06.04.1971
Sameinað þing: 43. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1969 í B-deild Alþingistíðinda. (2209)

Almennar stjórnmálaumræður

Einar Ágústsson:

Herra forseti. Háttvirtu áheyrendur. Nýlega er lokið hér í Reykjavík ársþingi iðnrekenda. Í ályktun þess um efnahagsmál er lýst áhyggjum vegna þeirrar þróunar verðlags- og kaupgjaldsmála, sem átt hefur sér stað síðustu mánuðina, og þó sérstaklega eins og þar segir um þróun þessara mála, er vænta má á hausti komanda, þegar verðstöðvunarlögin renna út og nýir kjarasamningar verða gerðir. Það er vissulega alltal ástæða til þess að taka eftir því, þegar samtök vinnuveitenda láta frá sér fara úttekt á stöðu atvinnurekstrarins, því að undir gengi hans er efnaleg velferð landsmanna að stórum hluta komin. Iðnrekendur sjá sérstaka ástæðu til þess að lýsa áhyggjum sínum yfir þróun síðustu mánaða og þeim verðlagshækkunum, sem orðið hafa þann tíma. Skoðun þeirra er, að nú stefni óðfluga í átt til taprekstrar. Þetta vekur athygli vegna þess, að hér á þó að heita verðstöðvun og ríkissjóður ver til þess hundruðum millj. kr. af almannafé að halda launagreiðslum niðri, auk þess sem vísitalan er beinlínis fölsuð og þannig dregnar af launþegum uppbætur, sem þeir eiga skýlausan rétt á samkv. kjarasamningum sínum og með hliðsjón af verðlagshækkunum í landinu. Hvað mættu þá launþegar segja, þegar þessi vitnisburður um verðstöðvunina kemur frá atvinnurekendum, því að óumdeilanlegt er, að hún var gerð vegna þeirra á kostnað fólksins í landinu, sem bæði var rænt launum og bundnir baggar gegnum ríkissjóðsframlag í formi niðurgreiðslna, en aðeins lítils hluta þess fjár aflað með launaskatti. Atvinnurekstrinum var með þessu móti hlíft við útgjöldum, sem námu um 1000 millj. kr. gegn því að greiða um 250 millj. kr. í aukinn launaskatt. Samt lýsa iðnrekendur áhyggjum sínum yfir þróuninni þessa mánuði og sjá fram á taprekstur. Hitt furðar engan, að vinnuveitendur skuli kvíða framhaldinu og því, sem gerist eftir 1. september, þegar svokallaðri verðstöðvun lýkur. Það hljóta allir að gera, sem þessi mál hugsa. Þar hafa menn líka fyrri reynslu við að styðjast. Árið 1967 átti að kjósa til Alþ. eins og núna. Þá var lögfest verðstöðvun nokkrum mánuðum fyrir kosningar, eins og núna. Sú verðstöðvun var að því leyti til vel heppnuð, að út á hana héldu stjórnarflokkarnir velli í kosningunum og hafa farið með völdin síðan. En þetta var líka það elna, sem lánaðist við þessa verðstöðvun. Strax og tímabilinu lauk, hrundi spilaborgin. Hækkanir ráku hver aðra, eins og bylgjurnar við sjávarströndina, og það var ekki fyrr en eftir tvær gengisfellingar, þegar búið var að hækka verð á erlendum gjaldeyri um meira en helming, að nokkurn veginn náðist jafnvægi á ný. Það er því engin furða þótt nokkurn hroll setji að mönnum, þegar þeir hugsa til komandi haustdaga og hugleiða það, sem í vændum er, enda hafa jafnvel dyggustu stuðningsmenn viðreisnarstjórnarinnar lýst áhyggjum sínum út af þessu, eins og hv. þm. Ólafur Björnsson gerði á Alþ. 11. febrúar s.l. og ítrekaði síðast fyrir nokkrum dögum. En um þetta sagði hann eitthvað á þá leið, að það væri hrollvekja að hugsa til þess, sem gerðist eftir 1. september, þótt vafalaust verði reynt að taka upp léttara hjal fram að kosningum. Þetta léttara hjal höfum við glögglega mátt heyra hér í kvöld af þeim ræðum, sem haldnar hafa verið af stjórnarliðum. Þeir munu vafalaust bjóða upp á meira af slíku tagi. Þeir vona greinilega, að sagan eigi eftir að endurtaka sig, og virðast trúa á gömlu blekkingarnar, sem dugðu svo vel síðast. En mikið má vera, ef þeir eiga ekki eftir að vakna upp við vondan draum að þessu sinni. Er nokkur maður til á Íslandi í dag, sem telur það eðlilegt í árferði eins og við höfum búið við hér undanfarin ár, að grípa þurfi til sérstakra ráðstafana eins og margnefndrar verðstöðvunar til þess að létta undir með útflutningsframleiðslunni? Því trúi ég varla, þegar það er haft í huga, að verðlag á helztu útflutningsafurðum okkar er hærra en nokkru sinni fyrr og aflabrögðin óvenjugóð. Hljóta ekki allir að sjá, að hraukurinn hrynur strax og eitthvað örlítið blæs á móti?

Eins og búið er að leika íslenzkt efnahagskerfi í tíð núverandi stjórnarflokka, er ljóst, að róðurinn verður þungur í haust, hvaða ráða sem reynt verður til að grípa, en hann er vonlaus, ef áfram verður haldið á viðreisnarbrautinni, því að það er sannur vitnisburður, sem Ólafur Björnsson hv. þm. gaf í áðurnefndri hrollvekju, er hann sagði um efnahagsúrræði Sjálfstfl. og Alþfl., að þau hefðu gersamlega gengið sér til húðar. Fyrir þá, sem trúa því, að hægt sé að lifa góðu lífi á Íslandi framtíðarinnar og ætla sér að gera það, eru því engin önnur ráð til en að snúa baki við ráðleysisrangli stjórnarflokkanna og leita annarra leiða; reyna aðra ríkisforystu, af því að þessi er vonlaus, menn eru búnir að fullreyna það. Meira að segja þeir, sem í upphafi mótuðu stefnuna, játa nú, að úrræði hennar hafi gengið sér til húðar.

Framsfl. hefur frá upphafi verið í andstöðu við þessa stjórnarstefnu og talið hana í grundvallaratriðum ranga. Hann hefur varað við afleiðingum hennar og það gerir hann enn. Eins og við framsóknarmenn höfum jafnan tekið fram við sams konar tækifæri og þetta, getum við ekki bent á eitt allsherjar lausnarorð, sem leitt geti þjóðina úr þeim vanda í einu vetfangi, sem viðreisnarstjórnin hefur yfir hana kallað. Á Alþ. því, sem nú er senn að ljúka, höfum við, eins og á undanförnum þingum, bent á þær leiðir, sem við viljum fara til þess að móta íslenzkt framtíðarþjóðfélag. Við viljum hverfa frá ráðleysinu og skipulagsleysinu í atvinnumálum, en koma á fót atvinnumálastofnun, er hafi með höndum áætlanagerð um atvinnuþróun og stjórn fjárfestingarmála. Enda þótt við teljum atvinnurekstrinum að öðru jöfnu bezt borgið í höndum einstaklinga og félaga og þá einkum samvinnufélaga, er okkur ljóst, að uppbyggingin verður að styðjast við þjóðfélagslega heildaryfirsýn, þar sem það er valið, sem forgang skuli hafa hverju sinni, ef svo hagar til sem oft vill verða, að ekki er hægt að gera allt í einu. Við viljum ekki lengur hik og aðgerðarleysi í landhelgismálinu og höfum ásamt öðrum stjórnarandstæðingum á þingi lagt fram till. í þessu lífshagsmunamáli þjóðarinnar, sem markar skýra og afdráttarlausa stefnu um ákveðna útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 mílur og 100 mílna mengunarlandhelgi og miðist útfærslan við tiltekna dagsetningu, nánar tiltekið ekki síðar en 1. september 1972, sem má vera fyrr, þótt Matthías Bjarnason væri að reyna að gefa annað í skyn hér áðan. Ríkisstj. hefur einnig lagt fram till. í þessu máli. Sú till. er nánast endurtekning á því, sem Alþ. hefur áður lýst yfir, en lýtur að öðru leyti að athugun á því, hvaða samninga Íslendingar geti fengið hagstæðasta við aðrar þjóðir. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í utanrmn. lögðu í gær til, að báðar þessar till. verði lagðar undir dóm fólksins í landinu með þjóðaratkvgr. Til þess er kjörið tækifæri í sambandi við þær alþingiskosningar, sem hvort eð er eiga að fara fram í vor. Þá kæmi fram hinn sanni þjóðarvilji í landhelgismálinu, óháður þeim pólitísku sjónarmiðum, sem ávallt hafa mikil áhrif á það, á hvern hátt menn verja atkvæði sínu í almennum þingkosningum. Svo undarlega brá við, að stjórnarflokkamenn undir forystu ráðherra sinna felldu þessa till. Bendir það til þess, að þeir trúi því í alvöru, sem þeir halda fram í orði, að þjóðarviljinn sé það, sem þeir vilja í þessu máli?

Við viljum afmá þann aðstöðumun, sem nú veldur því, að það er undir efnahag aðstandenda og búsetu komið, hvort ungmenni fá notið hæfileika sinna. Menntunina verður að gera að raunverulegri almenningseign og skipuleggja framhaldsnámið þannig, að sem flestir geti gengið þá braut, sem bezt er við þeirra hæfi, hvort sem hún liggur að bóklegum eða verklegum viðfangsefnum.

Við viljum koma á algerri stefnubreytingu í fjármálastjórn hins opinbera, hamla gegn útþenslu ríkisbáknsins, draga úr óhóflegum neyzlusköttum, en fara leið niðurfærslu og lækkunar á ýmsum kostnaðarliðum. Nýlegt dæmi sýnir, hver myrkviður hin opinbera yfirstjórn fjármálanna er orðin. Fyrir skömmu voru gerðir kjarasamningar við opinbera starfsmenn, á grundvelli starfsmats í fyrsta skipti. Ýmsum þótti efstu flokkarnir fá ríflegar launahækkanir. Af tilefni samningsgerðarinnar kom hæstv. fjmrh. margoft fram í fjölmiðlum til þess að lýsa ágæti samninganna. M.a. tók hann það fram, að launahækkanirnar til hinna hæst launuðu væru ekki jafnmiklar og þær sýndust á pappírunum vegna þess, að á móti kæmi, að margs konar hlunnindi féllu niður. Fyrir nokkrum dögum hefur hins vegar verið vakin athygli á því í blaðaskrifum, að nokkrir af hinum hæst launuðu, svo að notað sé orðalag hæstv. fjmrh., eiga að halda áfram fríðindum, sem þeir hafa haft og geta samkvæmt upplýsingum fjmrh. numið hvorki meira né minna en yfir 1300 þús. kr. á ári. Enn þá eftirtektarverðara er það, að einn fjórði hluti þessara tekna er skattfrjáls, samkvæmt úrskurði ríkisskattanefndar, sem dagsettur er 12. maí 1964. Eftirtektarverðast er þó, að samkvæmt því, sem fjmrh. upplýsti í bréfi til dagblaðsins Tímans 31. fyrra mánaðar var fjmrn. ekki kunnugt um þennan úrskurð fyrr en nú fyrir nokkrum mánuðum. Hvernig lízt mönnum á þetta? Fjmrh. veit það ekki í rúm 6 ár, að hluti af launum æðstu embættismanna landsins er skattfrjáls og sá hluti af launum þessara embættismanna, sem þeir fá fyrir störf, sem þeir vinna fyrir ráðuneytið sjálft, er skattfrjáls að hluta. Ég fullyrði, að á þeim árum, sem ég vann í fjmrn., 1954 til 1957, hefði slíkt verið með öllu óhugsandi. Þó var starfsliðið færra þá en það er nú. Þá var engin hagsýslustofnun til, þá var enginn sérstakur Seðlabanki til, sem nú annast hluta af fyrri verkefnum fjmrn., og þá var engin Efnahagsstofnun til, svo að ég nefni aðeins nokkur atriði af þeim, sem búið er að breyta. En þá var fylgzt með. Ætli það geti ekki víðar verið pottur brotinn í ríkisbákninu fyrst sambandið milli ríkisskattanefndar og ráðuneytis er ekki traustara en þetta?

Við viljum, að markviss barátta verði tekin upp gegn verðbólguófreskjunni, sem aldrei hefur stigið trylltari dans en undanfarin ár. Ríkisstj. Framsfl. tókst hér áður með margvíslegum samverkandi ráðstöfunum að hamla verulega gegn verðbólguvextinum, þótt játa beri, að oft var glíman sú býsna erfið. En síðustu árin hefur slíkt lítið verið reynt. Nú er það tekið sem einhvers konar náttúrulögmál og sjálfsagðir hlutir, að gengisfellingar séu hér eigi sjaldnar en annað til þriðja hvert ár. Það er í senn ömurlegt og grátbroslegt, þegar íslenzkir ráðherrar og þm. eins og Matthías Bjarnason hér áðan eru að hrósa sér af því, eins og einhvers konar stjórnkænsku, að þeir kunni nú heldur en ekki lagið á því að rétta við þjóðarhaginn, þegar á móti blæs. Bara fella gengið, piltar, það er allur galdurinn. Annars staðar á byggðu bóli er það viðurkennt, að gengislækkanir eru böl, sem varast ber í lengstu lög.

Við gerum okkur ljóst, að aukning þjóðarauðsins er háð blómlegum vexti atvinnuveganna og lífvænlegri aðstöðu fólksins um landið allt. Þetta var á mínum yngri árum hér í höfuðstaðnum kallað framsóknarmennska og þeir heldur litlir spámenn, sem þessu héldu fram. Nú er komið allt annað hljóð í strokkinn. Nú er það alls ekki viðurkennt sem sérmál Framsfl., að skynsamlegt sé og raunar nauðsynlegt að byggja landið allt. Nú vildu margir þá Lilju kveðið hafa. Batnandi mönnum er bezt að lifa, og vissulega er ástæða til að fagna því, að nokkurs skilningsauka verður vart hjá öðrum flokkum á þessu mikilsverða hagsmunamáli. En ég ætla, að hér sem á svo mörgum öðrum sviðum hefði hægar gengið og skemmra miðað, ef markviss málflutningur Framsfl. hefði eigi komið þarna til.

Við viljum svipta burtu þeirri þoku pukurs og launungar, sem í allt of ríkum mæli einkennir íslenzka stjórnsýslu. Við leggjum ríka áherzlu á gagngera endurskoðun stjórnkerfisins með einföldun, opnun og meiri skilning að markmiði. Hér úir allt og grúir af alls konar nefndum og ráðum, sem að miklum meginhluta eru skipuð sömu mönnum, er þannig verða ofhlaðnir störfum og þar af leiðandi afkastalitlir flestir hverjir. Sjálfir eru ráðh. að vafstrast í hinum og þessum nefndarstörfum, en eiga svo oft og einatt sjálfir yfir þeim að segja sem æðsta stjórnvald. Fáelnir menn hafa náð tangarhaldi á flestum lykilpóstum þjóðfélagsins og hafa alla þræði í hendi sér í hinum þýðingarmestu málum, en margrómað lýðræði verður nafnið eitt. Kjörnir fulltrúar þjóðarinnar verða verkfæri, en embættismennirnir segja fyrir verkum.

Stefna okkar í tryggingamálum er sú að tryggja þeim, sem komnir eru á efri ár og skapað hafa með vinnu sinni þann þjóðarauð, sem ný kynslóð tekur í arf, mannsæmandi lífskjör, viðunandi vinnuaðstöðu og möguleika til menningarlífs. Sömu kjör þarf að búa þeim, er hafa skerta starfsorku vegna veikinda eða af öðrum ástæðum. Nýsett lög um almannatryggingar væru vissulega spor í þessa átt, ef þeim væri ætlað að koma til framkvæmda strax, þannig að þau hækkuðu launin um 20–40% miðað við framfærslukostnaðinn, eins og hann er í dag. Eins og þau hins vegar eru, eiga þau ekki að koma til framkvæmda fyrr en eftir 9 mánuði. Margt á eftir að gerast þessa 9 mánuði, sem eftir eru til næstu áramóta, m.a. septemberhrollvekjan, þannig að ósköp er hætt við, að litið verði úr hækkununum, þótt þær liti vel út á pappírunum. Eins og þessi lög eru úr garði gerð, minna þau helzt á leiksýningu, sem í sannleika sagt er ekki sérlega smekklegt að sviðsetja, þegar þess er gætt, hverjir það eru, sem í hlut eiga. Þessi hæstv. ríkisstj. hefur löngum viljað guma af afrekum sínum í tryggingamálum. Þessi ríkisstj. vill líka gjarnan eiga heiðurinn af því að hækka eftirlaunin, eins og hér er gert ráð fyrir, en hún vill bara ekki þurfa að leysa þann vanda, sem því er samfara að standa við loforðin. Það eiga aðrir að gera. Þetta kalla ég sýndarmennsku á hæsta stigi, og ég er sannfærður um, að fólk sér í gegnum þetta. Svo telur hæstv. dómsmrh. sig hafa efni á því að brigzla öðrum um yfirborðsmennsku.

Nú er frá því skýrt, að hafnar séu sýningar á leikriti, þar sem leikendur koma fram naktir í 15 sek. og þykir nokkur frétt. Aðalleikurunum í stóra leikhúsinu við Austurvöll getur þó tæplega fundizt mikið til um þetta, svo oft sem þeir hafa aðeins nýju fötin keisarans til að skýla pólitískri nekt sinni í leiksýningum síðari ára.

Við vekjum athygli á því, að heilsuvernd vinnandi fólks er ekki einungis mannréttindamál, heldur einnig verulegt fjárhagsatriði. Af þessum ástæðum báðum ber að útrýma heilsuspillandi vinnutilhögun og bægja slysahættu frá. Viðhlítandi heilsugæzla og læknisþjónusta má ekki áfram vera sérréttindi einungis sumra þegna þjóðfélagsins. Samræma þarf betur en gert hefur verið uppbyggingu sjúkrahúsa í landinu svo og rekstur þeirra með því að auka samvinnu þeirra aðila, er þessa starfsemi hafa með höndum. Þá ber brýna nauðsyn til þess að bæta kjör og starfsaðstöðu þess fólks, er í sjúkrahúsunum starfar, svo og að auka menntunarskilyrði hjúkrunarkvenna þannig, að tryggt verði, að þangað fáist jafnan nægilega margt starfsfólk með viðkomandi sérþjálfun. Í þessu sambandi leyfi ég mér að geta þess, að Alþ. samþykkti í gær till. frá okkur Sigurvin Einarssyni, þar sem skorað er á ríkisstj. að gera ráðstafanir til að ráða bót á skorti hjúkrunarfólks, og vona ég, að þessi viljayfirlýsing Alþ. komi í veg fyrir það, að viðkomandi ráðh. gleymi öllu þessu vandamáli og því, sem þeir hafa lofað til lausnar þess.

Við ítrekum margyfirlýsta stefnu okkar, að til vegagerðar skuli varið öllu því fé, sem innheimt er af umferðinni í landinu með einum hætti eða öðrum. Bættar samgöngur eru í fyrsta lagi grundvallarskilyrði fyrir heilbrigðu atvinnulífi. Í öðru lagi auka bættar samgöngur kynni fólksins af landinu og efla á þann hátt þjóðerniskenndina.

Ef peningar eru einskis virði og manneskjur eru einskis virði og allt er einskis virði og ekkert er nokkurs virði, hvað er þá einhvers virði? Þannig er spurt í Ólafssögu Kárasonar Ljósvíkings. Og svarið? Jú, fiskur, hrogn og lifur er mikils virði. Slor og grútur er mikils virði, jafnvel skítur er mikils virði. Það eru bara manneskjur, sem eru einskis virði. Síðan þessi úttekt var gerð á verðmætum og veraldargæðum, hafa menn uppgötvað þann sannleika, að jafnvel loft og vatn getur verið mikils virði og að Ísland er allt í einu orðið ríkt land og eftirsótt. Í heiminum hefur víða komið til nýtt lífsgæðamat. Í vaxandi mæli hafna menn þátttöku í efnahagskapphlaupinu fyrir tækifæri til friðsælla stunda í heilsusamlegu umhverfi. Það er sem sagt aftur að verða nokkurs virði að vera manneskja. Við í Framsóknarflokknum lítum á það sem ein hin þýðingarmestu lífsgæði að fá að lifa í ómenguðu, hreinu og óspilltu umhverfi og teljum hreint loft og ómengað vatn og fjölbreytt og fagurt landslag meðal þýðingarmestu þátta í þjóðarauði okkar. Því viljum við setja náttúruvernd, ráðstafanir gegn mengun, og framkvæmdir, sem miða að því að hafa eðlileg samskipti við landið, í flokk með þeim þáttum, sem mestu máli skipta.

Góðir hlustendur. Ég hef nefnt hér nokkur atriði, sem Framsfl. hefur beitt sér fyrir síðustu mánuðina, en hef tímans vegna orðið að stikla á stóru. Á flokksþingi okkar, sem haldið verður um miðjan þennan mánuð, munu koma saman um 500 kjörnir fulltrúar frá öllum framsóknarfélögunum í landinu, yngri manna sem eldri. Þar verður stefna flokksins á næsta kjörtímabili mótuð. Við vonum, að sú stefna falli kjósendum vel í geð, því að eins og ástatt er í íslenzkum stjórnmálum er Framsfl. eina aflið, sem megnar að snúa undanhaldi viðreisnarstjórnarinnar í öfluga sókn þjóðarinnar í átt til batnandi hags og betri tíma fyrir alla.

Viðreisnargangan undanfarin 12 ár minnir á slóð þess manns, sem villzt hefur í hríðarveðri. Aftur og aftur kemur hann á sama staðinn, áttar sig ef til vill um skeið, en villist samstundis á ný. Launabinding, verðstöðvun og gengisfelling eru vörðurnar, sem gengið er í kringum hring eftir hring. Fyrir þá, sem vilja brjótast út úr þessari villu, er aðeins ein leið til, og hún er sú að efla Framsóknarflokkinn í kosningunum í vor. Hann einn er nægilega sterkur til að varða rétta veginn. Andstæðingum okkar verður tíðrætt um ímyndaða óeiningu í okkar flokki. Allt slíkt hjal mótast af óskhyggju og viðleitni til að leiða athyglina frá eigin heimilisböli. Það er ósköp skiljanlegt, að Morgunblaðið vilji fremur skrifa um ímyndaða erfiðleika í Framsfl. en skýra frá þeim blóðugu bardögum, sem háðir eru í Sjálfstæðisflokknum milli helztu liðsoddanna þar. Það er rétt, að þaðan berast sjaldan fréttir af ágreiningi um stefnuna. Hún er mönnum þar ekki svo föst í hendi, að það taki því að gera sér rellu út af henni. En þeim mun illvígari eru átökin milli einstakra manna, og sendiboðar flokksstjórnarinnar flengjast um landið og leggja nótt við dag til að undirbúa landsfundinn á næsta sérstæðan hátt. Það er líka skiljanlegt, að Alþýðublaðið kjósi fremur að segja ósannar sögur um Framsfl. en að greina t.d. frá sambúðinni í þingflokki þeirra Alþýðuflokksmanna eða atburðum á fulltrúaráðsfundum, þar sem framboðin eru ákveðin t.d. hér í Reykjavík. Ég skil það líka prýðilega vel, að Þjóðviljinn vilji fremur segja hagræddar fréttir af Framsóknarflokknum en taka sér fyrir hendur t.d. að fræða lesendur sína um það, hvers vegna þm. Alþýðubandalagsins hefur fækkað svo mjög að undanförnu, sem raun ber vitni. Ekki má gleyma Katli. Frjáls þjóð er líka stundum að leggja orð í þennan belg. Það er vafalaust heppilegra fyrir nýja flokkinn en að taka sér fyrir hendur að greina frá störfum hans og því, hvernig þeim gengur að bjóða fram í hinum einstöku kjördæmum landsins. Það er staðreynd, sem engum þýðir að mótmæla, að Framsfl. er sá eini af íslenzku stjórnmálaflokkunum, sem hefur framkvæmt skoðanakannanir í öllum kjördæmum landsins og alls staðar farið eftir niðurstöðum þeirra við ákvörðun framboða. Von andstæðinga okkar um óeiningu í röðum Framsóknarflokksins er aðeins tál. Þeir munu komast að raun um það, að í vor eins og í undanförnum kosningum þoka framsóknarmenn sér því þéttar saman sem fastar er að þeim sótt. Ég sendi samherjum mínum um allt land beztu kveðju og heiti á þá, að þeir hefji sóknina nú þegar og haldi henni áfram, þar til sigur hefur unnizt þann 13. júní n.k., og þakka áheyrnina.