06.04.1971
Sameinað þing: 43. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2017 í B-deild Alþingistíðinda. (2219)
Almennar stjórnmálaumræður
Steingrímur Pálsson:
Herra forseti. Góðir Íslendingar. Í síðustu alþingiskosningum tókst Sjálfstfl. og Alþfl. að tryggja sér nauman meiri hluta á Alþingi Íslendinga með því að telja kjósendum trú um, að viðreisnarstefnan væri hin eina rétta og fram undan væri áframhaldandi velgengni. En strax eftir kosningar fóru stjórnarsinnar að viðurkenna, að fram undan væru stórkostlegir erfiðleikar í efnahagsmálum þjóðarinnar, og bjargráð þeirra var gengislækkun 1967, og auðvitað kom ný gengislækkun í nóvember 1968, sem orsakaði 54% verðhækkun gagnvart dollar. Eftir þetta hafa þeir lítið talað um viðreisnarstefnuna, því að þeir vita, að hún á engan hljómgrunn lengur hjá þjóðinni. Þrátt fyrir sérstaklega hagstætt árferði, aukið aflamagn og stórbætt viðskiptakjör við útlönd, sem færði okkur Íslendingum aukalega milljarða kr., var stefna ríkisstj. svo haldlítil, að þegar við fengum í rúmlega eitt ár lakara árferði, urðu Íslendingar ekki eingöngu að herða sultarólina, heldur skall hér á gífurlegt atvinnuleysi, og fólksflótti hófst úr landinu, vegna þess að stjórnarstefnan var röng. Einu úrræði eða bjargráð sjálfstæðismanna og Alþfl.-manna hafa verið að boða gengislækkanir og svo auðvitað verðstöðvanir rétt fyrir alþingiskosningar. Þessi viðreisnarstjórn ætlaði sannarlega að vinna bug á verðbólguvandanum, en ekkert er meira öfugmæli. Þessi ríkisstj. á í dag Evrópumet í verðbólguþróun, enda hefur hún verið úrræðalaus, þegar á reyndi.
Þeir hafa mikið gumað af stóriðjuframkvæmdum sínum, því að þeir hafa haft vantrú á okkar grundvallaratvinnuvegum, sjávarútvegi og landbúnaði, en eins og allir vita er það sjávarútvegurinn, sem hefur verið burðarásinn í öflun þjóðartekna, og svo mun verða um ókomna framtíð, því að við eigum eftir að vinna stórt og mikið verk í sjávarútvegsmálum með því að fullvinna okkar sjávarafurðir og þar með skapa þjóðinni betri viðskiptakjör en áður. Þessi ríkisstj. hefur dregið á langinn að endurnýja fiskiskipaflota okkar. Við hefðum átt að vera í fararbroddi á þessu sviði með t.d. byggingu skuttogara, en frændur okkar, Færeyingar, standa okkur framar í þessu tilliti. Þessi ríkisstj. réð því, að flestir bátar okkar voru byggðir erlendis, á sama tíma og skipasmíðastöðvar okkar hér höfðu sáralítil verkefni. Og til að bæta gráu ofan á svart var það í desembermánuði 1968, sem þessi ríkisstj. hóf árás á lífskjör sjómanna með því að taka réttmætan hluta tekna af sjómönnum og afhenda útgerðarmönnum. Þetta voru þakkir forustumanna Sjálfstfl. og Alþfl. til íslenzku sjómannastéttarinnar.
Hvernig hefur svo þessi stjórnarstefna komið fram gagnvart dreifbýlinu? Óhætt er að segja, að litið raunhæft hafi verið gert. Mest hefur borið á svokölluðum landshlutaáætlunum, en öll framkvæmd þeirra rétt sniglast áfram. Allir vita, að á undanförnum árum hefði verið hægt að hraða uppbyggingu atvinnulífsins víðs vegar um landið, en allt situr við það sama, eins og t.d. á Húnaflóasvæðinu. Ekkert átak hefur verið gert til þess að tryggja fólki í sjávarþorpunum örugga lífsafkomu.
Þá hafa bændur landsins víða orðið fyrir alvarlegum áföllum á undanförnum árum vegna kalskemmda í túnum og vegna náttúruhamfara. Þessi ríkisstj. hefði átt að geta gert miklu meira fyrir bændastéttina í landinu til að bjarga mörgum yfir þetta erfiða tímabil.
Öll þjóðin hefur beðið eftir því, að það Alþ., sem nú situr, mótaði ákveðna stefnu í landhelgismálinu. Allir Íslendingar eru sammála um, að það sé þjóðarnauðsyn að færa út fiskveiðilandhelgina úr 12 sjómílum í 50 sjómílur frá grunnlinum allt í kringum landið til að tryggja Íslendingum fullan yfirráðarétt yfir fiskimiðum landgrunnsins. Ástæðurnar fyrir þessu eru augljósar öllum þeim, sem hafa kynnt sér þróun þessara mála á undanförnum árum. Með hverju ári sem líður verða fiskiskipin stærri og betri, allur veiðiútbúnaður verður fullkomnari og fiskileitartækin nákvæmari. Þá er vitað, að erlendur fiskiskipafloti, sem stundar veiðar hér við land,fer hraðvaxandi, og enginn getur spáð fyrir um það, hvað þessi veiðifloti útlendinga verður stór á næstunni. Þessi stóraukna ásókn stórvirkra erlendra veiðiskipa leiðir til ofveiði og rányrkju á fiskimiðum á landgrunnssvæðinu og á hafsvæðinu umhverfis landið. Þar að auki er nú mengun farin að ógna lífinu í hafinu. Af þessum ástæðum verða Íslendingar að vernda lífshagsmuni sína með því að stækka fiskveiðilandhelgina í 50 sjómílur og ákveða jafnframt mengunarlögsögu, sem nái 100 sjómílur frá grunnlínum umhverfis landið.
Þegar haft er í huga, að fiskimiðin umhverfis landið eru auðlindir landsmanna og afkoma okkar mun byggjast að mestu leyti á fiskveiðum og fiskiðnaði um ókomna framtíð, þá er það skylda okkar að berjast fyrir ótviræðum rétti okkar yfir landgrunninu öllu.
Það er athyglisvert, að þegar litið er á uppdrátt af fiskveiðilandhelgi Íslendinga, þá sést, að meginhluti af landgrunninu fyrir utan Vestfirði og Austfirði liggur fyrir utan 12 mílna landhelgina. Vestfirzkir sjómenn vita manna bezt um hin gífurlegu ásókn erlendra fiskiskipa á grunnmiðin út af Vestfjörðum. Þeir vita einnig, að þessi hömlulausa veiði á grunnmiðum gengur of nærri stofnum helztu nytjafiska, en engar reglur eru til um verndun uppeldisstöðva á þessum grunnmiðum. Þess vegna hefur vestfirzk sjómannastétt öðrum fremur notað hvert tækifæri á fundum og ráðstefnum til að skora mjög eindregið á ríkisstj. og Alþ. og bent á, að það sé lífsnauðsyn fyrir Íslendinga að friða landgrunnið allt út af Vestfjörðum með því að færa út fiskveiðilandhelgina í 50–60 sjómílur nú þegar. Fyrir skömmu sendu sjómenn og útgerðarmenn á Vestfjörðum áskorun til Alþ., sem hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Á grundvelli þess, að Farmanna- og fiskimannasamband Íslands hefur skorað á Alþingi Íslendinga að stækka fiskveiðilögsögu okkar, viljum við undirritaðir taka undir þá áskorun með því að skora á ríkisstjórn Íslands að ákveða nú þegar stækkun fiskveiðilögsögunnar út í 50–60 sjómílur á Alþ., sem núna er við störf. Allir Íslendingar vita, að þetta er alvarlegt mál, sem þolir ekki bið, og treystum við því, að ríkisstjórnin daufheyrist ekki við áskorunum í svo alvarlegu máli.“
Undir þessa áskorun rituðu um 200 karlmenn, flestallir sjómenn og útgerðarmenn. Fjórðungssamband Vestfirðinga gerði samþykkt
15. marz s.l., en þar segir m.a:
„Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga lýsir yfir stuðningi sínum við áskorun þá, sem sjómenn á Patreksfirði og Tálknafirði hafa sent til Alþingis varðandi útfærslu landhelginnar. Stjórnin telur mjög nauðsynlegt og aðkallandi, að landhelgin úti fyrir Vestfjörðum verði stóraukin, og bendir jafnframt á þá staðreynd, að umræddar aðgerðir þoli enga bið.“
Margar aðrar samþykktir hafa borizt, t.d. frá hreppsnefnd Hólshrepps í Bolungarvík, þar sem lýst er yfir stuðningi við áðurnefndar samþykktir.
Engir hafa fundið sárar til þess, hvernig ástandið er á fiskimiðunum, en sjómenn á Vestfjörðum, sem hafa orðið að búa við það að þurfa að berjast við útlendinga um réttinn til að veiða á fiskimiðum sínum skammt undan landi. Þá hefur verið algengt, að sjómenn töpuðu veiðarfærum sínum af völdum erlendra togara og því orðið fyrir stórtjóni af þeirra völdum, bæði veiðarfæratjóni og aflatjóni. Þeir eru í stöðugum ótta um það, hvort þeir megi leggja veiðarfæri sín í sjóinn, þar sem þeir telja helzt afla von, og oft verða þeir að hrekjast af þessum slóðum.
Þannig hafa vestfirzkir sjómenn þurft að heyja baráttu við útlendinga um eigin fiskimið. Þeim finnst því biðin vera orðin bæði löng og ströng. Þessir vestfirzku sjómenn virðast ekki lita á þetta mál eins og hæstv. utanrrh., sem hikar við útfærslu, vegna þess að vinaþjóðir okkar í Evrópu munu tapa mestu, ef landhelgi okkar verður færð út í 50 sjómílur. Af þessum ástæðum er afar skiljanlegt, að fyrstu og ákveðnustu samþykktir á þessu máli komi frá vestfirzkum sjómönnum og útgerðarmönnum, því að þeir þekkja þetta vandamál til hlítar. Þeir gera sér ljóst, að lífsnauðsyn er að friða nú þegar landgrunnið út af Vestfjörðum, því að afkoma fólksins byggist á sjósókn og vinnslu sjávarafurða. Ef aflamagnið rýrnar, þá minnkar öll atvinna á þessu svæði, og þá er sú hætta yfirvofandi, að fólkið missi trúna á, að lífvænlegt sé að búa á Vestfjörðum. slíkt má aldrei verða, því að á Vestfjörðum er dugmikil sjómannastétt, sem sækir á góð en erfið fiskimið, og í landi er þróttmikið fólk, sem vinnur að því að gera sjávaraflann verðmætari. Vestfirðingar hafa alltaf lagt sinn ríflega skerf í þjóðarbú íslendinga.
Í Alþingiskosningunum, sem fram eiga að fara í sumar, verður tekizt á um stefnuna í efnahagsmálum þjóðarinnar, um það, hvort gamla og úrelta viðreisnarstefnan á enn að vera hér ráðandi eða hvort upp verður tekin ný stefna, sem er í samræmi við hagsmuni alls vinnandi fólks í landinu, stefna, sem gæti komið í veg fyrir sífellda árekstra á vinnumarkaðinum, stefna, sem miðaði að því að styrkja íslenzkt atvinnulíf. Í kosningunum í sumar verður einnig tekizt á um stefnuna í landhelgismálinu. Spurningin mikla er þessi: Verður hið nýja Alþingi skipað þeim mönnum að meiri hl., sem hafa dug og þor til þess að færa út landhelgina, til að tryggja íslendingum þann yfirráðarétt yfir fiskimiðunum við landið, sem þeim ber og er þeim lífsnauðsynlegur.
Stefna okkar Alþb.-manna er skýr. Við berjumst fyrir ákvörðun um stækkun fiskveiðilandhelginnar í a.m.k. 50 mílur strax. Alþb. er áhrifamesti flokkurinn í íslenzkri verkalýðshreyfingu. Ný stefna í efnahagsmálum þjóðarinnar, sem nýtur stuðnings verkalýðshreyfingarinnar í landinu, er nauðsynleg. Allir þeir, sem vilja vinna að djarflegri sókn Íslendinga í landhelgismálinu og að því, að hér verði tekin upp ný framfarastefna í efnahagsmálum, ættu því í komandi kosningum að vinna að öflugum sigri Alþb. —- Góða nótt.