25.03.1971
Neðri deild: 69. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1921 í B-deild Alþingistíðinda. (2148)
191. mál, byggingarsjóður aldraðs fólks
Frsm. (Guðlaugur Gíslason):
Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur haft til athugunar frv. það, sem hér liggur fyrir, en efni þess er breyt. á l. nr. 49 frá 20. apríl 1963 um Byggingarsjóð aldraðs fólks.
Breyt. sú, sem hér er lagt til, að gerð verði á þessum l., er að efni til á þann veg, að heimilt verði að veita styrki úr sjóðnum, sem nemi allt að 50% af árlegum tekjum hans, til byggingar á hentugum íbúðum og dvalarheimilum fyrir aldrað fólk. N. varð sammála um að leggja til, að frv. yrði samþ. Einstakir nm. áskildu sér þó rétt til að flytja eða fylgja brtt., sem fram kynnu að koma. N. tók ekki efnislega afstöðu til þeirrar brtt. við frv., sem er á þskj. 366, en einstakir menn áskildu sér rétt til þess að fylgja eða flytja brtt., eins og ég gat um áðan. Að öðru leyti lagði n, til, að frv. yrði samþ.