06.04.1971
Efri deild: 94. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1922 í B-deild Alþingistíðinda. (2157)

191. mál, byggingarsjóður aldraðs fólks

Frsm. (Axel Jónsson):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. þessarar hv. d. hefur tekið frv. það, sem hér um ræðir, fyrir á einum fundi. Segja má, að skammur tími hafi að vísu gefizt til athugunar málsins, en við meðferð málsins í Nd. kom það í ljós, að ekki var ágreiningur um efni frv., þó að einstakir dm. þar létu í ljósi, að fjármagna þyrfti Byggingarsjóðinn frekar en nú er. En meginbreytingin, sem frv. felur í sér, er sú, að lagt er til, að gerð verði breyting á l. nr. 49 20. apríl 1963, um Byggingarsjóð aldraðs fólks, og l. nr. 23 19. apríl 1968 þess efnis, að heimilt verði að veita styrki úr sjóðnum, er nemi allt að 50% af árlegum tekjum hans, til byggingar á hentugum íbúðum og dvalarheimilum fyrir aldrað fólk. Tekjur þessa sjóðs eru samkv. l. ágóði af Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna samkv. ákvæðum í l. um happdrættið, vaxtatekjur sjóðsins og frjáls framlög eða aðrar tekjur, sem til kunna að falla. Eins og fram kemur í nál. á þskj. 846, áskilja einstakir nm. sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt., sem fram kunna að koma, en einn nm., Jón Árm. Héðinsson, var fjarstaddur sökum veikinda.

Hér hefur verið lögð fram brtt. á þskj. 878, sem gengur mjög í sömu átt og brtt., sem fram kom við meðferð málsins í hv. Nd. Ég skal láta liggja milli hluta að ræða hana efnislega, vil þó tjá sem mína skoðun, að eðlilegt sé, að framlög sem þessi, hvort heldur er varðandi Byggingarsjóð aldraðs fólks eða um hliðstæða starfsemi er að ræða, verði ákveðin við afgreiðslu fjárl.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að fara um frv. fleiri orðum á þessu stigi, en legg til, að það verði samþ. óbreytt.