07.12.1970
Neðri deild: 28. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 319 í B-deild Alþingistíðinda. (180)

24. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Það skulu ekki verða nema fá orð, en hæstv. landbrh. sagði, að ég hefði sagt, að Hagstofan hefði viðurkennt, að ein talan væri rétt. Ég vona, að menn hafi tekið eftir því, en það, sem ég sagði, var, að ég hefði haft eina töluna eftir Hagstofunni. Ég ætla að endurtaka þetta, svo að hæstv. ráðh. skilji það. Ég efast ekkert um það út af fyrir sig, að þessar tölur frá Hagstofunni séu réttar. Ef ráðh. hefur skilið það rétt, hvernig þetta er unnið, en ef svo á að hafa þetta til viðmiðunar við svona atvinnuskiptingu, til hvers leiðir slíkur samanburður? En ráðh. hefur sýnilega heldur ekki skilið það. Hann gat enn fremur um það, að ræða formanns Stéttarsambandsins, Gunnars Guðbjartssonar, hefði verið rétt. Ég efast ekkert um það, að hún hafi verið rétt, en ég hafi bara lagt vitlausan skilning í þetta. Hvernig vill ráðh. skýra það út fyrir okkur? Hann er að tala um mismuninn á tekjum bændanna og viðmiðunarstéttanna, og hann segir, að tekjur bændanna hafi verið 149 þús. kr., cn viðmiðunarstéttanna 277, og heldur svo áfram og segir, að mismunurinn hafi verið 128 þús. kr. Það getur vel verið, að ráðh. hafi einhvern sérstakan skilning á þessari tölu, en ég get ekki séð annað en þetta sé ákaflega auðvelt að skilja — a. m. k. finnst mér það. En þar sem ég er búinn að tala tvisvar, þá vil ég ekki vera að níðast á góðvild forseta og læt þessu lokið.