31.03.1971
Neðri deild: 79. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1555 í B-deild Alþingistíðinda. (1599)
281. mál, almannatryggingar
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Það er sagt, að Tryggvi Þórhallsson, fyrrv. forsrh. heitinn, hafi haft að orðtaki: Sagan endurtekur sig. Það er ástæða til þess að minna á það, að þetta orðtak er í heiðri haft hér á hv. Alþ. af hæstv. ríkisstj., því að þau vinnubrögð, sem nú eru viðhöfð við afgreiðslu þingmála, minna mjög á vinnubrögðin, sem höfð voru hér í frammi fyrir kosningarnar 1967. Þá þurfti hæstv. ríkisstj. að koma að mörgum málum, og nauðsyn bar til, að þau fengju þá afgreiðslu Alþ. þó að gildistaka þeirra kæmi ekki til fyrr en síðar meir. Ég minnist þess, að ein af þeim l., sem þá voru afgreidd, voru l. um kostnað við skóla í landinu, og það bar brýna nauðsyn til að fresta ekki lagasetningunni, en svo hefur tekizt til með framkvæmdina, að reglugerð þar að lútandi var gefin út nú fyrir einum mánuði eða svo og hluta af l. hefur verið breytt aftur í framkvæmd með nýrri lagasetningu, vegna þess að það var ekki talið fært að framkvæma l. eins og þau voru þá gerð. Hins vegar var það talið fjarri öllu lagi, þegar stjórnarandstaðan gerði tilraun til að benda á, að nauðsyn bæri til að skoða þessa löggjöf betur og geyma hana til haustþingsins, því að þá yrði betra að vinna að lausn málsins og þá gæfist tími til þess að undirbúa það betur.
Sama átti sér stað á því þingi með lagabálk eins og hafnalögin. Það þurfti líka að hraða setningu þeirrar löggjafar, en á tímabilinu, sem liðið er síðan, hafa fjármál hafnanna þó verið til verulegrar athugunar svo að segja á hverju ári, og nú hefur einn af þm. stjórnarliðsins, hv. 2. þm. Vestf., séð sig knúðan til að flytja þáltill. um endurskoðun á þessari löggjöf. Þetta sýnir eins og fleira, að mikið hefði verið hagkvæmara, ef farið hefði verið að þessum málum, þ.e. afgreiðslu þeirra, með meiri gætni og festu og Alþ. hefði gefið sér tíma til þess að fjalla um þau. Um afgreiðslu eða vinnubrögð hér á hv. Alþ., mér finnst nú kasta tólfunum — er það að segja, að það getur ekki hjá því farið, að ef svo verður fram haldið, eins og nú hefur verið, þá hlýtur Alþ. að falla í áliti í augum þjóðarinnar, ef slík vinnubrögð eru viðhöfð, að dembt er nokkrum tugum þingmála og það stórum málum inn á þingið síðustu vikurnar, sem það starfar. Ég held, að það væri skynsamlegt, þegar Alþ. tekur til starfa á nýjan leik eftir næstu kosningar, að stjórnmálaflokkarnir reyndu að koma sér saman um að breyta þessum vinnubrögðum, því að það verður að segjast eins og er, að það er mjög erfitt að ná yfir það að geta lesið það, sem fram er lagt í þingmálum nú, svo að nokkru gagni megi vera, hvað þá að það sé nokkur tími til þess að bera breytingarnar á endurskoðuðum lögum saman við gildandi lög, sem er þó hin mesta nauðsyn. Hér er um mjög alvarlegt mál að ræða, og hv. þm. er ekki sama um, hvernig þeir gangs frá löggjöf eins og t.d. tryggingalöggjöfinni. Þetta er löggjöf, sem snertir mjög mikinn hluta þjóðarinnar og m.a. það fólk í landinu, sem helzt þarf stuðnings við og þm. er ekki sama, hvernig frá því er gengið. Það er líka eftirtektarvert í sambandi við þau frv., sem er verið að fjalla um nú, að framkvæmd þeirra á að bíða til næsta árs og þá eiga að vera möguleikar á því fyrir ríkið að greiða allt það, sem greiða þarf vegna þessarar nýju lagasetningar.
Ég minnist þess í sambandi við tryggingalöggjöfina, að við fjárlagaafgreiðslu haustið 1969 vegna fjárlaga 1970 fluttum við í minni hl. fjvn. till. um það, að fjárveiting til trygginga yrði aukin vegna ellilauna og öryrkja um 75 millj. kr., sem tryggingaráð svo ráðstafaði síðar. Það var talið, að hér væri um hróplegt ábyrgðarleysi af okkar hendi að ræða, sem að þessari till. stóðum, að ofbjóða svo greiðslugetu ríkissjóðs, að við slíkt væri ekki hægt að una og það væri undarlegt, að menn, sem væru búnir að eiga verulega setu á þingi og starfa að fjárlagaafgreiðslu, skyldu láta sér detta slíkt í hug. En þegar Alþfl. hafði fengið sína eftirminnilegu og verðskulduðu útreið í borgarstjórnarkosningunum hér í Reykjavík, þá voru nógir fjármunir til að hækka tryggingagjöldin um 20%. Að vísu var það of litið miðað við það, sem eðlilegt hefði verið til þess, að tryggingarnar héldu kaupmætti sínum eða héldu í við kauphækkanirnar í landinu, en það sýndi sig, að þá var ekki verið að viðhafa þau raunhæfu vinnubrögð, sem áttu að vera fyrir hendi á hv. Alþ., þegar við í minni hl. fjvn. lögðum til svo sjálfsagða till., sem þá var á ferðinni.
Í sambandi við undirbúning þessa máls vil ég geta þess, að ég tek undir það með einum nm., Guðjóni Hansen tryggingafræðingi, sem hann segir um undirbúning að málinu og hvað hann hefði kosið í þeim efnum og ég tel, að þannig hefði átt að afgreiða þetta mál hér á hv. Alþ. nú, en ekki á þann hátt, að hér sé verið að gera heildarendurskoðun á tryggingalöggjöfinni, því að þannig er ekki að málinu unnið. Guðjón Hansen segir svo, með leyfi hæstv. forseta, í grg. frv. á bls. 33:
„Ég hefði kosið, að endurskoðun nefndarinnar á l. um almannatryggingar hefði verið unnin í tveimur áföngum og hefði í hinum fyrri verið fjallað um þær breytingar, sem brýnust þörf er fyrir, en í síðari áfanga betur vandað til afgreiðslu á ýmsum málum en nefndin hefur gert. Skal á það bent, að endurskoðun sú, sem lauk með setningu l. nr. 40 1963, var unnin í þremur áföngum.
Nefndin hefur engin skil gert veigamiklum málum, sem fjallað hefur verið um. Má þar í fyrsta lagi nefna breytingu á fjölskyldubótakerfinu, sbr. athugasemdir við 26. gr. frv., í öðru lagi nauðsyn breytinga á ákvæðum um gjaldskyldu og lögheimili, annaðhvort með breytingum á almannatryggingalögum eða l. um lögheimili, og í þriðja lagi hugmynd um tryggingadómstól, er með fljótvirkum hætti skapaði bótaþegum réttaröryggi. Enn fremur hefði að mínu áliti mátt vanda betur til tillögugerðar nefndarinnar, ef nefndin hefði haft rýmri tíma.“
Ég tel, að hér sé um hugvekju að ræða, sem er eftirtektarverð og ekki sízt er það, þegar um þetta fjallar maður, sem hefur góð skil á málinu og hefur unnið að því. Ég held líka, að það beri brýna nauðsyn til að taka mál eins og fjölskyldubæturnar til sérstakrar athugunar. Ég hef lengi haft þá skoðun, að það væri rétt að tengja þennan þátt saman við persónufrádrátt til skatts og það væri eðlilegra að reyna að gera þessi mál einfaldari og þannig minni skriffinnsku í kringum þau en nú er gert. Eins og nú er að farið, er eins mikið í kringum framkvæmd á tryggingamálunum gagnvart fjölskyldubótunum og frekast er hægt að hugsa sér. Með því að tengja persónufrádrátt til skatts saman við tryggingabæturnar og hugsa þau mál í einni heild, væri hægt að breyta þessu að minni hyggju á hagkvæman hátt. Ég held líka, að það verði ekki hjá því komizt að taka til athugunar greiðsluhlutfall einstaklinganna miðað við það, sem það er nú, eftir að hækkun trygginganna er orðin eins ör og raun ber hér vitni um. Greiðsluhlutfallinu hefur ekki verið breytt í tryggingalöggjöfinni, en ég tel, að það sé mál, sem þurfi að taka fyrir í sambandi við raunhæfa heildarendurskoðun.
Sama er að segja um sveitarfélögin. Það er ekki hægt að halda áfram á þessari braut án þess að taka þátt þeirra í tryggingakerfinu til sérstakrar athugunar. Mér hefur borizt bréf frá stjórn og framkvæmdastjóra Sambands ísl. sveitarfélaga um þessi atriði, og þar benda þeir m.a. á, að það sé óeðlilegt, að þegar fjallað sé um mál eins og þetta, þá skuli enginn maður vera frá Sambandi ísl. sveitarfélaga í þeirri nefnd, sem undirbýr málið. Það var ekki gert, og þeir segja í þessu bréfi, sem er frá 25. marz, svo m.a., með leyfi hæstv. forseta:
„Ekki var Sambandi ísl. sveitarfélaga gefinn kostur á að eiga aðild að endurskoðun laganna eða að tilnefna fulltrúa í endurskoðunarnefndina, en sambandið hefur árum saman óskað eftir því, að höfð yrðu samráð við samtök sveitarfélaganna, þegar undirbúnar væru breytingar á almannatryggingalöggjöfinni, svo mjög sem hún snertir öll sveitarfélög landsins, þar sem þau eru stór kostnaðarþátttakandi í lífeyris- og sjúkratryggingunum.“
Ég vil vekja alveg sérstaka athygli á þessu, að mér finnst það eðlilegt, að slíkum heildarsamtökum eins og samtökum sveitarfélaganna, sem eru nú orðin allsherjarsamtök fyrir sveitarfélögin í landinu og hafa unnið vel og dyggilega að þeirra málum, sé gefinn kostur á því að tilnefna mann í nefnd, sem endurskoðar þessa löggjöf, og yfirleitt eðlilegt, að þeim sé gefinn kostur á að tilnefna fulltrúa í málaflokka, er þá varða sérstaklega.
Þá vil ég benda á það, að í þessu bréfi benda þeir á það, að það sé í raun og veru ekki hægt að ætlast til þess, að sveitarfélögin greiði hærri fjárhæðir í peningum til trygginganna en þau gera nú. Þau hafa ekki fjárhagslega getu til þess, þar sem mörg sveitarfélög hafi orðið að nota allan útsvarsstigann og aðra tekjumöguleika og 20% álag þar á ofan. Þetta styður að því, að í endurskoðun á löggjöfinni í heild um almannatryggingar beri brýna nauðsyn til að taka þennan þátt sérstaklega fyrir og gefa sveitarfélögunum kost á að vera þar með. Þá vil ég í þessu sambandi vekja athygli á því, sem er í samræmi við það, sem ég sagði um vinnubrögð hæstv. ríkisstj. við afgreiðslu á þingmálum eða lagasetningu fyrir síðustu alþingiskosningar, að gildistaka þessara l. er miðuð við 1. jan. 1972. Þá verða til fjármunir að dómi núv. valdhafa til þess að standa undir þeim greiðslum, sem ríkissjóður þarf að leggja þá fram og þeir, sem eiga trygginganna að njóta, þurfa ekki á því að halda að þeirra dómi fyrr en 1. jan. 1972.
Nú er það kunnara en frá þurfi að segja, að í l. um verðstöðvun er gert ráð fyrir því, að þau gildi aðeins til 1. sept. Einn af þm. Sjálfstfl., hv. 10. þm. Reykv., taldi, að sú hugsun væri hrollvekjandi, hvað við tæki eftir 1. sept. Þrátt fyrir það er ekki talið, að það þurfi að þeim að huga, sem ekki hafi þó nema 4900 kr. tekjur á mánuði, eins og þeir hafa nú, er lifa af elli- og örorkulífeyri. Þess vegna er það í samræmi við annað, að hæstv. ríkisstj. ætlar þessu frv. að vera auglýsingaspjöld fyrir sig og sitt lið, en hins vegar á ekki að þurfa um það að hugsa fyrr en um næstu áramót, hvernig fyrir málum verði séð. Það gefur auga leið, að það verður þungt í skauti hjá þeim, sem búa við 4900 kr. tekjurnar á mánuði, þegar skriðan fer aftur af stað eftir 1. sept., en þá er ekki gert ráð fyrir neinum tekjum hjá ríkissjóði til þess að halda þeim niðurgreiðslum áfram, sem upp voru teknar í haust. Þess vegna er þetta mál hugsað eins og verðstöðvunarmálið — sýndarmennska, sem þarf að nota fram yfir kosningarnar, en það raunhæfa á ekki að sýna sig fyrr en að þeim liðnum.
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að elli- og örorkulaun eru orðin mjög fráleit hér á landi og hafa farið árversnandi, jafnvel þó að á þessu ári hafi verið gert í því að reyna að rétta þau af. Meðal þeirra atriða, sem hafa haft veruleg áhrif á afkomu þess fólks, er á elli- og örorkulaunum þarf að lifa, er sú breyting, sem hæstv. ríkisstj. hefur gert á tekjustofnum þeim, er ríkissjóður sækir nú tekjur sínar til. Eins og áður hefur verið á bent, þá hefur sú breyting orðið þannig, að tekjur af söluskatti hafa hækkað nærri um 20% frá því 1960, en tollarnir hafa hins vegar lækkað um meira en þessu nemur. Og það, sem er svo eftirtektarverðast í því, er að tollalækkunin á sér fyrst og fremst stað á þeim vörum, sem þeir kaupa, sem meiri hafa fjármuni á milli handa en hinir, sem litla fjármuni hafa. Þess vegna er það svo, að þó að ellilaun hafi hækkað í krónum, þá hefur notagildi þeirra rýrnað m.a. vegna þessarar ráðstöfunar. Þá var það líka eftirtektarvert síðast í gær, þegar verið var að fjalla hér um skattamál, að þrátt fyrir það, að nokkuð hafi áunnizt í því, að frádráttur hjá þeim, sem njóta ellilauna, væri aukinn, þá var samt ekki hægt að komast það langt, að ellilaunin væru undanþegin skatti. Það hefði ekki verið óeðlilegt, þó að það hefði verið gert, og hafa, að því er ég bezt veit, mörg sveitarfélög landsins ekki leyft sér að leggja á ellilaun eða örorku. Þess vegna fannst mér, að þegar hæstv. ríkisstj. lét undan í þessu máli, þá hefði hún gjarnan mátt vera það stórstíg, að upphæðin, sem frá var dregin, væri sú sama og ellilaunin.
Um þessa breytingu, sem gerð er nú á ellilaununum og örorkubótunum, er það að segja, að hér er um 1000 kr. að ræða eða tæplega það á mánuði. Það hefði verið mikill munur, ef þessi laun hefðu verið tengd almennu kaupgjaldi og kaupgjaldsvísitölu í landinu, þannig að þau hefðu breytzt sjálfkrafa, um leið og kaupgjaldsvísitalan hefði breytzt. En þessu er nú ekki til að dreifa, heldur er nú aðeins farið inn á þá leið, að ef kaupgjald hækkar í fiskvinnu, þá getur tryggingaráð samþykkt að hækka ellilaunin og örorkubæturnar, en það tekur þó ekki gildi fyrr en að 6 mánuðum liðnum frá því, að þessi kauphækkun átti sér stað. Hér er lítið að gert af hálfu hæstv. ríkisstj., að þeir launþegar, sem minnsta hafa möguleikana, eiga að vera 6 mánuði á eftir hinum með bætur á sínum launakjörum, ef tryggingaráð þá samþykkir það.
Annað atriði er svo í þessu frv., sem er að minni hyggju fráleitt. Eitt af því, sem hefur verið talað um í sambandi við tryggingalöggjöfina, er það, að hún bæri ekki svip þess að vera skyld framfærslu- eða fátækrastyrk, eins og hann var áður þekktur. M.a. hefur af þeim sökum ekki verið talið fært að haga fjölskyldubótunum þannig, að tekið væri tillit til tekna. Ég hef litið svo á, að það skipti menn með eitt barn á framfæri og góðar tekjur hverfandi litlu máli, hvort þeir hefðu þessa aura eða ekki, þó að ég hins vegar viti, að þetta getur haft áhrif — ekki sízt fyrir unga fólkið, sem er með sitt fyrsta barn, því að það er oft allt önnur aðstaða hjá því en hjá hinum, sem eru með síðasta barn sitt, en ástæðan til þess, að það hefur ekki verið talið fært að miða þarna neitt við tekjur, er sú, að það hefur þá verið talið bera keim af einhvers konar framfærslu- eða sveitarstyrk.
Í þessu frv. er gert ráð fyrir því, að lágmark ellilífeyris samkv. 11. gr. verði 70 560 kr., en þó skuli enginn hafa lægri tekjur en 84 þús. kr., sbr. 19. gr., ef hlutaðeigandi aðili hefur ekki meiri tekjur en ellilaununum nemur, þá á að bæta það upp í 84 þús. kr. Nú er það um þessa hækkun að segja, að í fyrsta lagi vil ég segja það, að mér finnst það réttmætt, að ellilaun þeirra og örorkubætur, sem ekki hafa aðrar tekjur, séu hærri en hinna, sem t.d. hafa veruleg eftirlaun úr lífeyrissjóðum eða tekjur af eignum, þannig að þeir hafi verulegar tekjur. Og mér finnst, að sú stefna sé rétt, a.m.k. meðan ekki er talið, að hægt sé að hafa ellilaunin með þeim hætti, að þau séu a.m.k. lágmarkslaun. En ég tel í því sambandi, að ef viðkomandi aðili hefur ekki aðrar tekjur, þá verði að miða ellilaunin og örorkulaunin við lágmarkstekjur til að lifa af. Og það lifir enginn einstaklingur á 84 þús. kr. Það er gersamlega útilokað. Fólk, sem dvelur á dvalarheimilum aldraðra og greiðir þau gjöld, sem nú eru ákveðin, greiðir 126 þús. kr. á ári. Þetta er þó miðað við það, að fólkið búi saman, tvennt eða þrennt í herbergi. Ef þetta eru hins vegar eins manns herbergi, er um meiri fjárhæð að ræða. Þess vegna er útilokað, að þetta fólk geti með þessum ellilaunum komizt nema í 2/3 af því, sem það þarf að greiða með sér. Þá er eftir að sjá fyrir meðalakostnaði, fatnaði og ýmsum smáhlutum öðrum, sem hverjum einstaklingi eru nauðsynlegir. Þess vegna finnst mér, að þessi hækkun sé svo hverfandi lítil fyrir þá, sem hafa eftirlaunin og enga aðra möguleika, að það sé næstum furðulegt, að fyrst farið var inn á þetta atriði á annað borð, þá skuli þetta vera eins raunalega lágt og hér er lagt til.
En annað atriði er þó í þessu, sem verkar enn þá verr á mig, og það er það, að þetta er sett upp eins og sveitarframfærsla. Af hækkunum, þessum 14 þús. kr., sem þarna á að bæta við, eru 60% greidd af tryggingunum, en hinn hlutinn af sveitarstjórnunum, og það segir svo í 19. gr., með leyfi hæstv. forseta:
„Tryggingastofnunin ákveður uppbót samkv. gr. þessari að fengnum till. sveitarstjórnar, og greiðist hún að 3/5 af Tryggingastofnuninni, en að 2/5 af sveitarsjóði.“
Hér er algerlega verið að setja þetta upp sem fátækraframfærslukerfi. Það er verið að styðja það fólk, sem ekki hefur möguleika á öðrum tekjum með þeim hætti, að það er alveg fátækraframfærslusnið á því. Og það verkar þannig á mig, að ég get ekki sætt mig við, að það sé réttmætt, að á sama tíma greiði Tryggingastofnunin manni eins og mér, sem á eitt barn innan við 16 ára aldur, 8 þús. kr. vegna þessa barns, en að svo verði að fara í sveitarsjóðinn, ef á að greiða fólki, sem ekki hefur neina aðra tekjumöguleika til að framfleyta sér en ellilaunin. Ég hef ekki tilfinningu né smekk fyrir svona afgreiðslu. Ég uni því ekki, að þannig sé að þeirri kynslóð búið, er nú nýtur ellilauna og meira hefur lagt fram til að skapa nútímaþjóðfélag en nokkur önnur kynslóð áður fyrr. Kynslóð þessi hefur haft metnað til að fara leiðina frá fátækt til bjargálna. Ég uni því ekki, að hún eigi að fara á fátækraframfærslu í ellinni. Hv. Alþ. á ekki að samþykkja það, þó að hæstv. ríkisstj. hafi hugsað sér það. Hér er mikill galli á, og ég harma það mjög, að þetta skuli vera þannig í þessari endurskoðun.
Þó segja Alþfl.-menn, að nú sé brotið blað í tryggingamálunum. Ég verð nú að segja það, að ég átta mig ekki á því, hvaða undur eða stórmerki gerast með þessari endurskoðun annað en þetta, enda er það ljóst, að til hennar hefur ekki verið gefinn sá tími, sem nauðsyn bar til, að þyrfti í svo veigamikla löggjöf sem þessi er, eins og fram kemur í því, sem ég las hér upp áðan. En ég verð að endurtaka það, að ég harma þessa grein, eins og hún er hér upp sett, og mér finnst, að það væri nær að hverfa einmitt að því að fjarlægjast þetta mark, sem var áður í eldri löggjöfinni um það, að þegar um sjúklinga, sem dvöldu á heilsuhæli eða dvalarheimili, er að ræða, þá mætti tvöfalda ellilífeyrinn með þeim hætti, að sveitarfélögin veiti 40%, en ef á að fara inn á þetta vegna þess, að tekjur eru ekki meiri en til þess að bæta upp lágmarkstekjur, þá er þetta orðin alger framfærsla, og það hefði verið nær, að breyta hinu en bæta þessu við. Ég hlýt að spyrja í sambandi við það, að lögin eiga ekki að taka gildi fyrr en 1. jan. 1972: Hver verður kaupmáttur ellilaunanna þá? Ef t.d. það sama gerist haustið 1971 og gerðist haustið 1967 eftir kosningarnar með gengisbreytingunni og með því að hætta að greiða niður allt. Hv. þm. muna, hvað þá gerðist. Ef núv. valdhafar héldu völdunum áfram, þá eru allar líkur til, að það yrði eitthvað í svipuðum dúr, því að það sjást engin merki til þess, að það sé nein breyting á. Hver yrði þá kaupmáttur ellilaunanna? Mundi þá 1000 kr. hækkunin á mánuði nægja til þess að halda í við það, sem nú er. Ég er ekki alveg viss um það, þó að ég geti ekki fullyrt um það. Mér er þó nær að halda, að hækkun ellilaunanna muni ekki gera betur en að mæta þeirri hækkunarskriðu.
Í sambandi við það ákvæði frv. að hækka barnalífeyrinn um 40% þá tel ég það mjög til bóta, og með kaflanum um ekkjubætur er að minni hyggju stefnt mjög í rétta átt. Það, sem mér finnst hins vegar skorta á í þessu tilfelli, er, að einstæðir feður og einstæðar mæður skuli ekki sitja við sama borð, og það, að einstæðir feður séu álitnir hafa betri aðstöðu til þess að koma börnum sínum áfram en einstæðar mæður er fráleitt. Í því sambandi langar mig til þess að geta þess, að eitt sinn í haust, er ég var að fara á milli Reykjavíkur og Borgarness og hafði útvarpið í bilnum mínum opið og hlustaði á það með öðru eyranu og vel það, þá var þar þáttur, sem heitir A, B, C, og þar voru þessi atriði tekin til meðferðar. Þar var verið að ræða um það, af hverju hlutur karlmannsins væri gerður miklu verri en hlutur konunnar, ef einstæður væri. Niðurstaða þeirra, sem tóku þátt í þessum þætti, var sú, að þetta byggðist á því, að konan væri álitin það mikið minna virði en karlmaðurinn, að það væri ekki talin ástæða til að styðja þá sem einstæðinga í þessu tilfelli eins og kvenmanninn. Það munaði miklu minna um það, þó að konan félli frá. Ég vil ekki taka þátt í því að undirstrika, að þetta viðhorf sé til hjá hv. alþm. Ég tel, að þessara launa eigi einstæðir feður og einstæðar mæður að njóta jafnt, að karlar og konur eigi að sitja við sama borð, hvað foreldralaununum viðvíkur. Það er ekki eðlilegt að mismuna eins og hér er gert, þ.e. að það eigi að greiða konunni mæðralaun, en karlmaðurinn, sem er einstæður, nýtur þar engrar greiðslu vegna barns síns. Ég átta mig ekki á því og vildi gjarnan fá skýringu á því, hvers vegna mönnum dettur í hug, að þetta geti verið svona. Ég hef ekki fundið nein rök fyrir því og ekki heyrt þau heldur og vildi gjarnan heyra það, ef til eru einhver rök fyrir því, á hverju slík ákvörðun er byggð. Mér finnst hún mjög fráleit og eigi ekki að hljóta lagagildi.
Eitt atriði til viðbótar í þessu frv., sem ég vildi drepa á, er, að fjölskyldubætur með barni nái upp að 17 ára aldri, og svo hitt, að tryggingagjöld þegar barnið greiðir til almannatrygginga — taki ekki gildi, fyrr en það er orðið 17 ára í staðinn fyrir 16 ára aldur áður. Nú er það svo, að fyrir unglinga í námi, sem flestir unglingar eru í á þessum aldri, þá er þetta veruleg fjárhæð, sem þau þurfa þarna að greiða, og ég hefði nú talið eðlilegra, að þetta væri fært til 18 ára aldurs, þó að þetta sé hins vegar spor í rétta átt. Hins vegar er gert ráð fyrir því, að sjúkrasamlagsgjaldið greiði börn við I6 ára aldur. Ég hefði talið eðlilegt, að þetta hefði fylgzt að, en ekki væri verið að mismuna, eins og hér er lagt til.
Einn kafli í frv., sem fjallaði um sjúkrasamlögin og skipun þeirra í framtíðinni, hefur nú tekið breytingu í hv. Ed. og kemur þess vegna ekki til framkvæmda strax. Um þennan þátt vil ég segja það, að ég held, að það sé rétt að athuga þetta mál gaumgæfilega. Sum hin minni samlög eru það veigalítil, að þau þola ekki það álag, sem einn eða fleiri sjúklingar gætu á þau lagt, og það gæti riðið fjárhag þeirra að fullu. Þegar þannig er komið eins og nú, að rúm á spítala eins og Landsspítalanum kostar yfir árið rúma milljón, þarf nokkuð til að standa undir greiðslum í sambandi við sjúklinga, sem dvelja þar um nokkurn tíma. Auk þess tel ég, að héraðssamlögin og hreppasamlögin hafi ekki fallið eðlilega saman, svo að starfsemi þessara tveggja samlaga muni ekki eiga sér framtíð. Ég held, að það sé ljóst, að það þarf að gera breytingu þar á. Hins vegar er það svo með þessa breytingu sem aðrar, að það getur orkað tvímælis, hvernig hana á að gera. Í frv. var lagt til, að sýslufélögin yrðu þær einingar, sem á væri byggt. Nú er það um þau að segja, að hlutverk þeirra áður fyrr og hlutverk þeirra nú er orðið verulega ólíkt, og að mörgu leyti lit ég svo á, að hlutverk sýslufélaganna eða þáttur þeirra í starfsemi héraðanna sé orðinn margfalt minni en hann var og fari minnkandi og sjúkrasamlög, sem væru tengd sýslufélögunum, falli alls ekki saman við það, sem hentar bezt í sambandi við sjúkrasamlögin.
Ég tel, að breytingin, sem ætti að gera á þessu, sé langeðlilegust þannig, að sjúkrasamlögin séu bundin við læknishéruðin. T.d. ef ég tek það svæði, sem ég þekki bezt til, þ.e. Vesturlandskjördæmi, þá getur þetta farið saman eins og í Dalasýslu. Dalasýsla er eitt læknishérað, og aðsetur sjúkrasamlagsins mundi verða í Búðardal, ef það væri eitt í sýslunni eða eitt í læknishéraðinu. Þar fer þetta nákvæmlega saman. Það mundi verða með aðsetur í Búðardal og það næði yfir alla sýsluna hvor leiðin, sem farin væri. Sé hins vegar litið á Snæfellsnessýslu, þá er hún þrjú læknishéruð eða hluti úr þremur, tvö heil og hluti úr því þriðja. Þar yrði aðsetrið í Stykkishólmi, og það hentaði fyrir Stykkishólmslæknishérað. Aftur hentaði miklu betur fyrir Ólafsvíkurlæknishérað, að það væri sjálfstæð eining sem sjúkrasamlag, og í þriðja lagi eru svo tveir syðstu hreppar Snæfellsnessýslu í Borgarneslæknishéraði. Það færi mjög illa á því, að sækja yrði viðskipti vegna sjúkrasamlags alla leið vestur í Stykkishólm eins og yrði, ef að yrði farið, eins og hér var lagt til, að sýslurnar yrðu eitt læknishérað. Um Mýra- og Borgarfjarðarsýslur er svo það að segja, að Borgarnes er læknishérað fyrir hluta af Mýrasýslu ásamt hluta af Snæfellsnessýslu, en Kleppjárnsreykir eru aftur fyrir hluta af Mýrasýslu og hluta af Borgarfjarðarsýslu.
Nú geri ég ráð fyrir því, að með hinni nýju læknamiðstöð, sem á að fara að byggja í Borgarnesi, verði aðsetur Borgarneslæknishéraðs í Borgarnesi. Kleppjárnsreykir eru aftur aðsetur læknishéraðs fyrir sveitirnar innan Skarðsheiðar. Sveitirnar sunnan heiðar tilheyra Borgarfjarðarsýslu og mundu verða með, ef héraðssamlagið næði yfir Borgarfjarðarsýslu. Þær eru í læknishéraði með Akranesi, og það væri til óþæginda fyrir þær sveitir að sækja sín viðskipti til Borgarness í þessu tilfelli, þar sem Akranes hentar þeim miklu betur, því að þær eiga sín verzlunarviðskipti við Akranes. Það er þess vegna miklu hentugra, að einmitt viðskiptasvæðin fari saman við læknishéruðin og þau séu grundvöllurinn að þeim breytingum, sem síðar kynnu að verða gerðar á sjúkrasamlögunum. Enn fremur held ég, að með þeirri skipan mála mundi það styrkja þá framkvæmd, sem nú er stefnt að, þ.e. að byggja upp læknamiðstöð fyrir stærri svæði. Þá færi einmitt bezt á því, að sjúkrasamlögin kæmu þar með, því að með þeim hætti væri líka hægt að hagnýta þessa samstöðu til þess að gera þeim léttara í sambandi við ferðalög og fleira, sem langt eiga að sækja.
Ég vildi því mjög beina því til þeirra manna, sem um þessi mál fjalla, að taka þetta til athugunar, því að hér er um mál að ræða, sem er ekki sama, hvernig með er farið, og það er mjög fráleitt að minni hyggju, þegar á að fara að breyta um og að nokkru leyti er um nýjung að ræða, ef það á að byggjast á úreltri skipan, sem að nokkru leyti a.m.k. hefur gengið sér til húðar og hentar alls ekki í þessum tilfellum, eins og ég hef þegar sýnt fram á, því að það er ekki eðlilegt, að sýslufundur t.d. Mýrasýslu sé að kjósa í sjúkrasamlagsstjórn fyrir hluta af Snæfellsnessýslu; það er ekki eðlilegt. Og þess vegna finnst mér, að það eigi að taka þetta mjög til athugunar.
Ég skal nú, herra forseti, fara að ljúka máli mínu. Hér er um mikið og merkilegt mál að ræða, sem er almennur vilji þm., að sem bezt takist til um löggjöf og framkvæmd á, og ég endurtek það, sem ég sagði hér í upphafi, að miklu hyggilegra hefði verið að gefa sér lengri tíma til þess að halda áfram við hluta af endurskoðuninni á löggjöfinni, en taka aðeins það nú, sem brýna nauðsyn bar til eins og elli- og örorkulífeyrinn, mæðralaunin og slíkt, til meðferðar á þessu þingi, og láta aðra þætti vera í áframhaldandi endurskoðun. Það leynir sér ekki, að ástæðan til þess, að þetta mál er nú keyrt áfram, er einn þáttur í sýndarmennsku hæstv. ríkisstj., og viðleitni hennar til að auglýsa upp ágæti sitt, jafnvel þó að það sé ekki nema í sýndarformi á þessu stigi. Það, sem mestu máli skiptir þó, er það, að áfram verði haldið því verki að endurskoða þessa löggjöf og sníða af henni þá agnúa, sem á henni eru og gera hana heilsteyptari og sterkari til að þjóna þeim tilgangi, sem henni er ætlað að þjóna.