03.03.1971
Efri deild: 56. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1756 í B-deild Alþingistíðinda. (1854)

67. mál, happdrættislán fyrir Vegasjóð vegna brúargerða á Skeiðarársandi

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Það er auðvitað ekkert nema gott um það að segja sjálfsagt, þó að eitt happdrættið enn komist nú á laggirnar og það fyrir opinbera tilstuðlan. Og það er vonandi, að þessi bréf seljist, þó að ég sjái nú ekki verulegar líkur á því, a.m.k. meðan ríkissjóður heldur uppi samkeppni við þessi bréf með verðtryggðum spariskírteinum. Kannske á að stöðva þá sölu í bili til að þetta mál hljóti forgang. En hvað um það, þá er ekkert nema gott um það að segja, þó að þessi leið sé reynd. Ég hef ekkert við það að athuga í sjálfu sér, ekki annað en það, að ég óttast bara, að í reyndinni verði hún til þess að tefja málið, það verði farið að bíða eftir einhverjum happdrættispeningum, sem ekki komi nú. Það þarf að sjá um 14 millj. kr. árlega í vinninga. Ég óttast, að það geti farið þannig, að salan standi kannske rétt undir vinningunum fyrstu árin, og þá væri auðvitað verr farið en heima setið og auðvitað langt frá því, að tilgangi frv., er ég viss um, væri náð og þeim tilgangi, sem hæstv. landb.- og samgmrh. hefur hér lýst. En það var nú ekki endilega þetta, sem ég ætlaði að benda á, heldur hitt, að mér finnst það satt að segja dálítið furðulegt, þegar talað er um það af hæstv. ráðh. sem sjálfsagðan hlut, að það verði að hafa sérstaka fjáröflun í þessu skyni. Hann vill m.ö.o. undanskilja það öllum almennum vegaframkvæmdum í landinu að koma vegi á þessa 30 km, sem þarna eru eftir, og gera þar með hringveg kringum landið, svo sjálfsagt sem það þó virðist. í mínum augum er einmitt ástæða til þess að fjármagna þessar framkvæmdir úr sameiginlegum sjóði, því að þær snerta allar byggðir landsins, eins og hæstv. ráðh. réttilega gat um. Það er ekki um slíkt ógnarfjármagn hér að tefla, að það eitt út af fyrir sig réttlæti það, að þetta mál fái einhverja sérstöðu og sérstaka meðferð og lakari meðferð heldur en önnur vegalagning í landinu. Við höfum heyrt þessar tölur, 200–300 millj. kr. Ég held, að vegaframkvæmdirnar á Kópavogshálsi hafi kostað eitthvað um 150 millj. kr., ekkert happdrætti var framkvæmt til þess að koma þeim á. Þó þjóna þær ekki nema tilteknum hluta al landinu. Mig minnir, að brúin yfir Elliðaárnar hafi kostað eitthvað yfir 90–100 millj. kr. Það var borgað af Vegasjóði happdrættislaust. Það þjónar að vísu stórum hluta landsins að komast til höfuðborgarinnar, en kannske ekki alveg öllu. Og mig minnir, að 900 metra vegarspotti, sem Íslenzkir aðalverktakar lögðu fyrir hæstv. samgmrh., hafi kostað um 36 millj. kr. Eftir þeim kostnaði mundi vegurinn yfir Skeiðarársand kosta nálægt 1200 millj. kr., en sem betur fer verður sennilega sparlegar á haldið austur á Skeiðarársandi heldur en fyrir ofan Reykjavík og fæst ódýrari framkvæmd á þessum 30 km, þó erfiðir séu. Ég vil leggja áherzlu á það fyrir mitt leyti, — ég skal ekki vera að lengja þessar umr., það er ástæðulaust mál, sem allir eru sammála um í sjálfu sér, — en ég vil bara leggja áherzlu á það, að að mínum dómi á að líta á hringveg kringum landið, eða 30 km vegalagningu með tilheyrandi brúagerðum yfir Skeiðará, sem hluta af verkefni Vegasjóðs, og ég hef ekkert á móti því sem sagt, að það sé aflað fjár með sérstökum hætti, með þessu happdrættisláni. En ég bara legg áherzlu á það, að það má ekki láta framgang málsins vera undir því kominn, hvort þessir peningar fást með happdrættisláni og á hve löngum tíma, eða ekki. Það verður að taka þetta inn á áætlun Vegasjóðs og framkvæma það eins og hverja aðra framkvæmd, sem gerð er í þágu landsmanna allra.