23.03.1971
Efri deild: 72. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1672 í B-deild Alþingistíðinda. (1688)
266. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Það situr nú ekki á mér að lýsa vantrausti á núv. ríkisstj., en ég held, að það mundi nú kannske vefjast fyrir henni og þykja snöggsoðið, ef ætti nú að fara að snúa sér í það að semja lagabálk til að leggja fyrir þetta þing. Það er vissulega svo, sem hv. 3. þm. Vestf. gat hér um, að Orkustofnun og ýmsir aðilar stunda ýmiss konar grundvallarrannsóknir, það er í sambandi við nám og leit að ýmsum jarðefnum, sbr. saltvatnsrannsóknirnar á Reykjanesi og annað þess konar. En þar er um að ræða yfirleitt rannsóknir, sem snerta ríkið sem slíkt og er eðlilegt, að það hafi með höndum. Hér er um að ræða, eins og mjög greinilega kom fram í hans máli, athuganir til þess að leysa þetta vandamál varðandi ýmis byggðarlög á landinu. Og það mundu að minni hyggju vera ákaflega svipuð lög, sem ættu um það að gilda, eins og um jarðhitarannsóknir. Það verður að setja einhverjar reglur um það, að hve miklu leyti þetta eigi að kosta af sveitarfélögunum hverju fyrir sig, sem hér eiga hlut að máli, — og hann hefur talið mörg þeirra upp og ég er ekki að efast um það, að það sé allt saman rétt og satt — og að hve miklu leyti ríkið eigi að kosta það. Þó að nú hafi einhver sérfræðingur Orkustofnunar haft með höndum athuganir á þessu máli, þá er það starfsemi, sem út af fyrir sig er hin ágætasta og gott og blessað er, ef stofnunin getur innt hana af höndum, en það er þá rekstrarkostnaðarliður, sem þar er um að ræða, en auðvitað er fjarri lagi að ætla að fara að afla til hans fjár með framkvæmdaáætlun. Ég get, og ég endurtek það, að ég get fúslega fallizt á rök hv. þm. fyrir nauðsyn þess að þessu máli verði þokað áleiðis, en það verður áreiðanlega engin bylting gerð með því að fara að hleypa því áleiðis nú, með því að taka inn á framkvæmdaáætlun 1 millj. kr. til að leggja grundvöll að neyzluvatnsrannsóknum þeim, sem varða alla landsbyggðina, og lýsi ég því alveg ákveðið yfir fyrir mitt leyti, að ég mundi ekki telja mér fært að ráðstafa þessu fé, án þess að mörkuð væri einhver stefna um það, hvað Alþ. vildi varðandi neyzluvatnsrannsóknir í framtíðinni og að hve miklu leyti ríkið ætti að standa að þeim rannsóknum og að hve miklu leyti frystihús og sveitarfélög og margir aðrir.