07.04.1971
Efri deild: 97. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1948 í B-deild Alþingistíðinda. (2201)

109. mál, verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Til þess er ætlazt, að Ed. afgreiði hér raunar nýtt frv. við eina umr. um það mál, sem við höfum áður látið vilja okkar í ljósi um. Hér í þessari breyt., sem gerð hefur verið á frv., er gert ráð fyrir því, að álímingar á sígarettupakka, sem fela í sér viðvörun við reykingum, séu felldar niður. Ég var einn af flm. þess, að þessar álímingar væru teknar upp ásamt hv. þm. Pétri Benediktssyni o.fl. Okkur er sagt, að þessar álímingar hafi ekkert gildi haft, og raunar er framkvæmd þeirra þannig, að ætla má, að þær hafi litið gildi haft. (Forseti: Ég vil aðeins vekja athygli hv. þm. á því, að eigi að verða miklar umr. um þetta mál, þá mun það ekki hljóta afgreiðslu hér í d., þar sem tíminn er mjög naumur.)

Ég tek það svo, að mér sé þá fyrirmunað að halda hér ræðu, og ég skal taka það til greina að nokkru leyti, en ég vek athygli á því, að hér er um nýtt mál að ræða, sem ekki hefur verið rætt hér í Ed. áður. Það er að fella niður þá ákvörðun, sem við tókum fyrir tveimur árum, að líma viðvörun á sígarettupakka. Okkur er sagt, að þessi viðvörun hafi engan árangur borið, en skýrslur sýna, að sígarettusala hefur stórlega minnkað, síðan þetta ákvæði var tekið upp. Og menn geta náttúrlega leikið sér að því að útbúa skýringar á því, hvers vegna þetta sé, en ég leyfi mér að þakka það þessu ákvæði. Nú á að fella það niður, og ég harma það. Ég bendi á, að Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins ber einnig skylda til þess að mismuna tóbaki í verði eftir því, hvaða tegund er um að ræða. Hefur það verið gert? Það var lögfest fyrir tveimur árum, og ég ætlast til þess, að það sé gert. Ég skal svo ekki lengja umr., því að mér er ljóst, að þm. verða að komast heim fyrir páska.