29.03.1971
Efri deild: 78. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1518 í B-deild Alþingistíðinda. (1580)
281. mál, almannatryggingar
Steinþór Gestsson:
Herra forseti. Eins og nál. á þskj. 689 ber með sér, þá er ég í höfuðatriðum meðmæltur því frv. til l. um almannatryggingar, sem hér liggur fyrir til umr. Í heild sýnist mér, að þær breytingar, sem gerðar eru á eldri lagaákvæðum, stefni til bóta, og því vil ég stuðla að því, að þær nái fram að ganga. Ég hef skrifað undir þetta nál. með fyrirvara, og minn fyrirvari er fólginn í afstöðu minni til V. kafla frv., sem fjallar um sjúkratryggingar. Þar er gert ráð fyrir allveigamikilli breytingu frá eldri ákvæðum um þær, þar sem áður hafa verið og eru til þessa tíma sjúkrasamlög í hverjum hreppi í landinu, sem síðan hafa sameinazt í héraðasamlög um veigamestu atriði tryggingaákvæðanna eða um sjúkrahúsgreiðslurnar. Nú er gert ráð fyrir því í þessu frv., að í hverjum kaupstað og hverri sýslu skuli vera sjúkrasamlag til þess að annast sjúkratryggingar. Það þýðir það, að gert er ráð fyrir því, að sjúkrasamlög hreppanna eða sveitarfélaganna hverfi. Í fyrsta lagi vil ég geta þess, að mér sýnist, að þessi skipting í sjúkrasamlög sé handahófskennd, og ég sé ekki, að þetta sé sú skipting, sem eðlilegust væri, ef breytingu á að gera á þessum hlutum á annað borð.
Þegar maður lítur til þess í örfáum dæmum, sem ég vildi nefna, þá hygg ég, að þeim muni ekki þykja það eðlilegt í sveitarfélögunum í Kjósarsýslu að fella sjúkrasamlögin saman í eitt sjúkrasamlag í sýslunni jafnstór og fjölmenn sveitarfélög og hér ræðir um eins og Seltjarnarnesið og Mosfellssveit, svo að dæmi séu nefnd. Aftur á móti, ef við lítum til annarra aðstæðna eins og t.d. Austur-Barðastrandarsýslu, sem mun ekki vera öllu fjölmennari en miðlungssveitarhreppur á Suðurlandi, þá þykir mér það einsýnt, að þarna sé ekki um ákvörðun að ræða um sjúkrasamlagsstærð, sem nokkur raunhæf rannsókn eða athugun hafi stuðlað að. Látum svo vera, en þá er að spyrja sjálfan sig að því: Er þessi breyting nauðsynleg, sem hér er verið að gera? Hafa sjúkrasamlögin, eftir að síðasta breyting var gerð á starfsháttum þeirra, staðið sig svo illa, að það sé ástæða til þess að breyta þeim á þessa lund, og það án þess að spyrja sveitarstjórnir eða sjúkrasamlög um, hvort að því skuli stefnt eða ekki? Ég þori ekki að fullyrða neitt um þessa hluti, en af þeim kynnum, sem ég hef af störfum sjúkrasamlaga og hef lítils háttar hlerað um frá t.d. þeim, sem haft hafa með að gera héraðasamlögin, þá sýnist mér, að það sé alls ekki um það að ræða, að illa hafi verið staðið í stykkinu af þeirra hendi. Innheimtur hafa gengið yfirleitt nokkuð vel hjá sjúkrasamlögunum og reikningsskil ekki nema í örfáum tilfellum verið með þeim hætti, að ástæður væru til að vanda um í því efni.
Ég get því ekki séð, að þessi breyting sé nauðsynleg. Ég hygg, að með héraðasamlagafyrirkomulaginu, sem komið var á við síðustu breytingar á sjúkratryggingunum, hafi verið farið inn á þá braut að sameinast um þá hluti, sem hættulegastir voru hinum minni sjúkrasamlögum, og reynslan hafi sýnt það, að síðan hefur ekki orðið um neina verulega eða teljandi erfiðleika að ræða hjá litlu sjúkrasamlögunum. Það er bent á það, að þessi breyting, sem nú er stefnt að, muni verða til þess að gera stjórnun þessara mála auðveldari og jafnvel ódýrari. Um það er erfitt að segja, hvort um ódýrari stjórnun verður að ræða, en ég hygg, að það sé þó í ósamræmi við þá reynslu, sem fengin er, af sams konar færslu á stjórnun félagasamtaka í landinu, ef þetta verður til þess að draga þar verulega úr kostnaði.
Ég hef lýst því, að ég er ekki samþykkur þeim breytingum, sem hér er gert ráð fyrir að gera á sjúkratryggingakafla almannatryggingalaganna. Ég mun því geyma mér rétt til þess að flytja við 3. umr. þessa máls brtt. við þennan kafla, sem miðar að því, að sjúkrasamlögin verði a.m.k. um það spurð, á hvern hátt bezt verði leystur þeirra vandi, ef hann þykir vera einhver verulegur fyrir hendi. Ég get ekki séð, að þau hafi starfað þannig að þessum málum, að það sé sanngjarnt og eðlilegt að gera vafasama breytingu án þess að kveðja þau nokkuð til ráða um, á hvern hátt hún verði framkvæmd.