05.04.1971
Neðri deild: 87. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1689 í B-deild Alþingistíðinda. (1707)

266. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Það voru aðeins örfá orð út af ræðu hv. 4. þm. Reykv. Það er alveg rétt, sem hann sagði, að á síðustu framkvæmdaáætlun skorti töluvert á eða líklega um 60 millj. kr., að endar næðu saman, þannig að miðað við það fordæmi þá er það rétt, að hann hafði ástæðu til þess að ætla, að það gæti einnig orðið með þeim hætti nú. Ég skal fúslega játa, að þetta var svo og það má auðvitað með fullgildum rökum segja eins og hv. þm.: Af hverju er þetta ekki hægt í þetta skipti? Og vitanlega er þetta eins hægt í þetta skipti og það var í rauninni jafnfjarri lagi í bæði skiptin. Ég tók það fram í fyrra, að ástæðan til þess, að þetta væri gert þá, stafaði fyrst og fremst af því, að það væri viss stefnumörkun í sambandi við Háskóla Íslands, sem ylli því, að þar voru teknar 30 millj. inn í framkvæmdaáætlun, sem vitað var fyrir fram, að þurfti alls ekki að nota á því ári, og fleiri upphæðir, sem var vitað um að ekki þyrfti að nota. Þá kemur það á daginn eins og hv. þm. sjá, að það eru tæpar 4 millj. kr., ég hygg mig muna það rétt, í framkvæmdaáætluninni, sem eru eftirstöðvar vegna framkvæmdaáætlunar s.l. árs, og þetta hefur stundum verið svo á milli ára, að það hefur verið tekið bráðabirgðalán, sem jafnað hefur verið upp á framkvæmdaáætlun næsta árs. Ég tek, hins vegar það fram, sem ég sagði hér áðan, að við vitum ekkert, um hvaða tölu við erum að tala í sambandi við þær framkvæmdir, sem hv. þm. talaði um og enginn ágreiningur er á milli mín og hans að æskilegt sé að vinna að, og ég ítreka það, sem ég sagði þá, að ég tel ekki hægt að ákveða neina sérstaka tölu í því efni nú, en hins vegar er það staðfastur ásetningur ríkisstj., þegar fyrir liggja nákvæmari áætlanir um, hvaða þarfir er þar um að ræða, að sjá fyrir fé í því efni og það er auðvitað eins hægt að gera með bráðabirgðaláni, sem veitt yrði lántökuheimild fyrir á næsta ári, eins og hefur áður verið gert og eins og er t.d. gert hér í áætluninni nú, eins og þó að það væri tekin sérstök fjárveiting nú, sem við höfum ekki hugmynd um, hvað ætti að vera stór. Þess vegna álít ég ekki eðlilegt að meðhöndla þetta mál með þessum hætti, heldur eigi ganga út frá því, sem ég tel vel geta komið til greina, ef fjárhagur ríkissjóðs leyfir það, að það verði beinlínis greitt úr ríkissjóði, þar sem hér er um áframhaldandi rannsóknir að ræða, ef þarf á þessu ári fjárveitingar í því skyni, sem hv. þm. talaði um og sem hæstv. forsrh. vék að í sinni ræðu, þannig að þessi tillöguflutningur nú sé alveg ástæðulaus miðað við bæði yfirlýsingar þær, sem hæstv. forsrh. og ég hér nú höfum gefið varðandi þetta mál. Það mun ekki draga úr neinum framkvæmdahraða í þessu máli, þó að ekki sé upp tekin nú sérstök heimild í þessu sambandi, og þar sem það liggur algerlega í lausu lofti, hvaða fjármagn þarf í þessu efni, hverju af því kann að vera þörf á, að íslenzka ríkið leggi út eða hvað kann að vera auðið að fá frá alþjóðlegum stofnunum, sem ég tel sjálfsagt að leita eftir aðstoð frá og ekkert er hneykslanlegt við. Þetta getur haft þýðingu fyrir fleiri en okkur, almenna fræðilega þýðingu, þannig að hér er um að ræða atriði, sem ég tel ekki að sé á þessu stigi tímabært að taka upp sérstaka fjárveitingu til, taka upp sérstaka lántökuheimild til.