19.11.1970
Neðri deild: 21. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1765 í B-deild Alþingistíðinda. (1866)

128. mál, eyðing refa og minka

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Eins og hv. 11. landsk. þm. gat um í ræðu sinni áðan, þá áttum við tal saman, áður en frv. á þskj. 137 var lagt fram, og á þann hátt, sem hann greindi frá. Ég skal geta þess, að ég ræddi þetta mál einnig tvisvar við veiðistjóra, áður en við flm. frv. á þskj. 137 ákváðum að flytja það. Við erum sammála um það, sem stöndum að þessum frv., að það þurfi að leiðrétta upphæðirnar í gildandi Íögum til samræmis við verðlagsbreytingar og þá, að mér sýnist, fyrst og fremst í sambandi við breytingar, sem orðið hafa á kaupgjaldi í landinu, síðan lögin 1957 og 1964 voru samþ. Ég skal játa, að ég hef ekki rannsakað það gaumgæfilega, hverjar þessar breytingar eru, en mér sýndist við fljótlega athugun, að þær mundu vera nálægt því, sem hér er gert ráð fyrir á þskj. 137, en eins og ég sagði áðan, þá viljum við flm. beina því til hv. n., sem málið fær til meðferðar, að hún athugi þetta nánar og geri sínar till. í samræmi við þær breytingar, sem orðið hafa.

Varðandi 3. gr. frv. á þskj. 137 þá lét hv. 11. landsk. þm. þess getið, að hann væri ekki fylgjandi ákvæðum hennar, a.m.k. ekki að svo stöddu, og hann færði það m.a. til síns máls, að hætta gæti verið á því, að skilað yrði röngum skýrslum um það, hversu margir minkar hefðu verið unnir. Ég hefði nú haldið, að skýrslum hlutaðeigandi yfirvalda í sveitarfélögum væri yfirleitt treystandi í þessum efnum, en ef menn vilja fá einhverja traustari tryggingu fyrir því að rétt séu fram taldir unnir minkar, þá ætti nú að vera hægt í reglugerð að ganga frá því, þannig að tryggt megi teljast, og jafnvel setja inn í frv. ákvæði þess efnis. Ég er síður en svo á móti því, að það verði gert. Auðvitað er sjálfsagt að gera allt, sem hægt er, til þess að koma í veg fyrir, að skilað sé röngum skýrslum, sem ég hef nú reyndar álitið, að ekki sé mikil hætta á. Hinu verður ekki andmælt, enda gerði hv. þm. það ekki, að með löggjöfinni um innflutning minka á sínum tíma og minkaeldi gerði Alþ. þessa ráðstöfun, sem hefur reynzt mjög afdrifarík, og mér finnst það rétt, að þjóðfélagið í heild taki afleiðingunum af því að fullu.