22.03.1971
Neðri deild: 66. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1719 í B-deild Alþingistíðinda. (1759)
217. mál, utanríkisþjónusta Íslands
Haraldur Henrýsson:
Herra forseti. Það frv., sem hér er til umr., er miðað við hina hefðbundnu skipan utanríkisþjónustunnar, svo sem hún hefur verið um langa hríð, en hún mótaðist reyndar við allt aðrar aðstæður en nú ríkja. Í frv. þessu virðist ekki gert ráð fyrir neinum stórvægilegum breytingum í starfsháttum og vinnubrögðum utanríkisþjónustunnar, en þó má segja, að rammi þess sé það rúmur, að innan hans mætti koma á ýmsum breytingum á starfsháttum og skipulagi, sé til þess vilji. Ég tek til máls við þessa umr. til þess fyrst og fremst að lýsa þeirri skoðun minni, að endurskoðunar sé þörf á starfsháttum og skipulagi utanríkisþjónustunnar með það fyrir augum, að hún verði færari að sinna hlutverki sínu, og þar sem tekið sé tillit til breyttra aðstæðna.
Það kerfi, sem utanríkisþjónustan byggist nú mjög verulega á, var mótað við allt aðrar aðstæður og allt aðra tækni en nú ríkir, t.d. á sviði samgangna og fjarskiptatækni. Þessi tækni gefur marga möguleika, sem ekki voru fyrir hendi áður, og gerir annað óþarft. Eins og nú er, er höfuðáherzlan lögð á sendiráð. Þau eru höfuðstofnanir utanríkisþjónustunnar, en að mínu áliti er hér einmitt um að ræða stofnanir, sem hin nýja tækni hefur að mörgu leyti gert óþarfar, og þeim er einungis eða a.m.k. að mjög verulegu leyti viðhaldið fyrir hefð eða af tryggð við ákveðnar gamlar hugmyndir um samskipti ríkja. Þetta eru tiltölulega dýrar stofnanir og ég efast stórlega um, að sá kostnaður, sem til þeirra er nú lagður, skili sér. Tel ég a.m.k., að fyllilega komi til álita aðrar leiðir að sama marki. Samskipti ríkja og ríkisstjórna eiga sér nú stað í æ ríkara mæli með ferðalögum og gagnkvæmum heimsóknum ráðamanna og sérfræðinga, sem fjalla um viðkomandi málefni, og er hér oftast um að ræða bein og milliliðalaus samskipti. Á þessu eru engin vandkvæði vegna vaxandi tækni í samskiptum og fjarskiptatækni. Að mínu mati hljótum við í framtíðinni að leggja sífellt meiri áherzlu á hreyfanlega utanríkisþjónustu, sem beini starfskröftum sínum jafnan þangað, sem þörfin er mest á hverjum tíma. Við eigum sífellt að eiga sendimenn og sendinefndir í förum til þeirra landa, sem við teljum nauðsynlegt að gæta hagsmuna okkar í. Við hljótum að leggja aukna áherzlu á þann þátt utanríkisþjónustunnar, sem fjallar um utanríkisviðskipti, og einmitt á því sviði eigum við að koma upp hreyfanlegu kerfi, sem sífellt starfi að markaðskönnun og markaðsleit. Í þessu skyni þurfum við sérmenntaða sendimenn. Ég tel einnig, að við endurskoðun á starfsháttum utanríkisþjónustunnar með aukna hagkvæmni og meiri árangur fyrir augum eigum við að hafa samstarf við aðrar þjóðir, eftir því sem við verður komið, og þó einkum og sér í lagi við Norðurlandaþjóðirnar. Ég tel, að einmitt á þessu sviði sé tækifæri fyrir þessar þjóðir að sýna norræna samvinnu í verki. Ég tel t.d., að þessar þjóðir geti gert tvennt eftirfarandi um sameiginlegar aðgerðir í þessum málum: Í fyrsta lagi gætu þær haft sameiginleg sendiráð í ýmsum ríkjum, tvær eða fleiri saman, þar sem þörf á sendiráðum væri metin vera fyrir hendi. Þetta yrði tvímælalaust til sparnaðar og ætti að stuðla fremur að auknu samstarfi þessara þjóða á sviði utanríkismála. Í öðru lagi tel ég, að Norðurlandaþjóðirnar ættu að leggja sendiráð sín innbyrðis niður og hvert land um sig ætti að sjá borgurum hinna landanna fyrir þeirri þjónustu, sem sendiráðin sjá þeim fyrir nú í dag. Sumir segja e.t.v., að hér sé verið að stíga spor aftur á bak og þvert á norræna samvinnu. Ég álít hins vegar, að með slíku væri verið að undirstrika, hve náið samstarf þjóðanna væri og jafnframt lögð áherzla á, að þessar þjóðir liti á sig sem mjög samstæða heild í samfélagi þjóðanna. Samvinna þeirra á ekki að byggjast á því að viðhalda úreltum og tiltölulega þýðingarlitlum stofnunum, heldur á sameiginlegum aðgerðum, sem þjóna skynsamlegum tilgangi.
Ég vildi að lokum benda á það, að mér hefur fundizt sem afstaða ráðamanna til utanríkisþjónustunnar hingað til hafi vart borið þess merki, að þeir ætluðu henni mikið hlutverk. Þessa ályktun dreg ég m.a. af þeim aðferðum, sem notaðar eru við ráðningu starfskrafta til utanríkisþjónustunnar. Ég tel, að við þær ríki allt önnur sjónarmið en eðlileg séu og virðist sem helzt sé litið á þessa stofnun sem athvarf fyrir stjórnmálamenn og skjólstæðinga þeirra. Utanríkisþjónustan er undanþegin hinni almennu reglu um auglýsingar starfa og verður vart annað sagt en að það frjálsræði, sem þannig hefur verið veitt henni, hafi verið gróflega misnotað, oft í pólitískum tilgangi að því er bezt verður séð. Ég fæ ekki séð, að þessi undantekning frá hinni almennu reglu um stöðuveitingar eigi sér slíka stoð, að réttlætanleg sé. Á þessu sviði fremur en flestum öðrum er okkur þörf á að fá til starfa hæfa og sérmenntaða menn og þar eiga ekki önnur sjónarmið að komast að. Utanríkisþjónusta okkar hefur haft ýmsum frábærum starfskröftum á að skipa, en það breytir ekki því, að þær aðferðir, sem þar tíðkast við mannaráðningar, eru að því er ég bezt fæ séð ekki heilbrigðar eða sæmandi.
Herra forseti. Ég hef gert hér að umtalsefni nokkur atriði, sem ég tel, að komi til athugunar við þá endurskoðun á starfsháttum utanríkisþjónustunnar, sem ég tel tvímælalaust nauðsynlega. Ég mun væntanlega gera till. í þá átt, annaðhvort í sambandi við afgreiðslu þessa frv. eða í formi þáltill.