06.04.1971
Sameinað þing: 43. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 1986 í B-deild Alþingistíðinda. (2212)
Almennar stjórnmálaumræður
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Góðir hlustendur. Nú er komið að þinglokum. Þau mál, sem ríkisstj, telur nauðsyn á að ljúka, munu fá fullnaðarafgreiðslu. Kjörtímabilinu er lokið og efnt verður til kosninga 13. júní n.k.
Samkvæmt stjórnarskránni skulu alþingiskosningar fara fram á fjögurra ára fresti. Heimilt er þó að rjúfa þing og kjósa, áður en kjörtímabili lýkur, ef nauðsyn ber til og starfshæfur meiri hluti er ekki fyrir hendi á Alþ. Þannig hætti vinstri stjórnin, sem mynduð var 1956, störfum, þegar kjörtímabilið var hálfnað, af því að hún stóð uppi ráðalaus og sundruð, þegar dýrtíðarflóðið flæddi yfir landið haustið 1958. Það ber vott um festu í stjórnmálum og efnahagsmálum lýðræðisþjóða, þegar kosningar eru ekki tíðari en á fjögurra ára fresti. Þar sem úrræðaleysi og upplausn er ráðandi í atvinnu- og efnahagsmálum, eru kosningar með stuttu millibili og tíð stjórnarskipti.
Núverandi stjórnarflokkar hafa unnið saman þrjú kjörtímabil. Á því tímabili hefur árferði verið mjög misjafnt. Þegar sæmilega áraði, var tækifærið notað til þess að endurnýja og auka atvinnutækin, auk þess sem gjaldeyrisvarasjóður myndaðist. Gjaldeyrisvarasjóðurinn kom í góðar þarfir, þegar harðnaði í ári 1967 og 1968. Í ársbyrjun 1960 var hafizt handa og ráðstafanir gerðar til þess að rétta við efnahag landsins út á við og tryggja rekstrargrundvöll atvinnuveganna, sem komnir voru í strand eftir stefnuleysið, sem heltók þjóðfélagið á árunum 1957 og 1958. Síðan hefur verið unnið að alhliða uppbyggingu atvinnulífsins. Fiskiskipaflotinn hefur verið aukinn og endurnýjaður, grundvöllur lagður að stóriðnaði, skipasmíðar teknar upp innanlands, og fiskiskipin eru nú smíðuð í íslenzkum skipasmíðastöðvum. Þá hefur mikið verið aukinn hinn smærri iðnaður og fjölbreytni í atvinnulífinu á ýmsan hátt.
Til ræktunar, landgræðslu og gróðurverndar fara fjárveitingar stöðugt hækkandi. Vélvæðing og tækni í landbúnaðinum er með því bezta, sem gerist hjá háþróuðum þjóðum. Lán og framlög til landbúnaðarins hafa aukizt og verið mun hærri mörg síðari ár en áður gerðist, þótt tekið sé tillit til verðbreytinga og raungildis peninga. Í krafti tækninnar og ört vaxandi ræktunar hefur búvöruframleiðslan vaxið þrátt fyrir vont árferði síðustu 5 ár. Bændur munu njóta þess, sem gert hefur verið að undanförnu þegar árferði verður aftur í meðallagi.
Með setningu laga frá 1964 um ferðamál var undirstaða lögð að þeirri grósku, sem verið hefur í ferðamálum síðustu árin. Ferðamálin eru að verða arðsöm atvinnugrein fyrir þjóðarbúið. Gjaldeyristekjur vegna ferðamála voru árið 1970 rúmlega 900 millj. kr. Með skipulagi ferðamála og lánum úr ferðamálasjóði hefur verið gert mögulegt að veita móttöku ört vaxandi ferðamannastraumi. Árið 1960 komu til landsins 12800 ferðamenn og eyddu í erlendum gjaldeyri 17 millj. kr. á þáv. gengi krónunnar. Árið 1970 var tala ferðamanna 52900, og eru þá ekki taldir með þeir, sem komu til landsins með skemmtiferðaskipum. Á árinu 1980 er áætlað, að erlendir ferðamenn verði um 150 þús. Með komu ferðamannanna, sem nota íslenzk samgöngutæki, eru samgöngur milli landa og innanlands treystar og efldar. Framkvæmdir í samgöngumálum eru nú margfalt meiri en nokkru sinni fyrr. Þá er það mikils virði, að markaður fæst fyrir innlendar framleiðsluvörur og fjöldi manna hefur atvinnu vegna ferðamannanna.
Verzlunin hefur verið gefin frjáls, eins og það er kallað. Höft og vöruskömmtun eru ekki lengur þekkt og mörgum úr minni liðin. Eigi að síður er enn haldið dauðahaldi í ýmislegt frá tímum skömmtunar og vöruskorts, svo sem álagningarreglur á ýmsum vörum. Með verzlunar- og verðlagsfrv., sem lagt var fram í fyrra, en ekki náði fram að ganga átti að lögfesta heimild til þess að breyta þeim úreltu reglum, sem enn eru í gildi og halda á margan hátt beinlínis uppi vöruverðinu. Ef frv. hefði náð fram að ganga, hefði það með breyttum reglum gert fært að stórlækka verðlagið í mörgum tilfellum. Vonandi verða nauðsynlegar lagfæringar gerðar í verzlunarmálunum, áður en langt um líður, þjóðarbúinu til hagnaðar og neytendum til sparnaðar.
Lög um lax- og silungsveiði og stofnun Fiskræktarsjóðs marka tímamót í fiskirækt hér á landi.
Með tilkomu þessara laga ásamt fiskeldisstöð ríkisins í Kollafirði og fleiri fiskeldisstöðvum, sem nú eru að komast í gagnið, mun fiskiræktin þróast ört og verða happasæl og tekjumikil grein í þjóðfélaginu. Með auknum leiðbeiningum og eflingu Veiðimálastofnunarinnar munu stöðugt fleiri ár og stöðuvötn verða tekin til ræktunar.
Þrátt fyrir erfiðu árin 1967 og 1968, kuldann og vont árferði fyrir landbúnaðinn síðan 1966, hefur alhliða uppbyggingu í þjóðfélaginu verið haldið áfram. Síðasti áratugur mun verða skráður á spjöldum sögunnar sem mesta framfaratímabil, sem yfir þjóðina hefur komið til þessa, þrátt fyrir óvenjuleg áföll vegna aflatregðu, stórkostlegs verðfalls á útflutningsvörum landsmanna og kólnandi tíðarfars, sem orsakað hefur kal og sprettuleysi í mörg sumur. Á árunum 1967 og 1968 missti þjóðin um 50% af útflutningstekjum vegna verðfalls og aflatregðu. Var það meira áfall efnahagslega en aðrar þjóðir hafa orðið fyrir nokkurn tíma á friðartímum. Ýmsir hugsandi menn spyrja nú um það, þegar kosningar nálgast, hvernig farið hefði fyrir þjóðinni, þegar áföllin komu, ef ríkisstj. og stjórnarflokkarnir hefðu ekki sýnt festu og gert viðeigandi ráðstafanir, þegar mest reið á. Hvernig væri þjóðarhag nú komið, ef ríkisstj. hefði hlaupið frá vandanum, þegar áföllin komu? Þá hefði illa farið. En með því að gera viðeigandi efnahagsráðstafanir var komizt út úr vandanum. Gjaldeyrisvarasjóðurinn, sem safnaðist á árunum 1961 og 1966 eyddist upp vegna nauðsynlegra vörukaupa og annarra greiðslna erlendis. Á áfallaárunum tveimur var eðlilega bæði greiðslu- og verzlunarhalli, sem hefði orðið afdrifaríkur, ef gjaldeyrisvarasjóðurinn hefði ekki verið fyrir hendi. Á þessum árum var atvinna með minna móti og kaupgjald lægra en æskilegt hefði verið vegna erfiðleika atvinnuveganna, sérstaklega sjávarútvegsins. Á árinu 1969 byrjaði að rofa til. Aflabrögð bötnuðu nokkuð og verðlag hækkaði á útflutningsvörunum. Árið 1970 var talsvert hagstæðara fyrir útflutningsatvinnuvegina, og var almennt viðurkennt, að greiðslugeta þeirra hefði aukizt talsvert. Í kjölfar þess gerðu verkamenn og aðrir launþegar kröfur um hækkað kaup, en launakröfunum hafði verið stillt í hóf á undangengnum tveimur árum. Þótti öllum eðlilegt, að kaupgjald hækkaði sumarið 1970. Um það var deilt, hversu kauphækkunin mætti vera mikil, til þess að atvinnuvegirnir gætu borið hana. Endanlega var samið um 15–20% kauphækkun, sem hækkaði 1. september um rúmlega 4% vegna vísitöluhækkunar. Verðhækkanir voru fram undan og hefðu gert kauphækkunina að engu, ef ekki hefði verið komið í veg fyrir þær að verulegu leyti með vissum aðgerðum.
Ríkisstj. taldi nauðsynlegt að koma í veg fyrir, að kauphækkanirnar rynnu út í sandinn vegna verðhækkana. Þess vegna var rætt um verðstöðvun í þeim tilgangi að tryggja kaupmátt launa, svo að kauphækkunin, sem launþegar fengu, gæti verið raunveruleg kjarabót. Verðstöðvunarlög voru sett s.l. haust. Stjórnarandstaðan hefur sagt, að verðstöðvun hefði átt að koma með allt öðrum hætti strax í fyrrasumar, eftir að samningar tókust við verkalýðsfélögin. En það var ekki hægt vegna margháttaðs undirbúnings að slíkri löggjöf, eins og allir viðurkenna, sem til þekkja. Þar að auki hefði bændastéttin beðið mikið afhroð, ef afurðaverðið hefði ekki verið hækkað á s.l. hausti vegna verðstöðvunar. Formaður Framsfl. hélt því eigi að síður fram í sjónvarpsviðtali s.l. haust, að verðstöðvun hefði átt að koma strax í fyrrasumar. Verðstöðvunarlögin hafa náð tilgangi sínum með því að kaupmáttur launa hefur aukizt frá 1. júní 1970 til 1. marz 1971 um 15.6%. Búvörurnar, brýnustu nauðsynjar heimilanna, hafa verið greiddar niður og verðið til neytenda því stórlækkað. Ýmsar erlendar vörur hafa hækkað í verði, en við það verður ekki ráðið af skiljanlegum ástæðum. Ef verðstöðvunarlögin hefðu ekki verið sett, væri hagnaðurinn og kjarabætur launþegum til handa horfnar í dýrtíðarflóðið. Þá hefði atvinna dregizt saman, rekstrargrundvöllur fyrir útgerðina ekki verið fyrir hendi og atvinnuástand líkt því, sem það var undir árslok 1958, þegar vinstri stjórnin hrökklaðist frá völdum. Vegna verðstöðvunarlaganna hefur kauphækkunin frá í fyrrasumar orðið kjarabót og kaupmáttur launa aukizt. Þetta er staðreynd, sem ekki verður hrakin. Um hitt þarf ekki að deila, að æskilegt væri, að kaupmáttaraukningin væri enn meiri. Það fer illa í munni þeirra, sem voru á móti verðstöðvunarlögunum og stuðluðu að því, að kauphækkunin rynni út í sandinn, að tala nú um nauðsyn þess að bæta kjör almennings. Það er rétt að minna á þá staðreynd, að stjórnarandstaðan var á móti verðstöðvunarlögunum, þótt hún í orði teldi sig vilja verðstöðvun.
Með raunhæfum ráðstöfunum í atvinnumálum er mögulegt að bæta kjörin. Nú er atvinna mikil í landinu og flestir þeir, sem vilja og geta unnið, hafa nóg að starfa. Hefur það áunnizt með aukinni fjölbreytni í atvinnulífinu, með nýjum atvinnugreinum og eflingu aðalatvinnuveganna.
Almannatryggingar hafa verið efldar í seinni tíð. Með frv., sem nú er til meðferðar í þinglokin og væntanlega verður að lögum, er ellilífeyririnn, fjölskyldubæturnar og barnalífeyririnn hækkaður verulega. Ýmsar fleiri breytingar eru gerðar á tryggingalöggjöfinni bótaþegum til hags.
Þjóðarframleiðsla Íslendinga fer vaxandi vegna fjölbreytni í framleiðslunni og með aukinni afkastagetu atvinnuveganna. Með vaxandi útflutningsverzlun ber brýna nauðsyn til að leggja áherzlu á markaðskönnun og sölu framleiðsluvaranna. Segja má, að mikið hafi áunnizt í seinni tíð á því sviði, en eigi að síður verður að herða róðurinn og gera allt, sem unnt er, til þess að afla góðra markaða og bæta viðskiptakjörin. Það þarf einnig og ekki síður að leggja vinnu í það að ná hagkvæmu innkaupsverði á þeim vörum, sem til landsins eru keyptar. Þar er mikið og verðugt verkefni fyrir duglega kaupsýslumenn.
Mikið hefur verið rætt um landhelgismálið, og mun ég því verða stuttorður um það. Stjórnarandstaðan ætlaði sér að gera þetta mál að kosningamáli, en þar hefur þeim brugðizt bogalistin. Með sérstökum tillöguflutningi hefur stjórnarandstaðan rofið þá þjóðareiningu, sem sjálfsagt er að hafa um svo mikilvægt mál sem landhelgismálið er. Öll þjóðin hefur eitt og sama markmið í þessu máli, þótt nú, af því að kosningar eru í nánd, sé deilt um leiðirnar. Landgrunnið allt fyrir Íslendinga er það eina, sem gildir, en það þýðir um 50– 70 mílna landhelgi. Ekkert fær hindrað það, að Íslendingar noti sér þann rétt, sem þeir eiga til landgrunnsins, á réttum tíma, sem gæti orðið fyrir 1. sept. 1972. Hafa ber í huga það, sem ýmsir spá, að sókn útlendinga margfaldist á íslenzk fiskimið á næstu mánuðum. Það er ekki rétt, að ríkisstj. hafi tekið ákvörðun um, að útfærsla landhelginnar bíði, þar til hafréttarráðstefnunni er lokið. Viðhorfin geta breytzt þannig, að nauðsyn beri til aðgerða fljótt. Ríkisstj. hefur markað skýra stefnu í landhelgismálinu og mun fylgja henni fram til fullnaðarsigurs. Þótt unnið sé að stórvirkjunum og fjölbreytni í atvinnulífinu á ýmsum sviðum, verða fiskveiðar um ófyrirsjáanlega framtíð einn af mikilvægustu þáttum í tekjuöflun þjóðarbúsins. Ef Íslendingar einir stunda fiskveiðar á landgrunninu, munu fiskveiðar í kringum landið verða áfram sá nægtabrunnur þjóðinni til handa, sem þær hafa verið frá alda öðli.
Verzlunarkjörin hafa batnað, og gjaldeyrisvarasjóður hefur myndazt á ný. Var hann um síðustu áramót um 3200 millj. kr. og mun nú vera nærri 4000 millj. kr. Eins og málin nú horfa við, er ekki annað hægt að segja en efnahagsmálin séu á góðum batavegi. Vonandi verður svo áfram og afli glæðist á þessari vertíð. Fjárlög voru afgreidd greiðsluhallalaus. Viðskipta- og greiðslujöfnuður við útlönd hefur verið hagstæður. Skuldir erlendis hafa lækkað undanfarið og gjaldeyrisvarasjóðurinn eykst. Atvinnutækin eru nýtt eins og bezt verður á kosið, og atvinna virðist vera fyrir hendi fyrir alla þá, sem heilsu hafa til þess að vinna. Kaupmáttur launa hefur aukizt um 15.6% á fáum mánuðum vegna verðstöðvunarlaganna og niðurgreiðslu brýnustu nauðsynja, svo sem landbúnaðarvara, þótt óhjákvæmileg hækkun hafi komið til á ýmsum innfluttum vörum og nokkrum þjónustustörfum. En áfram ber að stefna í átt til batnandi efnahags fyrir þjóðarheildina og enn betri lífskjara fyrir allan almenning í landinu. Það mun takast bezt með því að fylgja stefnu Sjálfstfl. í atvinnu- og efnahagsmálum.
Verðstöðvunarlögin gilda til 1. sept. n.k. Margir spyrja, hvers vegna lög um verðstöðvun eru ekki til lengri tíma og hvað taki við eftir 1. september í haust. Eðlilegt er, að spurt sé um þetta. Þegar málið er athugað í réttu ljósi, sýnist 1. september vera rétti tíminn til þess að miða við. Ef stjórnarskipti verða að kosningum loknum, má gera ráð fyrir, að ný stjórn verði mynduð í júlímánuði. Núverandi stjórnarandstaða var á móti verðstöðvunarlögunum og hefur fundið þeim allt til foráttu. Verði stjórnarandstöðuflokkarnir ráðandi eftir næstu kosningar, ber þeim að benda á aðra leið til lausnar efnahagsmálunum. Stjórnarandstaðan hefur fordæmt miklar niðurgreiðslur á búvörum, svo að tæplega munu þeir halda þeim áfram ef þeir mega ráða. En líklegt er, að þeir komi sér ekki saman um neitt frekar en 1958 og að óðaverðbólga flæði hömlulaust yfir landið eins og þá, ef núv. stjórnarandstaða fengi völd að loknum kosningum í vor. Hætt er við, að vinstri flokkarnir, sem kalla sig svo, og vinstri flokksbrot verði úrræðalítil eins og fyrri daginn, þegar á hólminn kæmi. Ef við sjálfstæðismenn verðum við völd áfram, munum við vinna gegn dýrtíðinni með ýmsum ráðstöfunum. Framlengja verður verðstöðvunarlögin í einhverju formi. Sýnt er, að niðurgreiðslur á búvörum verða að halda áfram. Rekstrargrundvöll atvinnuveganna ber að treysta, og atvinnuöryggi fyrir alla þarf að tryggja. Niðurgreiðslurnar eru heppilegt tæki í efnahagsráðstöfunum. Með niðurgreiðslum brýnustu nauðsynja er fjármagn flutt frá þeim, sem betur mega sín, til þeirra, sem mesta hafa þörfina.
Við sjálfstæðismenn viljum efla gott og traust samband við stéttarsamtökin og vinna að auknum skilningi stétta í milli. Samstarfsnefndum á frjálsum grundvelli ber að koma á hjá atvinnufyrirtækjum og efla þannig samstöðu og samstarf stjórnenda og starfsfólks. Þannig mun skapast velvilji og skilningur á atvinnurekstrinum í stað tortryggni og lítils skilnings, sem sums staðar hefur fest rætur og gert mikið tjón. Með því að fara þannig að, eins og nú hefur verið nefnt, væri auðveldara að koma á vinnuhagræðingu, draga úr rekstrarkostnaði, auka framleiðsluna, bæta hag fyrirtækjanna og hækka laun verkamanna og annarra launþega. Með þeim hætti gætu verkföll og illvígar vinnudeilur heyrt fortiðinni til. Kjörorð okkar sjálfstæðismanna er: Stétt með stétt.
Með lögum skal land byggja, var einu sinni sagt. Með lögum og friði milli þeirra, sem fjármagninu ráða, og hinna, sem framleiðslu- og þjónustustörf vinna, skal Ísland nútímans byggja. Með því munu framfarir og uppbygging halda áfram í atvinnulífinu. Þannig verða sættir stétta í milli, og þannig mun þjóðin þroskast og vaxa efnalega og menningarlega. Þannig mun sókn til framfara og bættra lífskjara halda áfram, og þannig mun þjóðin sigrast á þeim erfiðleikum, sem að, steðja hverju sinni. — Góða nótt.