05.04.1971
Neðri deild: 87. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1693 í B-deild Alþingistíðinda. (1711)

266. mál, lán vegna framkvæmdaáætlunar

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Það er fátt eitt, sem ég ætla að segja, en af því að hæstv. landbrh. er ekki viðstaddur þá langar mig til að beina þeirri fsp. til hv. 4. þm. Vesturl., sem er formaður bankaráðs Búnaðarbankans, hvort hann álíti, að þess megi vænta, að veðdeildarlánin verði hækkuð nú í vetur eða vor, þ.e.a.s. hámark lánanna, sem mér skilst, að nú sé 200 þús. Það er náttúrlega ákaflega lágt hámark. Ég endurtek það, ég vil spyrjast fyrir um það bjá honum, hvort hann álíti, að þess megi vænta, að þetta hámark verði hækkað. Annað ætlaði ég ekki að segja nema það, að ég tek undir það, sem aðrir hafa sagt í þessum umr., að sú regla virðist hafa gilt í stofnlánadeildinni nú undanfarið, að lána aðeins út á eina framkvæmd á ári hjá sama bónda. Það er afleit regla. Og það er ákaflega óhagstætt hjá hlutaðeigandi bónda, ef hann, þegar hann þarf að byggja t.d. fjós og hlöðu eða fjárhús og hlöðu, getur ekki byggt það sama árið, og það getur valdið fjárhagslegu tjóni, sem um munar.