26.10.1970
Neðri deild: 5. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2092 í B-deild Alþingistíðinda. (2239)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Jónas Árnason:

Herra forseti. Ég hef heitið því að verða ekki langorður eða tefja fundinn með þessu máli um of, en ég vildi aðeins í fyrsta lagi þakka hæstv. menntmrh. fyrir undirtektir hans hér áðan og það fyrirheit, sem hann gefur um það að beita sér fyrir þessu máli.

Út af því, sem hv. 4. þm. Vesturl. sagði, vil ég benda á það, að í reglugerð um fiskveiðilandhelgi Íslands frá 1958 segir í 5. gr.:

„Nú telur sjútvmrn., að um ofveiði verði að ræða, og getur það þá takmarkað fjölda veiðiskipa og hámarksafla hvers einstaks skips“. Leyfi til þess að takmarka fjölda veiðiskipa nær auðvitað það langt, að það er hægt að stöðva veiðarnar með öllu. Þess vegna sé ég nú ekki ástæðu til að fara alla leið aftur til 1888 til að leita heimilda, en ef þau lög geta líka komið að gagni til að stöðva þessar veiðar, þá er það frekar fagnaðarefni heldur en hitt, að það sé sem víðast hægt að fá rökstuðning fyrir því.

Það var talað um það, að Fiskifélagið þyrfti að skila umsögn sem ráðunautur í þessu sambandi. Ég vil þá upplýsa það hér, að mér er kunnugt um það, að þegar hreppsnefnd Stykkishólms sendi till. þá, sem ég gat um áðan og samþ. var 23. sept., þá fylgdi þessari tillögu til Fiskifélagsins, rn. og annarra aðila, sem hafa með mál þessi að gera, rækileg grg. um málið, og þetta mun hafa verið fljótlega eftir 23. sept., svo að líklega er mánuður, síðan þessi grg. barst Fiskifélaginu og öðrum viðkomandi aðilum, svo að þeir ættu að vera búnir að mynda sér einhverjar skoðanir, og þess vegna er sjálfsagt að reka á eftir áliti þeirra, þannig að engin slík formsatriði geti þá hindrað ráðh. í því að framfylgja þessu ákvæði, sem ég las upp hér áðan.