05.04.1971
Neðri deild: 87. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1690 í B-deild Alþingistíðinda. (1709)

266. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Ég þarf ekki að svara hæstv. fjmrh. miklu. Þetta, sem hann sagði nú, hafði hann reyndar sagt fyrr við umr. í dag, en ég hafði ætlað mér að draga að svara því, þangað til ég flyt till. aftur í nýju formi við 3. umr., en mér finnst nú samt við þessa umr. ekki rétt að láta þessu með öllu ósvarað, sem hann sagði nú. Hann vildi gera lítið úr þeirri áætlun, sem fyrir liggur um það, hvað kosta muni að kaupa tæki til rannsókna á landgrunninu og hvað það muni kosta að hafa eitt skip við þessar rannsóknir 2-3 mánuði á þessu ári. En áætlun um þetta liggur nú fyrir á fskj., sem fylgir frv. hæstv. ríkisstj. um landhelgismálið, og það eru ekki ómerkari menn en 5 ráðuneytisstjórar, sem standa að þessu áliti. Og maður verður að álíta, að það sé eitthvað að marka, þegar 5 ráðuneytisstjórar standa að einu áliti, og þeir séu ekki að vitna þar í áætlanir, sem ekki fái staðizt. En við skulum segja, að þetta fari samt svo, að það verði að sjálfsögðu betra, ef það þyrfti ekki að nota þessa fjárveitingu að öllu leyti. En þá spillti það ekki neitt, þó að það væri búið að heimila ríkisstj. að ráðstafa meiru fé í þessum efnum, vegna þess að hún mundi aldrei eyða meiru heldur en því, sem þörf væri fyrir. Og væri ekki neitt saknæmt eða hættulegt, þó að lánveitingin væri rýmri heldur en hitt. En ég sé það ekki, — ef það er ætlun hæstv. ríkisstj. að láta þessar rannsóknir fara fram á þessu ári, og hún segist þurfa að sækja um þetta til hæstv. Alþ. síðar eða fá stuðning þingflokkanna til þess með einhverjum hætti að afla fjár í þessu skyni, —hvers vegna má ekki afla heimildar til þess núna. Hvers vegna ekki? Ég held, að það sé einmitt gott fyrir hæstv. ríkisstj. að fá heimildina nú. Og það mundi verða til þess að styrkja aðstöðu hennar og jafnframt það, sem ég legg meira upp úr, að það mundi verða henni hvatning til þess að láta þessar rannsóknir fara fram. En mér virðast þessi undanbrögð, sem hafa komið fram bæði hjá hæstv. forsrh. og hæstv. fjmrh., að vilja ekki afla heimildar til lántöku eða fjáröflunar í þessu skyni nú, benda til þess, að það sé ekki eins mikill áhugi fyrir þessum rannsóknum og ætla mætti. Ég skil það satt að segja ekki, ef ríkisstj. vill láta þessar rannsóknir fara fram, hvers vegna hún vill ekki afla nú þegar fjárveitingar og lántökuheimildar, svo að hún geti annazt þær. En sem sagt, ég mun ekki ræða þetta atriði nánar að þessu sinni, heldur þegar ég geri grein fyrir hinni endurnýjuðu till. við 3. umr.