11.11.1970
Neðri deild: 16. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1744 í B-deild Alþingistíðinda. (1838)
67. mál, happdrættislán fyrir Vegasjóð vegna brúargerða á Skeiðarársandi
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það er nú vitanlega sjálfsagt, að sú hv. n., sem fær þetta frv. til athugunar, athugi það vel, og það þarf að ræða það, hvernig þetta mál mundi nú verka, ef það væri lögfest, hvort líklegt væri, að það seldist svo mikið sem hér er gert ráð fyrir í frv. Fljótt á litið sýnist þetta geta verið heppileg fjáröflunarleið til þess að koma þessu þjóðhagslega máli fram. Það er enginn vafi á því, að þetta mál á orðið mikið fylgi með þjóðinni og það er beðið eftir því, að hringvegur komi um landið. Og þetta hefur einnig mikið gildi í sambandi við það, þegar við erum að byggja hér upp nýjan atvinnuveg, sem eru ferðamálin. Það er þess vegna ljóst mál, að það ber að gera allt, sem unnt er til þess að koma þessu máli í framkvæmd. Það er unnið að miklum rannsóknum núna á Skeiðarársandi og það hefur stundum verið brosað að því, þegar sagt hefur verið, að beðið væri eftir jökulhlaupi. En sannleikurinn er nú sá, að það þykir nú henta að sjá a.m.k. eitt hlaup og draga nokkrar ályktanir af því, hvernig það kemur. Hins vegar hafa verkfræðingar nú í seinni tíð, held ég, alveg fallið frá þeirri till., sem fyrst var uppi, að byggja varanlegar brýr steinsteyptar á sandinum, heldur byggja timburbrýr, sem yrðu þá ekki svo dýrar, ef þeim skolaði burt, og gæti það vitanlega orðið til þess að flýta fyrir því, að þessi samgönguleið yrði fær.
Ég vildi aðeins láta skoðun mína í ljós á þessu máli, sem reyndar var nú kunn fyrr, að ég vil leggja því lið, að því verði hraðað að koma hringveginum á. En það er enginn vafi á því, að umferðin á austurveginum eykst mjög mikið við þetta og álagið á hann verður þeim mun meira. Þess vegna er það einnig aðkallandi að gera þann veg traustan og góðan um leið eða áður en umferðin verður aukin. En ég veit, hvað hv. þm. meinar, hann meinar, að það megi gera þetta samhliða, og ég er því samþykkur, að það megi gerast nokkuð samhliða. Og þetta kemur náttúrlega ekkert af sjálfu sér. Þetta kemur, ef það er höfð fyrirhyggja með það að afla fjárins með heppilegum hætti, og málefni, sem á eins mikið fylgi og þetta, það hlýtur að verða hægt að flytja fram áður en langur tími líður.