09.11.1970
Efri deild: 13. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2093 í B-deild Alþingistíðinda. (2240)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Jón Árnason:
Herra forseti. Á aðalfundi Landssambands ísl. útvegsmanna, sem haldinn var í Vestmannaeyjum dagana 4.–8. þessa mánaðar, kom til umræðu og ályktunar hið alvarlega mál, sem nú er talið, að eigi sér stað við Ísafjarðardjúp og e.t.v. víðar á Vestfjörðum í sambandi við rækjuveiðarnar. Það er hömlulaus rányrkja með gegndarlausu drápi ýsu- og þorskseiða. Á þessum aðalfundi útvegsmanna voru mættir fulltrúar víðs vegar að af landinu, bæði skipstjórar og útgerðarmenn. Það fór ekki fram hjá þeim, sem þennan fund sátu, að mál þetta var litið mjög alvarlegum augum og því samþykkti fundurinn að senda svofellt hraðsímskeyti til forstöðumanns Hafrannsóknastofnunarinnar, með leyfi hæstv. forseta:
„Aðalfundur LÍÚ krefst þess, að tafarlaust verði gripið til róttækra aðgerða vegna gegndarlauss dráps á þorsk- og ýsuseiðum í Ísafjarðardjúpi.“
Samkv. þeim upplýsingum, sem fulltrúar á Vestfjörðum skýrðu frá á fundinum, er hér um að ræða, að allt að 40% af afla rækjubátanna hafi verið þorsk- og ýsuseiði. Til þess að gera sér örlitla grein fyrir, hve hér er um stórt og alvarlegt mál að ræða, má geta þess, að í ár hafa alls 58 bátar fengið leyfi til rækjuveiða í Ísafjarðardjúpi, sem er stærsti floti, sem þessar veiðar hefur stundað nokkru sinni fyrr í Ísafjarðardjúpi, en þegar hafa 40 þessara báta hafið veiðarnar. Reiknað er með, að þessi bátafloti muni afla um 4000 tonn af rækju á vertíðinni. Færi nú svo, að þessi hlutföll yrðu í aflanum, sem nú eru talin vera fyrir hendi, þ.e. að 40% séu ýsu- og þorskseiði, og veiðarnar látnar halda áfram afskiptalaust, mætti gera ráð fyrir, að seiðamagnið mundi nema yfir 2500 smálestum. Nú er það hins vegar svo, að um þetta verður ekkert fullyrt á þessu stigi málsins. Það veit enginn í dag, hve lengi vertíðar þessi hlutföll munu haldast í veiðunum. Það getur hvort tveggja átt sér stað, að seiðamagnið minnki, og einnig getur svo farið, að það aukist. En allt fyrir það er málið í augnablikinu það alvarlegt, að róttækra aðgerða er þörf og það þegar í stað. Fyrir því vil ég að lokum beina orðum mínum til hæstv. sjútvrh. og spyrjast fyrir um það í fyrsta lagi: Hafa nokkrar ákveðnar ráðstafanir verið gerðar til þess að stöðva nú þegar þessa umræddu rányrkju? Og ef svo er ekki, er þess þá ekki að vænta, að nú þegar verði gerðar þær ráðstafanir af hálfu þess opinbera, sem hér megi að gagni koma og forða frá dyrum þeim voða, sem hér blasir við?