17.03.1971
Neðri deild: 63. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1795 í B-deild Alþingistíðinda. (1911)
69. mál, aðstoð Íslands við þróunarlöndin
Jónas Árnason:
Herra forseti. Eins og frsm. hv. allshn. gat um hér áðan, þá flytjum við hv. 6. þm. Reykv. brtt. við þetta frv. þess efnis, að aftan við 1. tölul. 2. gr. bætist: „Skulu áætlanir“ — þ.e. áætlanir um aðstoð við þróunarlöndin — „við það miðaðar, að aðstoð Íslendinga við þróunarlöndin aukist í áföngum og nemi 1% af þjóðartekjum þeirra eftir 10 ár.“ Þessi till. er, eins og hv. alþm. mun kunnugt, í samræmi við samþykktir, sem gerðar hafa verið æ ofan í æ á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Árið 1960 var í fyrsta sinn samþykkt ályktun þess efnis, að hinar betur megandi þjóðir heims stefndu að því að láta 1% af þjóðartekjum sínum renna til aðstoðar við þróunarlöndin. Ég hygg, að við munum allir sammála um, að við hljótum að teljast til hinna betur megandi þjóða heims. Því er ekki að neita, að það hafa aðeins fáar þjóðir framfylgt þessari samþykkt. Árið 1968 munu þær aðeins hafa verið fjórar, Frakkland, Belgía, Holland og Bretland. En eins og ég sagði, hefur þessi samþykkt verið gerð aftur og aftur, og það er vitað, að sendinefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum hefur verið í hópi þeirra sendinefnda, sem goldið hafa jáyrði við samþykkt þessarar ályktunar, en mun þó hafa gert fyrirvara varðandi 1% markið. Það sýnist því eðlilegt, að aðstoð Íslands sé byggð á grundvelli þessarar ályktunar, og þó að ýmsum hafi virzt, þegar frv. þetta kom fyrst fram eða það frv., sem efnislega var shlj. þessu frv., að það hart hafi verið á dalnum, að þetta mundi verða nokkrum erfiðleikum bundið hjá okkur, þá hafi þó nú svo skánað horfur hjá okkur, að þetta ætti ekki að vera nein ofætlun. Eins og hv. frsm. tók fram, mundi 1% nema um 500 millj. kr., en eins og kemur fram í till., er ætlazt til, að þessu marki verið náð á 10 árum, þannig að í fyrsta áfanga yrði aðeins um 50 millj. kr. að ræða. Ég veit ekki, hvaða dóm menn leggja á það, hvað sé okkur sæmandi í þessum efnum. En ég hygg, að 50 millj. kr. til aðstoðar þróunarlöndunum yrði að teljast algert lágmark, þar sem um er að ræða þjóð, sem hefur þó úr eins miklu að spila og við og fer ekki alltaf með sína fjármuni af mikilli fyrirhyggju.
Nefnd sú, sem útbjó þetta frv., eins og það liggur nú fyrir, játar þetta í aths., sem hún gerir við ýmsar gr. frv., þar sem segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Það er þó skoðun nefndarinnar, að eðlilegt sé, að Íslendingar stefni að því marki, á sama hátt og aðrar þjóðir, sem slíka aðstoð veita, sem samþykkt hefur verið á þingi Sameinuðu þjóðanna, að 1% þjóðartekna skuli renna til aðstoðarinnar.“ Og síðan er tekið fram, með leyfi hæstv. forseta: „Í sambandi við þessa tölu, sem sumum kann að þykja nokkuð há, — ég vil þó taka það fram persónulega, að mér þykir hún ekkert sérlega há — „... að þá er talin öll aðstoð, sem veitt er, bæði lán og gjafafé, og bæði aðstoð veitt af opinberum aðilum og einkaaðilum, þannig að framlög ríkisins þurfa ekki að vera nema hluti af þessu.“ Þannig að það er ekki hægt að segja, að við séum að ætlast til allt of mikils af okkar ríkissjóði í þessu efni.
Ég hygg, að hv. frsm. hafi látið þess getið hér, að till. okkar 6. þm. Reykv. hafi komið fram, eftir að n. mun hala afgr. málið, en þó var ekki búið að skila hér inn í d. nál., og formaðurinn varð góðfúslega við þeirri beiðni minni, að till. yrði tekin til athugunar aftur í n. Ég átti von á satt að segja, að hún yrði þar samþ., því að mér sýnist það, að það megi segja um þetta frv., að góður vilji enga gerir stoð. Við verðum að sanna í verki, að við viljum eitthvað aðstoða þessar þjóðir, og það gætum við gert. Tækifærið til þess gefst núna með því að samþykkja að ná þessu 1% marki í áföngum á 10 ára tímabili. Ég hélt satt að segja, að þegar við legðum fram till., þætti flestum nóg um, hvað fresturinn væri langur, og menn mundu jafnvel rísa hér upp til þess að hvetja til þess, að við styttum áfangann og næðum þessu marki kannske á 5 árum. En því miður, viðbrögð n. hafa verið eins og bv. frsm. gat hér um áðan. Ég verð að harma það. Mér finnst þetta ekki stórmannleg viðbrögð, og ég vænti þess, að bv. þd. sýni meiri stórmennsku í þessu máli en n. hefur sýnt.