18.03.1971
Efri deild: 67. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1659 í B-deild Alþingistíðinda. (1680)

266. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð í tilefni af þeim tveimur ræðum, sem hér hafa verið fluttar. Hv. 11. þm. Reykv. vék að því hér, sem hann hefur gert áður, að hann teldi, að spariskírteinin ættu að vera framtalsskyld. Út af fyrir sig er vel hægt að fallast á þetta, að það væri æskilegt, en ég hygg, að það sé ekki þetta, sem skapar skatteftirlitinu mesta erfiðleika, heldur miklu fremur hitt, að sparifé er ekki framtalsskylt. Og þar er að sjálfsögðu um að ræða geysilegar fjárhæðir, þannig að spariskírteinin út af fyrir sig eru smámunir við hliðina á því fé, sem þar er um að ræða, og það sem ég átti við í orðum mínum áðan þegar ég ræddi um það, að ég teldi nauðsynlegt að taka til heildarathugunar skattlagningar á hin ýmsu sparnaðarform, þá átti ég í rauninni ekki hvað sízt við þessi atriði, sem hv. þm. kom að, þ.e.a.s. framtalsskylduna. Ég vil taka það alveg skýrt fram, að ég álít, a.m.k. meðan óstöðugleiki er svo sem verið hefur í okkar efnahagskerfi, að það sé fráleitt með öllu að skattleggja sparifé. Ég vil taka af allan vafa um það, að ekki hvarflar að mér að leggja það til. Hins vegar gæti komið til greina í sambandi við þessi mál, og þá m.a. með hliðsjón af þeim lögum, sem hv. þm. gat um og voru vissulega rétt, að til þess að auðvelda skattaeftirlit, þá væri bæði sparifé og skuldabréf öll og þessi spariskírteini einnig framtalsskyld. Það er það, sem ég fyrst og fremst átti við, og á það auðvitað ekki að fela í sér neina sérstaka kvöð fyrir þá, sem eiga þessi verðmæti.

Hv. þm. spurði um það, hvernig stæði á, að gert væri ráð fyrir svo lágri upphæð frá bönkunum eins og gert er í áætluninni. Það er dálítið svipað og var á s.l. ári, sem hann einnig benti á, að þá varð sparnaður frá bönkunum, þá varð framlagið frá bönkunum mun hærra heldur en gert var ráð fyrir í áætluninni og taldi hann að sú hækkun mundi geta — eða hann varpaði fram þeirri hugmynd, hvort sú hækkun gæti ekki gert það mögulegt að sleppa alveg bönkunum við að leggja fram til framkvæmdaáætlunar. Nú skal ég ekkert fullyrða um þetta atriði, það er ekki sérstaklega á mínum vegum heldur Framkvæmdasjóðs, sem hefur sérstaka þingkjörna stjórn til að segja til um fjáröflun til þessa sjóðs. En ég vil aðeins vekja athygli á því, að þar sem talað er um í skýrslunni, að Framkvæmdasjóðurinn hafi getað bætt stöðu sína, þá er um það að ræða, að Framkvæmdasjóðurinn stóð mjög tæpt fjárhagslega á s.l. ári, innborganir til sjóðsins og innheimtur reyndust mun minni heldur en gert hafði verið ráð fyrir, enda halli þá á áætlun sjóðsins, þannig að það varð að nota þetta fé að verulegum hluta til, þó að það reyndist fara þetta mikið fram úr áætlun, eins og hv. þm. gat réttilega um. Og ég vil upplýsa það nú, að miðað við þá áætlun, sem nú er lögð til grundvallar hjá Framkvæmdasjóði, þá mun vera 30 millj. kr. halli á þeirri áætlun, sem ekki hefur verið brúaður enn, og jafnframt, eins og ég gat um, þá er enn þá óleyst viss fjárþörf tiltekinna framkvæmdasjóða, og nefndi ég þar sérstaklega stofnlánadeild landbúnaðarins og veðdeild Búnaðarbankans. Þar er um allverulegar fjárhæðir að ræða, þannig að ég tel ekki mjög sennilegt, að það sé hægt. Hins vegar tel ég það vafalaust, að Framkvæmdasjóður taki upp viðræður við bankakerfið um þetta mál, svo sem verið hefur undanfarin ár, og er þá að sjálfsögðu þar vettvangur til að ræða þar um þessa hlið málsins, miðstjórn Framkvæmdasjóðsins.

Mér þótti ánægjulegt að heyra yfirlýsingar hv. þm. um það, að hann teldi að verkefni þau, sem valin væru í framkvæmdaáætluninni, væru þess eðlis, að hann gæti ekki séð neinn möguleika til þess að fella neitt af þeim niður. Ég held líka, það er búið að kanna það fram og aftur, að þarna séu valin þau brýnustu verkefni, sem um er að ræða, þó auðvitað eins og hann sagði sé alltaf ótal margt, sem menn gætu hugsað sér að gera og æskilegt væri að koma í kring. En það sjónarmið hefur verið haft eins og undanfarin ár við framkvæmdaáætlunina að taka þan verkefni, sem hverju sinni hefur verið óumflýjanlegt að okkar mati í ríkisstj. að sinna, og þykir mér vænt um, að það skuli hafa bærilega tekizt eftir þessum orðum hv. þm., enda hefur í sannleika sagt sem betur fer ekki verið um það deila á undanförnum þingum. Og ég legg áherzlu á það, að einmitt af þessum ástæðum, þá eru ekki tök á því að bæta við þessi verkefni, þó að menn kunni að hafa eitthvað annað, sem þeir vildu þarna taka, og ég skal játa, að sjálfur hefði ég vel getað hugsað mér eitt og annað, sem æskilegt væri að sinna. En með hliðsjón af því, sem hv. 3. þm. Vestf. sagði og sem ég er honum algerlega sammála um, þá verður að fara með varfærni í það, hvað sett er á framkvæmdaáætlunina og fjármagnað með lánum. Það er alveg rétt. Það er fyrst og fremst það, sem fjármagna á með lánum, sem um er að ræða, fjáröflun til framkvæmda, sem eiga að standa undir sér, sínum tilkostnaði eða framkvæmdir, sem gert er ráð fyrir, að lánað sé til annarra aðila og þeir eiga að endurgreiða, en ég skal fúslega fallast á það sjónarmið, að þar sem eru beinar fjárveitingar úr ríkissjóði til framkvæmda, sem eru varanlegar, ef svo má segja, við skulum segja til skóla, hafna og vega og annarra slíkra framkvæmda, sem er stöðugt viðfangsefni, að þá er það naumast gerlegt, nema um sé að ræða, eins og hann sagði, einhver stórverkefni, sem þarf að leysa með einu átaki og væri þá dregið úr slíkum framkvæmdum heldur aftur næstu árin á meðan allt kapp væri lagt á að endurgreiða þessar fjárhæðir.

Varðandi rannsóknastofnanir atvinnuveganna skýrði hann alveg réttilega frá því, að fyrir nokkrum árum var rannsóknastarfseminni afhentur sá hluti af hagnaði Happdrættis háskólans, sem rennur til ríkissjóðs, og hefur það síðan runnið til byggingarframkvæmdanna, m.a. til að standa undir lánum, og sannleikurinn er sá, að það fé var ekki meira en svo, að ef átti að gera talsverð átök, sem gerð hafa verið og sem hann réttilega gat um, þá var það með engu móti hægt, án þess að til kæmu stórfelldar lántökur, sem enda einnig rannsóknaráðið mælti með á sínum tíma, t.d. í sambandi við Rannsóknastofnun landbúnaðarins. Og það er auðvitað rétt, að það gengur smám saman á það fé, sem verður til árlegra framkvæmda meðan verið er að greiða afborganir og vexti. Að sjálfsögðu kemur að því, að það þarf að endurskoða það mál og gera sér grein fyrir því, hvernig áfram verður haldið í næstu áföngum, en til þessa hefur þetta að mínu viti gengið skaplega og tekizt að þoka þarna áfram mjög verulega framkvæmdum, sem ekki hefði verið hægt að gera, ef eingöngu hefði verið stuðzt við þetta sérstaka framlag, þó það hefði ekki verið skert með lánum.

Varðandi flugmálin þá vil ég leiðrétta það hjá hv. þm., að það hefur ekki gengið á framkvæmdafé flugmála, þó það hafi verið tekið lán, vegna þess að framkvæmdafé flugmála hefur hækkað svo á undanförnum árum, að það samsvarar fullkomlega og meira en það þeim afborgunum og vöxtum af lánum, sem tekin hafa verið vegna framkvæmda í flugmálum. Og sama er að segja um landshafnirnar. Til þeirra hefur verið tekið verulegt lán og hafa fjárveitingar til þeirra hækkað að sama skapi.

Að öðru leyti, herra forseti, vil ég ekki lengja þessar umræður. Ég leyfi mér að þakka sérstaklega hv. 11. þm. Reykv. fyrir þau ummæli, að hann muni fyrir sitt leyti greiða fyrir því að þetta frv. geti fengið skjóta meðferð í þessari hv. d., og vil ég því leyfa mér að vænta þess, að svo geti orðið, þannig að það muni fá viðeigandi afgreiðslu í þinginu í tæka tíð.