04.11.1970
Efri deild: 11. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 330 í B-deild Alþingistíðinda. (220)

18. mál, kirkjuþing og kirkjuráð

Dómsmrh. (Auður Auðuns):

Herra forseti. Ég þakka þn. fyrir skjóta og jákvæða afgreiðslu málsins. Það er eins og hv. frsm. menntmn. sagði, að það kunna að vera skiptar skoðanir um kirkjuþing og kirkjuráð, sem mun einnig hafa komið fram á sínum tíma, þegar l. þar um voru sett, en þær breytingar, sem í frv. felast hins vegar, eins og hann réttilega tók fram, skipta út af fyrir sig ekki máli í því sambandi. Önnur breytingin er í beinu framhaldi af lagabreytingum frá síðasta þingi og sú síðari augljóslega til að gera einfaldari kosningu til kirkjuþings. Eins og hv. þm. munu hafa orðið varir við, þá er kirkjuþing kosið samkv. ákvæðum þessara brbl. þegar setzt á rökstóla. Ég vil þá sem sé aðeins endurtaka þakklæti til þn. fyrir, eins og ég áður sagði, skjóta og jákvæða afgreiðslu málsins.