10.02.1971
Efri deild: 47. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1832 í B-deild Alþingistíðinda. (2004)
202. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Mig langar til að fara nokkrum orðum um þetta frv. — þó eiginlega helzt um grg. þess. Í sjálfu sér er ég alveg sammála fyrsta þættinum, að ég tel skynsamlegt að friða Faxaflóa fyrir dragnót, og mætti taka undir þau orð í grg., að það væri vel athugandi að gera það víðar. Hins vegar er enn einu sinni kveðið afar fast að orði í grg. og þá einhver ónefndur hópur fiskimanna ásakaður um verknað, sem er svo ægilegur, eins og þar segir, að það tjón, sem landsmönnum er búið af þessum veiðum í Faxaflóa, verður ekki með tölum talið. Það er einhver hópur sjómanna, sem er ægilegur, líklega sjómenn úr Reykjavík, nokkrir úr Keflavík, 2–3 úr Kópavogi og 2–3 úr Hafnarfirði, en hins vegar eru sjómennirnir á Akranesi ekki svona hættulegir. Það eru aftur rök og eðlileg sjónarmið, að við þurfum að fiska með gætni og gá að okkur. Það er almennt sjónarmið, sem við tökum allir undir, og það kom skýrt fram í ræðu frummælanda fyrir frv., að ávinningur dragnótabáta er ekki slíkur, að það taki því að vera að stunda þessa veiði, og þess vegna er alveg hægt að leggja það niður.
Ég vil upplýsa það hér, að okkur, sem skipuðum svokallaða landhelgisnefnd á Alþ., hefur verið falið að endurskoða lögin um dragnótina. Við reyndum að athuga það lítils háttar í fyrra, en þá var ekki hljómgrunnur fyrir því að breyta dragnótalögunum. Dragnótalögin eru hálfgerð vandræðasmíð, samþ. á hv. Alþ. 1961, og staðbundin sjónarmið voru látin ráða mjög miklu í sambandi við samningu þeirrar löggjafar, og það væri æskilegt, að heildarfriðunarsjónarmið ætti meiri hljómgrunn í löggjöf, sem næði hér fram að ganga. Undir það vil ég taka. En það stendur í grg. og stendur einnig í 1. gr. frv., að banna eigi veiðar með flotvörpu eða botnvörpu í Faxaflóa. Nú var hér samþ. fyrir einu og hálfu ári lítils háttar hólf um takmarkaðan tíma fyrir botnvörpu. Það fylgir samþykkt á þeim lögum, að það á að ljúka endurskoðun dragnótalaganna fyrir árslok. Sú endurskoðun mun áreiðanlega fara fram vegna þess, að ef hún fer ekki fram og nýtt frv. kemur, þá verður öll dragnóta löggjöfin í ólestri, og áreiðanlega kemur Faxaflói þar við sögu eins og aðrir staðir á landinu. Ég get því ekki tekið undir það umsvifalaust, nema betri rök liggi fyrir, að botnvarpan í fyrrnefndu hólfi fylgi hér með.
Hér stendur í grg., að Faxaflói sé fiskilaus á flestum tímum árs a.m.k. miðað við það, sem áður var. Þessi síðasti liður slær nokkurn varnagla við fyrri fullyrðingunni, en sú staðhæfing, að Faxaflói sé með öllu fiskilaus, fær ekki staðizt, og það sannar einmitt umrætt fskj., sem er sent frá Akranesi, og ég ætla að leyfa mér að eyða nokkrum orðum að.
Á árinu 1960, þó að þar sé fyrst og fremst fjallað um ýsuafla, er heildarýsuaflinn 159 tonn, en 1969 er heildarýsuaflinn 206 tonn; hann hefur aukizt um fjórðung. Hins vegar er sóknin mun meiri, og þess vegna kemur minni meðalafli fram, og það er alvarlegt mál. En það fylgir engin grg. — ekki stafkrókur um það, á hvaða fleytum sótt er. Eru það smábátar eða stórir bátar? Þetta er svo einhliða, að ekki er hægt að taka það of alvarlega. En um leið fellur staðhæfing um það, að flóinn sé fiskilaus, því að skýrslan sýnir, að það er meira aflamagn tekið á land. Einnig kemur fram, að 1965 er aflamagnið 510 tonn á móti 159 tonnum 1960. Hins vegar minnkar aflamagnið og er orðið 381 tonn 1966 og fer svo niður í rúm 100 tonn árið 1968, en er aftur rúm 200 tonn 1969. Það eru aflasveiflur bæði hér í Faxallóa og víða annars staðar. Ég get nefnt einfalt dæmi um, hversu óhemju miklar aflasveiflurnar eru frá ári til árs, og menn geta deilt um það, hverju það er að kenna. T.d. má nefna, að 1969 veiddist hvorki meira né minna en tæp 1000 tonn af ýsu á Skjálfanda, og er það algert met. Ýsuaflinn hafði farið vaxandi þar nokkru áður, en þetta var hámark. Það dettur engum manni í hug, sem til þekkir, að við fáum neitt í líkingu við slíkt aflamagn af ýsu næstu árin á Skjálfanda. Það er næstum óhugsandi. Menn geta sagt, að það sé vegna þess, að dragnót var stunduð. Sjálfsagt getur hún átt þátt í minnkandi afla 1970 og e.t.v. 1971. En það liggja engin óyggjandi rök fyrir slíku. Það er svo margt annað, sem hefur áhrif á þetta.
Ég hefði haft gaman af því, að Akurnesingar, svo vanir sjómenn og góðir sem þeir eru, hefðu minnzt á ein aflamið, sem eru í Faxaflóa ekki langt undan Akranesi og heita Melakríki. Sá Melakríki skipar nokkurn sess í atvinnusögu Akraness, því að á þessum aflamiðum afla nú Akurnesingar sands í iðnaðinn, og sú sandtaka, hvort sem menn vilja trúa því eða ekki, hefur orsakað það, að það fiskast ekkert þar á stóru svæði á þessum góðu aflamiðum, sem voru mjög gjöful í mörg ár áður, og þekktu allir til fiskisældar á þeim slóðum. Nú hins vegar litast sjórinn í alllangan tíma í hvert skipti, sem sandur er tekinn, og það fæst ekki bein úr sjó í námunda við sandtökuna. E.t.v. skiptir þetta ekki miklu máli í heildarmyndinni, en það má þó láta fylgja með, að það eru til ýmsar samverkandi orsakir, sem eru skýringin á þessum mismun á aflamagni frá ári til árs. Við gætum líka á þessum tímum mengunar talað um það, að hugsanleg skýring væri vaxandi mengun frá Stór-Reykjavíkursvæðinu, þar sem allt, sem til félli innst í Faxaflóa rynni hér út með honum að vestanverðu og hefði sín áhrif á fiskigöngur. Það er ekki ólíklegt, en um þetta liggur enginn stafkrókur fyrir.
Hitt er vel skynsamlegt að fara að með gát, og undir það meginsjónarmið vil ég taka mjög rækilega. Hef ég alltaf verið talsmaður þess, að til öryggis friðuðum við viss svæði, þannig að eins vel væri séð fyrir framtíðinni og hægt væri. Og fyrst hv. ræðumaður minntist á síldveiðarnar, ætla ég að leyfa mér að vitna í það, að ég var fyrstur manna, sem skrifaði opinberlega grein í blað um það, löngu áður en hljómgrunnur fékkst hjá mönnum fyrir því, bæði honum og öðrum, að takmarka síldveiðarnar suðvestanlands, og þótti sú grein svo fáránleg á sínum tíma, að mér var æ ofan í æ strítt á henni. En það kom í ljós, að það má of mikið af öllu gera.
Það er spurt hérna í fskj. með margumræddri grg.: „Við viljum spyrja, hver stjórni þessu háttalagi. Er það Hafrannsóknastofnunin eða einhver annar aðili?“ Það er enn gefið í skyn, að það séu einhverjir ótuktarsjómenn, einhverjir ótuktarmenn, svo slæmir, að þeir vilji öllum illt. Undir þetta sjónarmið vil ég ekki taka nema fá það rökstutt eitthvað betur. Ég ætla reykvískum sjómönnum ekki, sem eru togbátamenn eða hafa þessa örfáu báta, sem voru aðeins þrír s.l. ár og kannske eitthvað fleiri undanfarin ár, að þeir séu slíkar ótuktir, að þeir vilji bæði sjálfum sér og öðrum illt. En kannske eru þeir slíkir fávitar eða ekki nógu fróðir um fiskifræðina til að gera þetta þannig óafvitandi. En mér finnst, að það eigi ekki að ásaka þessa menn svo gegndarlaust hér, nema það sé rækilega rökstutt. Ég býst við, að þegar fyrir þeim liggur skýr grg. um það, að þeir hafi hér stuðlað að óskynsamlegum veiðum, þá sjái þeir sinn hag alveg eins og hag annarra í því, að rétt sé að stöðva slíkar veiðar og gerast þannig stuðningsmenn aukinnar friðunar í Faxaflóa. Menn geta áreiðanlega verið í flestum tilfellum sammála um það. En sleggjudómar í því efni eiga ekki að eiga sér stað né órökstuddar ásakanir á ákveðinn hóp manna.
Ég veit, að 1. flm. er ákaflega mikill baráttumaður fyrir friðun flóans, og ég tek undir það sjónarmið enn einu sinni; það er rétt og gott. En ég veit það, að það er hans vandi að fara að öllu með skynsemi og rökstuðningi, og mér finnst, að það hafi hlaupið nokkurt kapp í hann í þessum rökstuðningi og í grg. Það er eiginlega það, sem ég er að gagnrýna hér, því að hann segir hér á bls. 2, að það sé nokkuð langt gengið, þegar hver fiskur hafi verið drepinn á grunnmiðum í Faxaflóa. Það sé of seint upp staðið þá til friðunar, og þetta er auðvitað rétt. En mér sýnist skýrslan, sem hann vitnaði í, frá Akranesi um heildarmagn sanna það, að heildaraflamagnið hefur ekki minnkað, en hins vegar er sóknin mun meiri. En það kemur heldur ekki fram, með hverjum hætti sóknin er, hvort það eru miklu fleiri smábátar, t.d. 50 smábátar, 11 eða 15 tonn, eða 30 bátar upp á 50 tonn. Þetta eru auðvitað gjörólíkir hlutir saman að jafna. Við getum ekki búizt við neinum slíkum meðaltalstölum nema fá að vita nákvæmlega um samsetningu bátaflotans, sem sækir á þessi mið.
Að öðru leyti skal ég ekki tefja umræður um þetta frv., en ég styð meginhugsunina um friðun fyrir dragnótaveiðum, en vildi aðeins undirstrika það, að mér finnst stór orð standa í grg. og látið liggja að því, að ákveðinn hópur manna hafi hagað sér mjög ótuktarlega hér á svæðinu.