14.12.1970
Efri deild: 31. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1733 í B-deild Alþingistíðinda. (1819)

174. mál, sala Neðri-Brekku í Saurbæjarhreppi

Flm. (Ásgeir Bjarnason):

Herra forseti. Frv. þetta er flutt að beiðni Eysteins Þórðarsonar, bónda í Bessatungu, Saurbæjarhreppi, Dalasýslu. Og eins og fram kemur í grg., þá hefur hreppsnefnd Saurbæjarhrepps mælt með því, að Eysteini verði seld jörðin Neðri-Brekka. Neðri-Brekka er að fasteignamati frá 1957, þ.e.a.s. landverð, 6000 kr. Jörðin hefur gott ræktunarland og nokkuð af véltæku engjalandi, en ekkert afréttarland. Húsakynni eru þannig á jörðinni, að ef á að búa þar áfram, þarf að reisa þar öll hús frá grunni. Aftur á móti er jörðin Bessatunga með töluverðan afrétt, bæði á Svínadal og Brekkudal, en mjög takmarkað ræktunarland. Og landverð að fasteignamati frá 1957 í Bessatungu er hið sama og á Neðri-Brekku, 6000 kr. Í Bessatungu er búið að byggja öll hús, endurreisa öll hús, og þau eru frá síðustu árum, fullkomnar góðar byggingar, en aftur á móti er öflun heyskapar þar mjög takmörkuð nema til komi meira land heldur en tilheyrir jörðinni sjálfri. Það virðist því vera nokkuð augljóst að sameina þessar jarðir, og bóndinn í Bessatungu hefur um nokkurra ára skeið nytjað Neðri-Brekku eða síðan hún fór í eyði. Fjarlægðir milli þessara tveggja jarða eru innan við km og góður vegur á milli, þannig að það virðist ekki vera neitt fráleitt, hvað samgöngur snertir, að selja bóndanum í Bessatungu þessa jörð. Ég geri ráð fyrir því, að frv. þetta verði sent til umsagnar jarðeignadeild ríkisins og landnámsstjóra og þeir fái að segja sitt álit um sölu jarðarinnar og að alþm. gefist þá kostur á að fylgjast með því, hvort einhverjir annmarkar kunna að vera á sölu þessarar jarðar.

En ég vil leggja til, að að lokinni þessari umr. verði frv. látið fara til hv. landbn. og 2. umr.