31.03.1971
Neðri deild: 79. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1917 í B-deild Alþingistíðinda. (2119)

303. mál, sérfræðileg aðstoð fyrir þingflokka

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég mun greiða atkv. með því, að þessu frv. á þskj. 714 um sérfræðilega aðstoð fyrir þingflokka verði vísað til 2. umr. og til fjhn. Hitt vil ég láta koma fram, að mér er efni þess ekki geðfellt og mér er ekki geðfellt að undirstrika flokksmennskuna og flokksræðið á þann hátt, sem gert yrði með þessu frv., ef að l. yrði. Ég viðurkenni það, að þörf geti verið á sérfræðilegri aðstoð fyrir þm., en mín skoðun er sú, að þeirri aðstoð yrði bezt fyrir komið á þann hátt að efla skrifstofu Alþingis, sem starfar í þágu þingsins og þingmanna, og koma þar upp t.d. í tengslum við skrifstofuna sérstakri upplýsingadeild fyrir alþm., þar sem þeir gætu látið afla fræðilegrar vitneskju um þau mál, sem fjallað er um í þinginu hverju sinni. Þetta vil ég láta koma fram, en skal að öðru leyti ekki fjölyrða um þetta mál.