23.03.1971
Efri deild: 72. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1671 í B-deild Alþingistíðinda. (1687)
266. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar
Steingrímur Hermannsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. málefnalegan stuðning við till. þessa. Hins vegar get ég ekki annað en lýst undrun minni yfir þeim upplýsingum, sem hann veitti um nauðsyn lagaheimildar til þess að framkvæma megi slíkar grundvallarrannsóknir.
Mér er vel kunnugt um fjölmargar grundvallarrannsóknir, sem ég held að hljóti þá að vanta svipaðar lagaheimildir um, eins og t.d. jarðfræðilega leit að hagnýtum málmum. Mér er ekki kunnugt um neinar lagaheimildir, sem skylda ríkið til þess að taka slíkt að sér, enda hygg ég að þessi athugun, sem hér er um að ræða, sé ekkert annað en, ég vil segja, lítilfjörleg viðbót við þær grundvallarrannsóknir, sem fram fara á hverju ári hér á landi og eru vitanlega að vissu leyti undirstaðan fyrir vatnsleit og fjölmargt fleira.
Ég vil einnig benda á það, að fjölmargar beiðnir um leiðbeiningar við vatnsleit hafa einnig komið til Orkustofnunar og þar hefur einn sérfræðingur, Jón Jónsson, jarðfræðingur, reynt af fremsta megni að veita leiðbeiningar, en hefur vitanlega sökum anna við önnur störf, fámennis og tækjaskorts og fleira álls ekki getað sinnt þeim rannsóknum eins og nauðsynlegt er til þess að veruleg not megi verða af. Mér er ekki kunnugt um það, að með þessari starfsemi Jóns Jónssonar hafi hið opinbera tekið á sínar herðar neinar skuldbindingar í þessu efni.
Ég verð að segja það fyrir mitt leyti, að ef sérstök lög eru í raun og veru nauðsynleg til þess að hið opinbera megi framkvæma grundvallarrannsóknir af þessu tagi, þá vil ég eindregið leggja það til að hæstv. ríkisstj. leggi einn lagabálkinn enn fyrir þetta þing og fái það afgreitt. Ég tel, að hér sé um eins mikilvægt mál að ræða, eins og fjölmörg mál önnur, sem nú á að hraða í gegnum þessa þingsali. Ég þarf ekki að endurtaka það, að þetta er eitt af grundvallarmálunum víða um land til þess að frystihúsin, okkar stærsti og þýðingarmesti atvinnuvegur geti framleitt þá vöru, sem fullnægir þeim gæðakröfum, sem gerðar eru af okkar stærsta markaði, Bandaríkjunum, eða munu verða gerðar innan örfárra ára, líklega eins árs, og með aðeins eins til tveggja ára fresti. Það er alveg ljóst, að grundvallarrannsóknir verða að hefjast án tafar, ef að tilætluðum notum eiga að koma.