02.04.1971
Efri deild: 88. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1909 í B-deild Alþingistíðinda. (2088)
222. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Það er rétt, sem hv. 5. þm. Sunnl. sagði, að n. er einhuga um till. þær, sem hér eru fluttar. Hins vegar hafa einstakir nm. áskilið sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt., ef fram kæmu. En frv. þetta er flutt í Nd. Alþ. af þeim hv. þm., sem sæti áttu í þeirri mþn., sem endurskoðaði vissa kafla í l. um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám og ræktun í sveitum með meira. Þessi endurskoðun nær einkum til landnámsins. En sá lagabálkur, sem þarna fylgir með, er allstór og viðamikill, þ.e. Stofnlánadeild landbúnaðarins. Hefur ekki farið fram nein endurskoðun á þeim hlut laganna.
Það væri sannarlega ástæða til þess, að ræða þessi mál nokkuð ítarlega, en af ýmsum ástæðum mun ég ekki gera það að þessu sinni og get látið nægja að vísa til þess, sem ég hef áður sagt hér í vetur, er ég talaði fyrir frv. til l. um breytingu á lausaskuldum bænda í föst lán og skuldaskil með meira. Ég get vísað að miklu leyti til þess, að því er varðar kaflann um Stofnlánadeild landbúnaðarins. En ég tel, að ein meginástæðan fyrir lausaskuldum bænda sé það, hversu lítið hefur verið lánað allajafna til byggingar íbúðarhúsa og til vélakaupa. Lánin hafa yfirleitt verið lægri til íbúðarhúsa í sveitum en þau hafa verið samkv. l. um Húsnæðismálastofnun ríkisins og einnig, ef tekin eru með l. um verkamannabústaði, svo að maður tali ekki um þau lán, sem margir fá og hafa aðgang að úr lífeyrissjóðum, en það eru allmargir, sem betur fer, en ekki allir enn þá. En vonir standa til, að úr því kunni að rætast í framtíðinni hjá bændum með stofnun þess lífeyrissjóðs, sem nýverið hefur verið lögfestur hér á Alþ. En eigi að síður hafa lánin til íbúðarhúsa í sveitum vissa kosti fram yfir þau lán, sem aðrir njóta, og ber að geta þess líka um leið, að þau eru til 42 ára og þau eru óháð vísitölu og skilur þar allmikið á milli þeirra lána, sem veitt eru af húsnæðismálastjórn, og yfirleitt hafa þeir farið miklu verr út úr sínum lánum, er þau hafa fengið, þó að þeir hafi búið við lægri vaxtakjör vegna þess, að vísitalan hefur hækkað ört og dýrtíðin hefur verið svo mikil, að þetta hefur orðið þeim, sem þau lán hafa tekið, óhagstæðara með hverju ári, sem hefur liðið. Ég minni aðeins á þessa hluti vegna þess, að þetta skiptir þá bændur, sem byggja yfir sig, miklu máli að fá sem mest að láni úr Stofnlánadeild, af því að þau lán eru til tiltölulega langs tíma og því viðráðanlegri bændum og betri en víxlar eða skuldir hjá annaðhvort verzlunum eða einhverjum öðrum, sem lána til skamms tíma. Oft eru háir vextir af þeim lánum og því erfiðara við þau að fást en ef um föst langtímalán er að ræða.
En það, sem ég ætla aðallega hér að ræða um, eru þær brtt., sem við flytjum hér, hv. 2. þm. Austf. og ég, en það er ekki búið að útbýta þessum brtt., en þær eru á margan hátt hliðstæðar þeim till., sem lagðar voru fram í Nd. og eru þar á þskj. 625. Breytingarnar eru við 61. gr. frv. Það er í fyrsta lagi, að í stað 120 þús. kr. komi 160 þús. kr., en 160 þús. kr. eru mjög nálægt því, sem framlag þetta var hlutfallslega af byggingarkostnaði, þegar fyrst var upp tekinn sá háttur að veita nokkurt framlag til íbúðarhúsabygginga. Ég vil geta þess, að hér getur ekki orðið um stór, árleg útgjöld að ræða hjá Landnáminu, en hins vegar mun þetta létta þeim byrðarnar, sem standa í íbúðarhúsabyggingum.
Önnur brtt. okkar við sömu lagagr. er sú, að á þessa upphæð, sem ákveðin er, komi árlega til viðbótar sú hækkun, sem verða kann á byggingarvísitölu, og enn fremur, að þessar breytingar verki aftur fyrir sig og nái til þeirra íbúðarhúsabygginga, sem reistar hafa verið frá og með 1969. Enda voru lánin út á íbúðir það ár og þar áður mjög lág og ekki nema 300 þús. kr. þar til í fyrravetur, að þessi lán voru hækkuð, að mig minnir, upp í 450 þús. kr., en framlagið, 60 þús. kr., hefur verið óbreytt um margra ára skeið.
Þriðja brtt. okkar er við 2. mgr. 4. liðar 61. gr. Og með leyfi forseta vil ég lesa hana. Hún hljóðar svo: „Í stað 2. mgr. 4. liðar komi:
Til endurræktunar túna vegna kals eða annarra skemmda, að viðbættu framlagi samkv. jarðræktarlögum, allt að 80% af ræktunar- og girðingarkostnaði, samkv. meðalverði hvers árs. Þó skal ekki veita framlag á sama land með styttra millibili en þremur árum. Sama heimild gildir, þó að annað land sé tekið til ræktunar í stað hins skemmda túns, enda sé það gert í samráði við héraðsráðunaut og landnámsstjóra ...“
Hér er um talsverða hækkun að ræða frá því, sem frv. gerir ráð fyrir, þegar bændur þeir, sem hafa orðið hart úti vegna kals og skemmda í túnum, endurrækta þessi tún eins og margir hafa gert og fleiri munu hafa hug á að gera í framtíðinni og eru til neyddir vegna þess, að mikið af þeirra túnum er þannig, að það eru ekki líkur til, að án nokkurrar aðgerðar komi gras á þau á næstu árum. Skaðinn, sem bændur hafa því orðið fyrir á þessu sviði á köldu árunum, er mjög mikill, og því er mjög réttmætt að koma til móts við þá á ríflegan hátt. Annað gæti kannske kostað þjóðarheildina meira, því að léleg hjálp er oft verri en engin hjálp.
Þá er síðasti hluti brtt. okkar um það, að 5% af því, sem Landnámið leggur fram til jarðræktar, renni til hlutaðeigandi búnaðarsambands, og er þetta hliðstætt því, sem hefur lengi gilt og gildir enn um framlög ríkisins samkv. jarðræktarl., því að frá þeim eru dregin 5%, sem renna til hreppabúnaðarfélaga og eru notuð til félagsstarfsemi margs konar og til kaupa á vélum og verkfærum eftir því, sem talið er heppilegt í hverju tilviki hjá þeim ráðandi mönnum.
Fleiri brtt. flytjum við ekki, en vonum, að hv. þm. samþykki till. þessar. Frv. þetta fer, að ég ætla, aftur til hv. Nd., og hér er ekki um að ræða af okkar hálfu þær till., sem geta orðið til þess að kollvarpa neinu í frv. þessu. Búnaðarþing fjallaði um frv. þetta og lagði til, að á því yrðu gerðar nokkrar breytingar. Sumar af þessum till. voru samþykktar í hv. Nd., en hinar eru á meðal þeirra till., sem liggja hér fyrir og ég hef þegar lýst.
Það væri ástæða til að ræða talsvert um þetta mál, en það mun ég ekki gera nú af ýmsum ástæðum. Það er ýmislegt í frv. þessu, sem til bóta horfir frá því, sem áður hefur verið í þessum l., og vil ég þá fyrst nefna, að það er, eins og málin standa nú, heppilegt að draga í land með það að fjölga býlum og getur líka í vissum tilfellum verið til bóta að sameina lögbýli, ef þau losna úr ábúð. Í öðru lagi eru það aukin réttindi í félagsræktun og félagsbúskap. Það finnst mér horfa til bóta, þegar um er að ræða ólögboðinn og frjálsan félagsskap eins og mun þarna verða í flestum tilfellum, því að yfirleitt má segja um bændastéttina, að hún vill sem minnstar lögþvinganir. Því er þessi háttur beztur á í þessum efnum að lögþvinga ekki en veita aukinn stuðning, þegar vilji bændanna sjálfra er fyrir hendi í þessum tilfellum.
Þá vil ég líka nefna það, að þegar um aukinn fóðurforða er að ræða — og við höfum hug á því að koma upp fóðurbirgðum milli ára — þá hef ég trú á því, að grænfóðurræktun og grænfóðurverksmiðjur geti orðið mjög til þess að efla þetta og sömuleiðis til þess að spara gjaldeyri, sem við höfum orðið að eyða á undanförnum árum í fóðurbætisinnflutning. Það er eðlilegt, að við hugleiðum málið út frá þeim sjónarhól, að við getum sem mests fóðurs aflað innan lands og reynum að miða öll framlög af ríkisins hálfu til þeirra hluta við það, að við getum sparað ríkinu gjaldeyri og búið eigi lakara búi eftir en áður. Þá vil ég líka á það minna, að það er mjög mikilsvert, að það eru tekin upp framlög til þess að leita að heitu vatni og nýta það í ríkara mæli en kostur hefur verið á áður. Þarna eru kannske falin í jörðu einhver þau mestu auðæfi, sem við eigum eftir að notfæra okkur í framtíðinni á margvíslegan hátt.
Ég vil þó líka, úr því að ég minnist á aðalkosti við þetta frv., um leið minnast á nokkur atriði, sem ég tel, að síður horfi til bóta, og þá vil ég benda á það, að með þessu frv. er því slegið föstu, að áfram skuli Landnámið greiða viðbótarframlag á jarðrækt eins og verið hefur, en það framlag var áður miðað við hámarkshektarafjölda hjá hverjum og einum og einnig bundið við vissan árafjölda. Mér fannst það á sínum tíma vera eðlilegt, að Landnámið hefði þetta með höndum, þar sem raunverulega var um bráðabirgðaákvæði að ræða og þau féllu út af sjálfu sér síðar meir. En ég fæ ekki betur séð en nú sé þetta lögfest áfram og fylgi starfsemi Landnámsins. En ég hefði talið það vera til mikilla bóta, að þar sem við búum við aðra löggjöf, sem hefur hliðstæð verkefni með höndum, sem eru jarðræktarlög, þá hefði framlag þetta verið sameinað og því þægilegra við að eiga og kostað minni vinnu bæði hjá Landnáminu og Búnaðarfélaginu og í öðru lagi minni vinnu hjá héraðsráðunautum búnaðarsambandanna, búnaðarfélagastjórnum og öðrum aðilum.
Ég legg ekki til, að þessu verði breytt nú, því að ég veit, hvers eðlis mál þetta er; það þarf að hafa rýmri tíma til stefnu til að fjalla um þessi mál en nú er. Það eru líka ýmis önnur ákvæði í þessu frv., sem vafalaust þurfa endurskoðunar við, áður en langir tímar líða, og hef ég þá í huga samskipti Landnáms ríkisins og sveitarstjórna í landinu. Og ýmislegt er fleira, sem ástæða væri til að tala um og endurskoða, áður en langt um líður, og í trausti þess, að það líði ekki langir tímar, þar til sú endurskoðun fer fram, fylgi ég frv. án viðtækari breytinga en ég hef lagt til. Ég bið hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir till. okkar, þar sem þeim hefur ekki verið útbýtt í hv. þd.