31.03.1971
Neðri deild: 79. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1722 í B-deild Alþingistíðinda. (1762)

217. mál, utanríkisþjónusta Íslands

Frsm. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv. um utanríkisþjónustu Íslands var afgreitt í allshn. og mælir n. einróma með því, að frv. verði samþ., en hins vegar áskilja einstakir nm. sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt., sem fram hafa verið bornar eða fram verða bornar við frv.

Frv. um utanríkisþjónustu Íslands var lagt fyrir síðasta Alþ. og var þá til meðferðar í allshn. Nd., og hún átti þá viðræður við allmarga aðila út af þessu frv. og komu þá í ljós allmiklir annmarkar á því frv. Varð það því að ráði, að frv. var ekki afgreitt úr n. frá síðasta þingi, en það var sent hv. utanrmn. til umsagnar, auk annarra þeirra aðila, sem þá voru boðaðir á fund allshn., en í sumar var frv. endursamið af þm. úr utanrmn. og ráðuneytisstjóra utanrrn. Og eins og þeir sömdu frv., þá liggur það hér fyrir Alþ. Það hefur fengið afgreiðslu í Ed. Þar var gerð sú smávægilega breyting á 3. gr. frv., að „yfirstjórn utanríkismálanna“ var breytt í: yfirstjórn utanríkisþjónustunnar. Að öðru leyti var ekki gerð breyting á frv. við meðferð þess í Ed. Hér í Nd. hafa verið fluttar brtt. við frv., sem allshn. sem slík hefur ekki tekið afstöðu til, og hafa nm. óbundnar hendur í sambandi við afstöðu sína til þeirra brtt., sem liggja fyrir á þskj. 621 og 626. En áður en ég lýk máli mínu, þá vil ég taka fram, þar sem ég hef flutt, gerzt meðflutningsmaður að brtt. á þskj. 621, að þar er lagt til, að 13. gr. frv. orðist eins og segir í brtt. eða þannig: „Fjárlaga- og hagsýslustofnunin skal fylgjast með rekstri sendiráða og ræðismannsskrifstofa og sjá um, að þar sé gætt fyllstu hagkvæmni og sparnaðar. Eftirlitsmaður skal öðru hverju heimsækja sendiráð og ræðismannsskrifstofur.“

Ég fyrir mitt leyti tel, að samkv. 3. gr. frv. sé auðvitað yfirstjórn utanríkismála eðli málsins samkvæmt hjá utanrrn. og það hefur eftirlit með því, að lögum og reglugerðum um framkvæmd utanríkismálanna sé framfylgt og ráðuneytisstjóri þess rn., hann sér um daglegan rekstur þess ásamt öðrum starfsmönnum, sem til þess eru skipaðir. Hitt finnst mér vera í samræmi við annað með fjárlaga- og hagsýslustofnunina, að hún hafi einnig eftirlit með þessari tilteknu grein ríkisþjónustunnar og ríkisfyrirtækjanna, eins og öðrum í sambandi við gerð fjárlaga og sömuleiðis, að hún sjái um, að þar sé gætt fyllstu hagkvæmni og sparnaðar. Þetta er gert í fjölmörgum öðrum greinum, og ég tel það ekki á nokkurn hátt eiga að mæta andstöðu frá utanrrn., þótt það nái einnig til þeirrar löggjafar, sem nú er sett um utanríkisþjónustu Íslands.

Ég tel því ekki ástæðu til þess að hafa þessi orð fleiri, en ég endurtek það, að allshn. mælir með samþykkt frv., en hefur ekki sem slík tekið afstöðu til þessara brtt., sem fyrir liggja.