15.10.1970
Sameinað þing: 3. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2065 í B-deild Alþingistíðinda. (2229)

Tilkynning frá ríkisstjórninni

Forsrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég átel það ekkert út af fyrir sig, að þessi ályktun Alþýðusambandsins sé birt. Það, sem mér mislíkaði, var það, að það var farið að ræða hana hér efnislega og túlka hana af forustumanni Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, eins og ég vék að í minni ræðu. Annars skal ég ekki hafa fleiri orð um það.