06.04.1971
Neðri deild: 90. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1703 í B-deild Alþingistíðinda. (1742)

280. mál, bátaábyrgðarfélög

Frsm. (Birgir Finnsson):

Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir og komið er frá hv. Ed., er flutt að beiðni Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum. Frv. er þess efnis, að í stað þess að stjórnir bátaábyrgðarfélaga séu skipaðar 5 mönnum, þá skuli þær skipaðar 3 mönnum og að stjórn Samábyrgðar Íslands tilnefni einn þessara þriggja stjórnarmanna. Eins og hv. þdm. e.t.v. vita, þá eru umdæmi bátaábyrgðarfélaganna mjög stór. Utan Vestmannaeyja eru bátaábyrgðarfélögin aðeins 8 á landinu, og það hefur reynzt mjög þungt í vöfum að hafa 5 stjórnarmenn í þessum félögum, því þeir hafa verið búsettir á við og dreif í þeim stóru umdæmum, sem bátaábyrgðarfélögin ná yfir. Þess vegna var það, að 3 bátaábyrgðarfélaganna fóru þess á leit við Samábyrgð Íslands, að hún beitti sér fyrir þeirri breytingu, sem hér er gert ráð fyrir. Önnur bátaábyrgðarfélög hafa síðan samþykkt þetta fyrir sitt leyti á fulltrúaráðsfundi Samábyrgðarinnar, sem haldinn var nýlega.

Ég leyfi mér að mæla með því, herra forseti, fyrir hönd sjútvn., að frv. þetta verði samþ.