30.11.1970
Efri deild: 23. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í B-deild Alþingistíðinda. (164)

24. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Frsm. (Steinþór Gestsson):

Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir til umr., hefur legið fyrir landbn., og hefur n. rætt það á nokkrum fundum sínum og orðið sammála um að mæla með samþykkt þess. Eins og fram hefur komið við umr. um frv. til l. um Lífeyrissjóð bænda, er þetta frv. eins konar fylgifrv. með því, þar sem stofnlánadeildinni er ætlað að vera í föstum tengslum við Lífeyrissjóðinn og hafa við hann nokkrar skyldur, en að öðru leyti má segja, að efnisatriði þessa frv. séu tvíþætt. Annars vegar er það, að það gjald, sem bændur hafa greitt til stofnlánadeildarinnar, verði fellt niður í áföngum, þannig að það falli niður á 20 ára bili. Hitt efnisatriði frv. er í því fólgið, að stofnlánadeildinni er gert með þessu frv. að greiða hluta af þeim lífeyrissjóðsgreiðslum, sem aldraðir bændur eiga að búa við eftir því frv., sem við höfum nýlega afgreitt frá þessari n., sem sé frv. um Lífeyrissjóð bænda. Og eins og fram kom, þegar þetta frv. var lagt fyrir hér í hv. d., var það tekið fram, að samkomulag hefði orðið um það milli ráðamanna Stéttarsambands bænda, landbrn. og stofnlánadeildarinnar, að þannig skyldi hagað málum, eins og hér er gert ráð fyrir í þessu frv.

Áætlanir hafa að sjálfsögðu verið gerðar um, hvernig þetta frv. verkar á hag stofnlánadeildarinnar, en það verður að segjast, eins og ég tók fram við 2. umr. um frv. til l. um Lífeyrissjóðinn, að það er nokkuð erfitt að gera ákveðna áætlun um, hversu stór sá hlutur er, sem stofnlánadeildin þarf að taka á sig vegna Lífeyrissjóðsins. Ég gat um það þá — og það munu menn vera yfirleitt sammála um, að sé rétt — að meðalaldur bænda á Íslandi er hár. Hins vegar er ekki hægt að segja um það á þessu stigi, hversu margir þeir menn verða, sem munu sækja um að fá greiðslu úr lífeyrissjóði nú þegar. En vegna þess að meðalaldur bændanna er hár, má ætla, að tala þeirra vaxi mjög ört, þegar þeir fá að kynnast því, hverra hlunninda þeir geta notið í gegnum Lífeyrissjóðinn. Eins og ég sagði áðan, er erfitt að meta þetta til fulls, hversu þessar greiðslur verða miklar, sem stofnlánadeildin þarf að taka á sig af þessum sökum, og ég tel, að það sé því miklu vænlegra, að reynslan fái að skera úr um þetta efni, og það er ekki að efa, að hægt verður að koma fram breytingum í þessu efni, ef ástæða sýnist vera til og það kæmi í ljós t. d., að óhætt væri og unnt að fella þessar greiðslur til stofnlánadeildarinnar hraðar niður en gert er ráð fyrir í þessum lögum. Eins og nál. landbn. á þskj. 194 ber með sér, höfðu einstakir nm. áskilið sér rétt til þess að flytja og fylgja brtt. við frv. Á þskj. 197 eru fram komnar brtt. frá Ásgeiri Bjarnasyni og Páli Þorsteinssyni við þetta frv., sem gera fyrst og fremst ráð fyrir því, að gjald bændanna til stofnlánadeildarinnar falli hraðar niður en frv. gerir ráð fyrir. Í öðru lagi er gert ráð fyrir breytingu í sambandi við mótgreiðslur til deildarinnar, þannig að það verði árlegt framlag ríkissjóðs, sem komi þar til. Ég vil taka það fram, að ég get ekki tekið undir þessar brtt., og ég legg til, að þær verði ekki samþykktar. Þessar brtt. höfðu ekki verið formaðar fyrir landbn., á meðan við ræddum frv., svo að ég get ekki mælt fyrir munn n. allrar um þetta. Hins vegar hygg ég, að meiri hl. n. sé þeirrar skoðunar, að þær athuganir hafi verið gerðar í sambandi við hag stofnlánadeildarinnar, þegar þetta frv. var samið, að viðsjárvert sé á þessu stigi málsins að breyta út frá því, sem fram er sett í frv. Ég legg því eindregið til, að frv. verði samþ. óbreytt, og sé svo ekki ástæðu til þess að hafa fleiri orð um þetta málefni að svo komnu máli.