17.03.1971
Neðri deild: 63. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1798 í B-deild Alþingistíðinda. (1913)
69. mál, aðstoð Íslands við þróunarlöndin
Magnús Kjartansson:
Herra forseti. Hv. þm. Pétur Sigurðsson hefur mælt gegn þeirri till., að upp verði tekin í þetta frv. ákvæði um, að Íslendingar stefni að framlagi til vanþróaðra ríkja, sem komist upp í 1% af þjóðartekjum á næsta áratug. Og það, sem hann ber fyrir sig í því sambandi, er það, að þarna sé um að ræða afarháa fjárhæð, miðað við þjóðartekjurnar í ár megi reikna með allt að 500 millj. kr. og því þurfi að taka frá æðimikið á hverju ári, ef ná eigi þessu marki. Vissulega má segja, að þetta sé nokkuð há fjárhæð. En ég er hræddur um, að þessi upphæð sé engu að síður ákaflega litil í samanburði við þá þörf, sem allir vita um í þessum löndum. Og þegar þessi hugmynd kom fram á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, þá var hún ekki við það miðuð, að hinar betur stæðu þjóðir færu að taka eitthvað af þeim tekjum, sem þær höfðu þá. Staðreyndin er sú, að það er stöðugur hagvöxtur einmitt hjá hinum betur þróuðu ríkjum. Þau auka þjóðartekjur sínar á hverju ári. Það er nokkuð föst regla. Og ætlunin var einvörðungu sú, að hluti af þessari aukningu yrði tekinn frá og notaður til þess að reyna að aðstoða vanþróuð ríki. Það átti ekki að taka neitt af mönnum. Það átti aðeins að taka hluta af þeim vexti, sem bætist við ár frá ári. Og með sæmilegu stjórnarfari á Íslandi á það að geta orðið nokkuð öruggt, að einnig við höldum áfram að auka þjóðartekjur okkar, eins og við höfum gert, með ýmsum minni háttar skakkaföllum nú um langt skeið. Á næsta áratug munu þjóðartekjur okkar örugglega aukast mjög verulega, — það verulega, að þó að væri búið að taka 1% af þjóðartekjunum eftir 10 ár, þá mundum við samt standa miklu betur en við gerum nú í dag. Þarna er einvörðungu um það að ræða, hvort við viljum leggja fram hluta af aukningu, sem bíður okkar í framtíðinni.
Það hefur verið á það bent hér, að þessi stefna hefur verið samþ. á vettvangi Sameinuðu þjóðanna með áskorun um, að þetta væri framkvæmt. Og fjölmargar þjóðir stefna nú að þessu marki. Þær eru komnar misjafnlega langt. En ég hygg, að allar þjóðir, sem búa við svipaðan efnahag og við, svipaðar þjóðartekjur á mann og við, standi okkur miklu framar í aðstoð við vanþróuð ríki. Ég held, að hlutdeild okkar í þeirri aðstoð sé okkur til fullkominnar minnkunar. Hv. þm. sagði, að till. okkar væri alveg skilyrðislaus, við hefðum talað um 10 ár og ekkert annað. Í þessu fólst alls ekki það, að við værum að binda okkur við neitt tiltekið árabil. Við vorum aðeins að leggja til, að Alþ. setti sér eitthvert tiltekið mark. Við erum fúsir til að ræða eitthvert annað mat, ef menn hafa áhuga á því. Ef hv. þm. og aðrir vilja hafa áhuga á því að ná samkomulagi um eitthvert annað mat, sem gæti þó engu að síður leitt til þess, að Alþ. markaði þessa stefnu í raun og veru, þá mundum við taka því fegins hendi.
En verði þessi till. ekki samþykkt, þá geri ég mér ákallega litlar vonir um þá stofnun, sem verið er að setja á laggirnar með þessu frv. Það kemur að vísu fram góður vilji í ákvæðum frv., en ég er hræddur um, að það hrökkvi ákaflega skammt. Ef ekki verður gengið frá einhverjum fjármunum handa stofnuninni, þá er ég anzi hræddur um, að hún geti þróazt yfir í það að verða algerlega hégómleg og gagnslaus skriffinnskustofnun og geti jafnvel aðeins leitt til þess að gefa einhverjum ágætum mönnum kost á ferðalögum til þess að horfa á ástandið í vanþróuðum ríkjum, en ekki til þess, að við leggjum þarna neitt umtalsvert af mörkum. Og verði þessi leið farin, þ.e. að koma á laggirnar slíkri stofnun án þess, að við setjum okkur nokkur raunveruleg markmið, þá finnst mér það vera ákvörðun, sem skipti ákaflega litlu máli og sé nánast ósæmandi fyrir Alþingi Íslendinga.