07.12.1970
Neðri deild: 28. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 310 í B-deild Alþingistíðinda. (175)

24. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Frv. þetta hefur verið samþ. í Ed., og er nú tekið til 1. umr. í þessari hv. d. Það er fylgifiskur frv. til l. um Lífeyrissjóð bænda, sem hefur verið til umr. í þessari hv. d. og samþ. í hv. Ed. Með því frv., sem hér liggur fyrir, um breyt. á l. um Stofnlánadeild landbúnaðarins er gert ráð fyrir að lækka framlag til stofnlánadeildarinnar í áföngum, þ. e. að innheimta búnaðarmálasjóðsgjaldið samkv. l. nr. 38 15. febr. 1945. Eins og kunnugt er, var þetta gjald lagt á til innheimtu vegna stofnlánadeildar með lögum 1962 til þess að byggja upp öfluga stofnlánadeild fyrir landbúnaðinn. Byggingar- og Ræktunarsjóður voru þá illa settir fjárhagslega, eins og kunnugt er, höfðu orðið fyrir áföllum og áttu ekki fyrir skuldum. Lög um Stofnlánadeild landbúnaðarins og þetta álag, sem lögfest var, voru menn ekki sammála um, hvort réttmætt væri. Eigi að síður var þetta lögfest, og í 8 ár hefur Stofnlánadeild landbúnaðarins notið þess að fá 1% gjald af búvörum og jafnmikið frá ríkissjóði og 0.75% af heildsöluverði frá neytendum, sem lagt er á búvöruna. Reyndar hefur komið meira en helmingsframlag úr ríkissjóði, þar sem 4 millj. kr. hafa alltaf verið greiddar árlega umfram þetta. Með þessum hætti hafa stofnlánadeildinni verið tryggðar öruggar tekjur árlega og hefur henni vaxið fiskur um hrygg á þessu tímabili. En það hefur dregið úr batanum, að deildin varð fyrir áföllum vegna gengisbreytinga 1967 og 196$.

Á áratugnum 1950–1960 voru tekin erlend lán handa Byggingarsjóði og Ræktunarsjóði og endurlánuð án gengisskilyrða. En þessi lán fara nú lækkandi. Bæði er það, að nú er ekki útlit fyrir gengisbreytingu, og við skulum vona, að það verði langt að bíða, þangað til til þess þurfi að grípa, og eins hitt, að þessi lán hafa farið mikið lækkandi, svo að ekki er ástæða til að ætla annað en stofnlánadeildin haldi áfram að eflast með því framlagi, sem hún fær allt til ársins 1990. Síðan 1960 hafa búnaðarmálasjóðirnir yfirleitt fengið innlent fé til ráðstöfunar, og það útlenda fé, sem tekið hefur verið að láni hefur verið lánað með gengisskilyrðum, þannig að stofnlánadeildin verður ekki fyrir áföllum af þeim lántökum, þótt svo illa tækist til, að einhvern tíma þyrfti að grípa til gengisbreytinga. Stofnlánadeildin átti í árslok 1969 125 millj. kr. skuldlausa eign, en þegar lögin voru sett um stofnlánadeildina, var 33 millj. kr. halli, þ. e. skuldir umfram eignir. En á tímabilinu hefur orðið gengistap, og hagnaðurinn hefði orðið mun meiri, ef það hefði ekki orðið. Það er vitanlega ekkert vit í því að taka erlend lán, sem eru svo endurlánuð án gengisskilyrða. Og það er vitanlega ekkert vit í því að taka erlent lán til þess að endurlána bændum að nokkru marki, þótt það hafi verið gert yfirleitt á áratugnum 1950–1960. Það er gert ráð fyrir, að það verði haldið áfram á árunum 1971–1975 að greiða 1% gjald og tekjur stofnlánadeildarinnar verði hinar sömu, en á árunum 1976–1980 verði greitt 0.75%, á árunum 1981–1985 0.5 og á árunum 1986–1990 0.25%, og þá falli gjaldið alveg niður.

Það hefur ekki verið reiknað nákvæmlega út, hversu miklar eignir stofnlánadeildin muni eiga t. d. 1980 eða 1990. En gróf áætlun hefur þó verið gerð, sem ég vil þó ekki bera ábyrgð á, en það er, að skuldlaus eign stofnlánadeildarinnar muni verða 1980 600 millj. kr. og 1990 1000 millj. kr. Það er ánægjulegt að geta þess, að Búnaðarsjóður og stofnlánadeildin hafa ekki orðið fyrir áföllum vegna tapa á lánum, sem bændum hafa verið veitt að undanförnu. Það hefur alltaf verið svo, að bændur hafa þrátt fyrir allt — og oft þrátt fyrir erfiðan efnahag — verið með þeim skilsömustu, sem lán taka.

En eins og kemur fram í 1. gr. frv., þá er hér um það að ræða að lækka framlög til stofnlánadeildarinnar í áföngum. Það er gert ráð fyrir því, að gjald af útsöluverði mjólkur og rjóma og heildsöluverði annarra landbúnaðarvara skuli nema sem svarar 0.75% til ársloka 1980, 0.5% 1981–1985 og 0.25% 1986–1990 af verði þessara afurða. Við ákvörðun gjaldsins á vörum unnum úr afurðum í verðlagsgrundvelli reiknast hinar síðarnefndu á grundvallarverði að viðbættum þeim hundraðshluta sem segir í 1. málsgr. þessa tölul.

2. grein þessa frv. kveður á um það, að Stofnlánadeild landbúnaðarins greiði Lífeyrissjóði bænda á tímabilinu 1. jan. 1971 til 1. jan. 1986 fé til lífeyrisgreiðslna samkv. 17. og 18. gr. l. um Lífeyrissjóð bænda, er nemur 37.5% árlega af lífeyrisgreiðslunum. Ríkissjóður greiðir hins vegar 62.5%. Þetta verða nokkur útgjöld hjá stofnlánadeildinni. Þannig er gert ráð fyrir því, að á fyrsta ári nemi þessar greiðslur um 11 millj. kr., en þá ætti stofnlánadeildin að borga 37.5% af þeirri upphæð. Þetta hækkar svo upp í 25 millj. kr. 1980, en það er talið, að stofnlánadeildin geti tekið þetta að sér og það verði henni ekki ofviða. Þá er einnig gert ráð fyrir því, að deildin greiði Lífeyrissjóði bænda framlag samkv. 6. gr. þessa frv. um Lífeyrissjóð bænda, en í þeirri grein er gert ráð fyrir, að hrökkvi tekjur sjóðsins ekki til fyrir ársútgjöldum, þá verði Stofnlánadeild landbúnaðarins skylt að leggja fram óafturkræft fé fyrir því, sem á vantar, þar til úr verður bætt samkv. ákvæðum 1. málsgr. 1. gr., þ. e. að stjórn sjóðsins skal eigi sjaldnar en fimmta hvert ár láta tryggingafræðing rannsaka fjárhag sjóðsins, og þyki honum rannsókn leiða í ljós, að fjárhagsgrundvöllur sjóðsins sé ótryggur, skal hann gera till. til sjóðsstjórnar um að efla sjóðinn. Þetta er hv. þm. vitanlega kunnugt um, þar sem frv. um Lífeyrissjóð bænda hefur verið hér til meðferðar, og þarf þess vegna ekki að fara nánar út í það, en það er gert ráð fyrir því, að stofnlánadeildin geti innt þetta af hendi án þess að skerða útlánamöguleika til venjulegra framkvæmda í landbúnaðinum. Fjárhagur hennar eða ráðstöfunarfé hennar verður einnig aukið, af því að það er gert ráð fyrir, að Lífeyrissjóðurinn verði ávaxtaður í stofnlánadeildinni, og það getur vitanlega orðið til þess, að stofnlánadeildin hafi eða fái rýmri fjárráð, vegna þess að Búnaðarbankinn geti veitt deildinni lán, ef með þarf.

Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að fara fleiri orðum um þetta mál. Þessi tvö mál, frv. um Lífeyrissjóð bænda og breyting á stofnlánadeildarlögunum, eru hvort öðru tengd, og það þarf að samþykkja þau samhliða. Ég vil láta þá von í ljósi, að þetta frv. verði samþ. á þessu þingi, að l. um Lífeyrissjóð bænda geti orðið virk frá næstu áramótum, eins og talað hefur verið um, og ég tel þá, að stigið hafi verið stórt framfaraspor fyrir bændastéttina, og með ákvæðum, sem eru í þessu frv. um það, að stofnlánadeildin hjálpi til að greiða ellilífeyri þeim bændum, sem ekki geta notið greiðslna úr Lífeyrissjóði nú fyrstu árin, sé stigið spor, sem beri að fagna og horfi til heilla og framfara. Það er rétt að geta þess, að bændasamtökin hafa samþ. frv. um Lífeyrissjóð bænda og þau hafa einnig lýst sig samþykk því frv., sem hér er um að ræða, þ. e. um breytingu á lögum um Stofnlánadeild landbúnaðarins. Ég legg svo til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og landbn.