25.03.1971
Neðri deild: 69. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1897 í B-deild Alþingistíðinda. (2071)

222. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Ég skal ekki fara langt út í umr. í sambandi við þetta frv. Hins vegar kemur mér það á óvart, ef þetta frv. markar ekki frekar stefnu hæstv. landbrh. og meiri hl. á Alþ. en hinna, sem minni hl. skipa, og ég geri ráð fyrir því, að þegar hv. stjórnarsinnar fara að túlka það í þessum málum, sem þeir telja sér í hag, þá verði Framsfl. ekki eignað það eða a.m.k. ber þá nýrra við, og eru þá vinnubrögðin orðin önnur en við höfum vanizt hér á hv. Alþ. sem stjórnarandstæðingar.

Annars er það fleira, sem ber upp á sama dag þessa síðustu daga þingsins en áður hefur verið, og það hefur stundum verið háttur hv. stjórnarsinna að taka sig til og leggja saman till., sem stjórnarandstaðan hefur flutt í sambandi við afgreiðslu fjárl. Hafa þeir þá haft þau vinnubrögð að leggja við till., sem búið er að fella við 2. umr., og bæta henni við flutning till. við 3. umr. En ef einhver tæki sig til og legði saman frv., sem hæstv. ríkisstj. hefur lagt nú fram á hv. Alþ. og ætlazt er til, að fjárveitingar komi til eftir hennar dag eða eftir árið 1971, þá yrðu þar allháar fjárhæðir. Þegar fjárlagaafgreiðsla fór fram í vetur, þá var ofrausn að láta í Framleiðnisjóð landbúnaðarins 5–10 millj. kr. Nú eru 23 millj. kr. til Landnámsins ekki of mikið, nema síður sé, enda verður það ekki greitt fyrr en eftir áramótin 1971–1972. Út í þessa hluti ætla ég ekki að fara, þótt ég veki aðeins athygli á þeim, vegna þess að þetta er að verða svo áberandi, að frv. á að samþykkja núna, en greiðslurnar eiga allar að koma eftir næstu áramót.

Hins vegar vildi ég við þetta tækifæri lýsa þeirri skoðun minni, sem ég hef reyndar lýst áður, sem er sú, að okkur sé nauðsyn á því, Íslendingum, að sameina stofnanir en fjölga þeim ekki — hafa ekki tvær til þess að vinna það verkefni, sem ein gæti annazt. Ein af þeim stofnunum, sem ég hef látið orð að liggja, að ég teldi, að ætti að hætta starfsemi hér á landi, er Landnám ríkisins, og ég vil við þetta tækifæri undirstrika það. Ég lít svo á, að Búnaðarfélag Íslands sé sú stofnun, sem eigi að efla í þessu sambandi. Það er allt annar svipur á þeirri stofnun frá mínum bæjardyrum séð en á ríkisstofnun, svo sem Landnámið er. Búnaðarfélag Íslands er stofnun, sem stjórnað er af stjórn, sem bændurnir í landinu kjósa á Búnaðarþingi. Það er stofnun, sem stjórnað er af Búnaðarþingi, sem haldið er árlega og markar stefnuna hverju sinni. Þessa stofnun tel ég, að eigi að efla. Það er þessi stofnun og Stéttarsamband bænda, sem á að vera höfuðmálsvari landbúnaðarins og hafa þau verkefni, sem skipta landbúnaðinn máli. Ég tel, að það sé röng stefna, hvort sem það er í sambandi við Landnám ríkisins eða á annan hátt, að vera að láta tvo aðila framkvæma verk, sem einn getur unnið. T.d. á Landnám ríkisins nú að greiða fjárhæð út á hvern hektara ræktaðs lands til viðbótar því, sem Búnaðarfélag Íslands gerir. Hvaða hv. þm. vill halda því fram, að það séu betri greiðslur, sem komi til á tveim ávísunum? Mér dettur ekki í hug, að nokkur haldi slíku fram. Ég held líka, að öllum sé það ljóst, að með þessu kerfi verður það að gerast, að allar skýrslur, sem að þessum málum lúta, verða sendar tveimur stofnunum í stað þess, að þær gætu fallið einni til. Þess vegna vil ég segja það, að ég tel þá stefnu ranga að reyna ekki að sameina stofnanir í landinu frá því, sem nú er. T.d. tek ég eftir því í grg. þessa frv., að það er talað um það, að komið hafi til mála að sameina Vélasjóðinn Landnáminu, en nefndin féll frá því og leggur það ekki til. Út af fyrir sig er mér það ljóst, að þessar stofnanir og þessi starfsemi gat átt rétt á sér á sínum tíma, enda var þá miðað við önnur verkefni og önnur viðhorf en nú er orðið. Og margt hefur breytzt í tækni nútímans, sem gerir sameininguna nauðsynlega, t.d. skýrsluvélar og annað því um líkt. Það er allt annað að vinna að þessum verkum nú en fyrir 20–30 árum. Skýrsluvélar eru það afkastamiklar, að þær þurfa stór verkefni, til þess að not séu af þeim að ráði. Og þess vegna ber nauðsyn til, að þannig sé á verkefnunum haldið, en þau komi ekki frá mörgum aðilum í smáum einingum.

Ég lít svo á, að starfsemi Vélasjóðs, eins og hún er rekin núna, sé í raun og veru búin að missa tilverurétt sinn, og það hefði verið spor í rétta átt, ef þessi tvö fyrirtæki hefðu verið sameinuð. Ef við komum suður í Fossvog í vélaverkstæði Vélasjóðs, komum við í hús, þar sem eru tvær stofnanir með vélaverkstæði í sama húsi. Það er þil á milli; annars vegar er Landnámið, hins vegar er Vélasjóður. Það þarf ekki orðum að því að eyða hér á hinu hv. Alþ., hversu óhagkvæmt þetta er. Nú vita það allir, þó að ekki hafi neina sérstaka þekkingu á vélaviðgerðum, að þær byggjast að verulegu leyti á góðum verkfærum, dýrum verkfærum. Því minni sem starfsemin er, því óhagkvæmara verður það að nota þessi dýru og góðu verkfæri. Þess vegna er það auðvitað eðlilegt, að þetta sé sameinað, svo að það sé hægt að nota í þessu tilfelli sem öðru tækni nútímans, en ekki hafa þetta músarholusjónarmið, sem þarna ríkir. Reynslan er svo sú, að hallinn á Vélasjóði er orðinn svo mikill, að það væri ódýrara að greiða aukið framlag til skurðgraftar á Vestfjörðum en sem nemur því, sem talið er, að kosti að reka Vélasjóð vegna Vestfjarða. Það væri hentugra að greiða þeim aukið framlag til þessarar starfsemi en reka Vélasjóð með þeim halla, sem nú er á honum orðinn. Mér er það fullkomlega ljóst, og því verður ekki með rökum mótmælt, að það er ekki hægt að koma að nýjum verkefnum í okkar þjóðfélagi, svo að nokkurt lag sé á, ef við ætlum að halda uppi öllu kerfinu, eins og við gerum nú, og mér er það undrunarefni, að stjórn, sem Sjálfstfl. hefur veitt forustu — en hann hefur ekki talið sig vera sérstakan ríkisrekstrarflokk — skuli hafa aukið við og styrkt ríkiskerfið í jafnríkum og verulegum mæli sem þessir valdhafar hafa gert.

Ef hv. þm. vildu kynna sér það, þá yrðu þeir jafnsannfærðir og ég um það, að þjóðfélagið allt er að meira og minna leyti orðið flækt í ríkisrekstrarkerfi Sjálfstfl. og Alþfl. Það er greinilegt á öllum frv. síðari tíma, hversu embættiskerfið í landinu hefur gert sér far um að auka áhrif sín í framkvæmd mála, og mér sýnist án þess að ég skuli fara langt út í þetta, að þetta frv. sé engin undantekning þar um. Það er stefnt þar eins og í öðrum lagafrv. nú á síðari árum að því að auka vald embættiskerfisins.

Þetta frv., ef að l. verður, enda þótt sumt af því hafi verið í l. áður, gefur landnámsstjóra verulega möguleika til þess að móta stefnuna í landbúnaðarmálum. Og það er ekki laganna dyggð, þó að til landnámsstjórastarfsins veljist menn, sem ekki beiti áhrifum sínum á annan veg en æskilegt er. En ég þykist sjá það í IV. kaflanum í 28. gr., að verkefni Landnáms ríkisins séu það mikil, að þar geti orðið um verulega stefnumótun að ræða, og frá mínum bæjardyrum séð legg ég það ekkert að jöfnu, hvort Landnám ríkisins, ríkisstofnun, eða Búnaðarfélag Íslands, sem bændurnir í landinu stjórna, marka stefnuna. Það er ekkert sambærilegt frá mínum bæjardyrum séð. Og þess vegna vildi ég segja það, að þessi stefna, sem í þessu felst, er andstæð því, sem mín hugsun hnígur að. Hins vegar er mér það ljóst, að meðan ekki er breytt um landbúnaðarstefnu eða stefnu í framkvæmd þessara atriða, þá verða auðvitað að vera l. um Landnámið og verkefni þess, fyrst öðrum aðila eru ekki fengin þau. Og ég hjó eftir því í hinni skemmtilegu og vel sömdu ræðu hv. 5. þm. Austf., sem ég hafði gaman af að hlusta á sem ræðu, þó að ég væri honum ekki alls kostar sammála um einstök atriði, að með þessu frv. væri verið að tryggja Landnáminu fjármuni til landbúnaðarmála. Og það, sem ég held, að ráði afstöðu kannske hans og fleiri þeirra, sem að þessu frv. hafa staðið, er einmitt það, að þeir treysta ekki núv. valdhöfum til þess að sinna svo málefnum landbúnaðarins sem skyldi og kjósa því þessa leið til þess að ná til þeirra fjármuna, sem þeir treysta ekki, að hægt sé að ná að öðrum kosti. Þetta út af fyrir sig virði ég og met, en mér er það hins vegar ljóst, að það er ekki hægt fyrir þá, sem ekki ráða ferðinni, að marka stefnuna, og þess vegna veit ég, að sumt af því, sem í þessu frv. er, hefur hv. 5. þm. Austf. orðið að sætta sig við, þó að hann hefði kosið að hafa það á annan veg.

Ég skal svo ekki lengja þessar umr. meira en orðið er, en ég vil endurtaka það, að það, sem skiptir máli í landbúnaði, er ekki þetta frv., það er ekki aukið vald ríkisstofnunar, heldur er það breytt stefna, sem þarf í landbúnaðarmálum — stefna, sem miðar að því, að bændur landsins og það fólk, sem að landbúnaðarframleiðslu vinnur, hafi svipuð kjör og aðrar stéttir í þjóðfélaginu. Það er sú stefna, sem þarf að marka. Sú stefna verður bezt mörkuð með því, að Búnaðarfélag Íslands, bændurnir í landinu og Stéttarsamband bænda fái vald til þess að marka þá stefnu og þeir fái ráðið því fjármagni, sem ríkið veitir til landbúnaðar á Íslandi. Þetta er sú stefna, sem þarf að vinna að hér á hv. Alþ., ef tækist að breyta valdahlutföllum frá því, sem nú er.