frv. til l. um almannatryggingar, sem hæstv. ríkisstj. hefur nú lagt fram, sver sig allmjög í ætt sína, svo mjög er þar þræddur ferill þeirra l., sem í gildi eru nú. Hefði þó margur búizt við mikilli breytingu hér að lútandi, þar sem reynslan hefur leitt í ljós ófáa galla á núverandi tryggingalöggjöf. Þær breytingar, sem hér er um að ræða, breyta í litlu meginbyggingu löggjafarinnar sjálfrar, en líkjast fremur litlum plástrum, sem settir eru einn og einn ofan í óhemað sár. Þó er ástæðulaust að vísa þeim nýjungum öllum, sem hér eru, frá sem ógagnlegum. Margar þeirra bera skýlausan vott um framfaravilja, þótt hægfara sé, og ber sízt að vanvirða hann.
Enn sem fyrr eru það upphæðir lífeyrisbóta, sem mest aðkallandi má kalla og stinga líka mest í augun. Enn sem fyrr verður gamla fólkið að láta sig hafa það að geta ekki lifað á ellilaununum sínum, verði frv. það, sem hér liggur fyrir, að l. Allt tal um velferðarþjóðfélag, um tryggingaþjóðfélag, verður hjáróma, meðan sú staðreynd blasir við, að aldraða fólkið í landinu með langan og oft strangan vinnudag að baki þarf að berjast við daglegar fjárhagsáhyggjur fram undir það síðasta. Frv. sjálft og aths. þær, er því fylgja, eru mikið athugunar- og lesefni og satt að segja litt skiljanlegt, að það skuli ekki lagt fram, fyrr en komið er fram undir þinglok og öll borð eru orðin yfirhlaðin af óafgreiddum málum. Almannatryggingarnar eru þó slíkt stórmál, að meira en full ástæða er til að veita því athugula og í öllu nægjanlega meðferð hér á þingi, áður en því verður hleypt út sem samþykktri löggjöf.
Það væri hægt að ræða marga daga um almannatryggingar, eðli þeirra og framkvæmd. Ég mun ekki velja mér þann kostinn, heldur fara nokkrum orðum um örfá atriði. Ég vil þá fyrst líta á 8. gr. frv., þar sem gert er ráð fyrir því, að eftir sem áður skuli embætti sýslumanna og bæjarfógeta annast umboðsstörf fyrir Tryggingastofnunina. Þetta lítur vel út á pappírnum, og ekki efa ég, að embættin yfirleitt muni gera greinargóð skil til Tryggingastofnunarinnar. Hinu skal ekki gleymt, að þessi sömu embætti eru líka innheimtustofnanir ríkissjóðs, og dæmi eru um það, að bótaþegi hefur haldið á kvittun fyrir þinggjaldi sínu einni saman, þegar hann fór heim frá því að sækja bæturnar, sem hann þurfti þó mjög á að halda. Augljóst er, hvað þetta dæmi sannar og önnur slík.
Nú vill e.t.v. einhver spyrja: Af hverju kærir ekki sá bótaþegi, sem hefur réttinn sín megin? Og við getum öll leitað svarsins og fundið það. Hinn almenni borgari er oft smælingi gagnvart ríkisvaldinu. Við skulum ekki ætla það, að hver og einn bótaþegi þekki tryggingalöggjöfina til hlítar. Og í þriðja lagi stendur bótaþeginn frammi fyrir valdi, sem unnt er að misbeita, því að eins og við þekkjum embætti sýslumanna, þá eru þetta afskaplega margþætt og margslungin embætti, sem vafi leikur á, að lýðræðislegt megi telja að hafa í einu og sama embættinu. En auðvitað fer það eftir mönnum, hvernig þar er á haldið. Skoðun mín er sú, að eðlilegra væri, að tryggingaupphæðin væri sjálfstæð gagnvart annarri opinberri fésýslu eða innheimtu, og ég geri mér í hugarlund, að þá væri betur varðveittur sá andi, sem löggjafinn befur frá upphafi viljað byggja almannatryggingarnar á. Ég skal taka það fram, að þó svo þau atriði, sem fram koma í 60. gr. frv. og hafa verið í l., hafi verið brotin, þá eru yfirvöld þau, sem embættinu stjórna, mannleg eins og við dl og því ástæðulaust að ætla, að hér sé um almenna lögbrotavenju að ræða. En meðan þetta er eitt og sama embættið, þá er hættan fyrir hendi fyrir því, að innheimtugleðin, sem vissulega á rétt á sér á sínum stað og sínum tíma, beri anda tryggingalöggjafarinnar ofurliði. Ég læt svo útrætt um það atriði.
Eins og ég hef áður drepið á, þykir mér svo sem upphæðirnar í II. kafla frv. stingi mjög í augu. Þær eru ekki í samræmi við framfærslukostnað dagsins í dag, hvað þá líkar því, sem maður gæti gert sér í hugarlund, að þarfirnar verði, þegar 1. sept. er liðinn hjá, ef spádómar ýmissa hv. þm. úr stjórnarliðinu — og þá sérstaklega eins þeirra — eiga eftir að rætast, sem ég því miður hef grun um, að sé ekki byggt á sandi.
Sú nauðsynlega aðstoð, sem almannatryggingar ættu að láta í té, verður því ekki byggð á þessum tölum. Mér telst til, að hjá þeim aðila, sem tekur ellilífeyri sinn frá og með 67 ára aldri, verði mánaðarlífeyrisgreiðslan um 5800 kr. á mánuði. Það er fjarstæðukennt að ætla sér, að nokkur lifi á þeirri upphæð, hvað þá ef ástandið á eftir að versna frá því, sem nú er. Sé hér um að ræða slitnar manneskjur, sem ófærar eru orðnar til vinnu, verða þar að öllum líkindum aðrir framfærsluaðilar að koma til, því að á þessari upphæð verður ekki skrimt. Að vísu er til heimildarákvæði í 1. mgr. 19. gr. Það er hins vegar óljóst orðað, að því er mér þykir, en þar segir með leyfi hæstv. forseta:
„Heimilt er að greiða uppbót á elli- og örorkulífeyri, ef sýnt þykir, að lífeyrisþegi geti ekki komizt af án hækkunar.“
En sjálfsagt verður þessari heimild ekki beitt almennt, enda hugsuð sem aukaheimild, og eflaust verður gengið út frá bótaupphæð 11. gr. að viðbættri þeirri nýjung, sem felst í 2. mgr. 19. gr. um hækkun fyrir þá, sem hafa lægri tekjur en 84 þús. kr. Um ellilífeyriskaflann má í einni setningu segja, að bæturnar nægja engan veginn. Gamla fólkið kemur enn sem fyrr til með að sitja með sínar áhyggjur um sinn fjárhag og um sinn næsta dag, sama gamla þreytta fólkið og einu sinni setti þó nokkuð stórar krónur inn á sparisjóðsbók — krónur, sem nú eru orðnar að litlum aurum. Sé litið á upphæð fullra örorkubóta, eins og kveðið er á um í frv., þá kveður við sama tón. 70 560 kr. skulu vera laun þeirra, sem öryrkjar eru að fullu. Ég get ekki ímyndað mér, að nokkur láti sér detta í hug, að það sé raunhæf tala. Þannig mætti halda áfram.
Frv. er alls ekki aldæla slæmt, en það nær of skammt. Nauðsynlegustu bæturnar eru of lágar, sjálf tryggingin er ónóg og endurskoðunin of skothent. Og með tilliti til þess, að frv. á ekki að taka gildi sem lög fyrr en eftir um það bil 9 mánuði, þá getur maður ekki fundið í rauninni nokkra rökræna grundvallarástæðu fyrir því að keyra það í gegn núna í þinglokin aðra en helzt þá, að það ætti að nota það sem einhvers konar flagg í kosningabaráttunni. En ef slíkt á að reyna, þá ættu þeir, sem þar eiga hlut að máli; að gæta þess, að þar verður um bætt flagg að ræða. Þar eru margar bætur á fána, sem einu sinni var fallega gerður miðað við aðstæður.
Ég vildi svo að lokum aðeins minnast á það, að mér finnst vafasamt og ástæða til að taka á því af fullri varkárni að leggja meiri álögur á sveitarfélögin en gert er. Alþ. hefur alla tíð — líklega söguna í gegn frá því, að það fékk löggjafarvald — verið nokkuð veikt fyrir því að leggja álögur á sveitarfélögin án þess að skammta þeim í staðinn næga tekjustofna. Þetta vita sveitarstjórnarmenn fyllilega, og þeir hafa líka beðið mjög um aukna tekjustofna, en ég efast um, að þegar á allt er litið, hafi Alþ. nokkurn tíma heyrt þær bænir sem skyldi. Í 37. gr. í frv. þessu er rætt um sjúkrasamlög sýslna. Satt bezt að segja virðist þróunin, m.a. ef vitnað er í samþykktir síðasta aðalfundar Sambands ísl. sveitarfélaga, vera sú, að menn séu mjög farnir að hallast á þá sveif, að sýslurnar séu í þann veginn að syngja sitt síðasta vers og ný umdæmaskipun í landinu muni taka við af þeim. Við, sem út um landið búum, finnum það alltaf betur og betur, að það eru ekki í rauninni þessi gömlu, dönsku sýslumörk, sem afmarka samstöðu okkar, heldur allt önnur landfræðileg, samgönguleg mörk, og því vaknar hjá mér sú spurning, hvort ekki gæti verið happasælla núna, t.d. þegar stendur yfir endurskoðun á læknaskipunarlögum, að sjúkrasamlögin fylgdu frekar læknishéruðum en sýslum, sem einhvern tíma voru teiknaðar úti í Danmörku af mönnum, sem hvorki höfðu séð Ísland né höfðu landakort.
Það er nú víst kominn kvöldmatartími hjá flestum, svo að ég skal fara að stytta mál mitt, en ég get ekki látið hjá líða í lokin að lýsa þeirri miklu reynslu, sem það er fyrir einn sveitamann að koma hér inn á Alþ. í þinglok. Allt, sem maður hefur lesið um þingræði, fer maður að efast um, að sé til í raun hér. Ég hef orðið efnislega mjög miklu ríkari, síðan ég kom hingað. Ég á orðið heilt bókasafn. En ef maður athugar, hvaðan það bókasafn er komið, þá er það komið frá þeim í „ráðinu“. Þeir í „ráðinu“ senda Alþ. síðustu dagana, sem það starfar, margt; þá senda þeir inn þessar fallegu bækur. Ég er viss um, að þetta þykir mörgum skemmtilegt efni, og þm. sitja við það nótt sem dag, ef svo má að orði komast, að paufast í gegnum þetta, en allir geta ímyndað sér, hvernig hin þingræðislegu vinnubrögð verða fyrir bragðið. Ég held, að þetta sé eitt af því, sem styður það, að það þurfi að taka vinnubrögð hér á Alþ. til mjög mikillar endurskoðunar og athugunar, en þá held ég, að það væri gott að hafa með í ráðum menn á borð við Guðjón Hansen og fara eftir því, sem þeir segja.