25.02.1971
Neðri deild: 53. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1748 í B-deild Alþingistíðinda. (1846)

67. mál, happdrættislán fyrir Vegasjóð vegna brúargerða á Skeiðarársandi

landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Það litur út fyrir, að hv. Alþ. ætli að samþykkja frv. um happdrættislán til þess að koma á vegagerð yfir Skeiðarársand og brúm á vötnin þar. Það er mjög ánægjulegt, og verði þetta frv. að lögum þá þarf að gera ráðstafanir til þess að selja happdrættismiðana, og það er vitanlega undirstaðan til þess að framkvæmdum verði flýtt. Þótt Vegasjóður hafi á þessu ári rúmlega 900 millj. kr. til ráðstöfunar og fái að láni 300 millj., þannig að unnið verði fyrir 1200 millj. á þessu ári og sennilega eins á því næsta, þá er það vitað mál, að Vegasjóður og það fé, sem hann hefur til ráðstöfunar, hrekkur ekki til þessara sérstöku framkvæmda, sem hér er um að ræða. Og þess vegna er það ánægjulegt, að hv. Alþ. virðist ætla að hafa samstöðu um það að afla fjár í þessu skyni með sérstökum hætti. Það munu allir hv. alþm. vera sammála um það, að flýta beri þessari framkvæmd eins og auðið er, og ég vil taka undir það, sem sagt var hér áðan, að það væri ánægjulegt, ef þessu verki yrði lokið á árinu 1974. Og þá er ekki um annað að ræða heldur en að vinna að því, að svo geti orðið. Ef fást með þessum hætti 200 millj. kr. til framkvæmdanna, þá er ekki ólíklegt, að það sé meginhluti þess fjár, sem þarf í þessu skyni, og enginn vafi er á því, að það er í senn menningarlegt atriði og hagsmunalegt atriði að koma þessu verki fram. Þegar fjárins er aflað, — og við vonum, að þetta frv., ef að lögum verður, nægi til þess, — þá er vitanlega það unnið, sem mest á ríður og það dugar ekki annað en að herða þá róðurinn með athuganir og undirbúning að verkinu og gera það, sem í mannlegu valdi stendur til þess að flýta því sem mest, og fyrir fram verður vitanlega ekki sagt um það, hvort það tekur 3, 4 eða 5 ár, en ég er fylgjandi því, að þessu verki verði flýtt, eftir því sem mögulegt er.