14.12.1970
Neðri deild: 30. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2102 í B-deild Alþingistíðinda. (2250)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Birgir Kjaran:

Herra forseti. Aðeins örfá orð út af þeim ummælum, sem hv. 2. þm. Vestf. mælti hér í sambandi við flugsamgöngur við sinn landsfjórðung. Það er vitað mál, að það er ákaflega erfitt að halda uppi innanlandsflugi á Íslandi. Dreifbýlið er það mikið og aðstæður svo erfiðar, að það hefur verið þannig að undanförnu, að innanlandsflugið hefur jafnan verið rekið með verulegum halla. Á s.l. ári mun sá halli hafa numið hjá Flugfélaginu hátt á 6. millj. kr. Engu að síður hefur Flugfélag Íslands talið það skyldu sína við þjóðina alla að reyna að halda þessum samgöngum í sem beztu horfi. Vandkvæði eru þó mikil á þessu og einkum og sér í lagi í svartasta skammdeginu og þegar dimmviðri er, sökum þess að flugvellirnir eru mjög margir, ef ekki flestir, illa lýstir og öryggis þarf þó fyrst og fremst að gæta í fluginu. Þessari stefnu hefur Flugfélag Íslands reynt að fylgja eftir getu og mætti.

Varðandi flugsamgöngur frá síðustu vikum og þetta einstaka tilfelli, sem nefnt var í gær, vildi ég þetta sagt hafa. Þar eð ótíð hefur verið með afbrigðum mikil víðast um land, hefur ekki verið hægt að halda uppi þeim flugsamgöngum, sem ráðgerðar eru á hverjum tíma. Þetta hefur valdið því, að safnazt hafa fyrir bæði flutningar og fólk, sem beðið hefur ferða. Þá hefur það og komið til sögunnar, að farkostur Flugfélagsins hefur svo sem kunnugt er orðið fyrir áfalli, ekki fyrir alllöngu síðan. Allt hefur þetta stuðlað að því, að þó að einn dagur kæmi, sem flugfært væri um landið, hefur ekki verið hægt að sinna nema mjög takmörkuðum verkefnum.

Í gær var það þannig, að Fokkerflugvélin, sem við höfum til ráðstöfunar, fór eina ferð til Ísafjarðar og aðra til Vestmannaeyja. Öðru gat hún ekki annað eins og veðri og birtu var háttað. Tilætlunin var hins vegar að reyna að gera Ísfirðingum einhverja frekari úrlausn með því að senda þangað Dakotavél, sem var norður á Akureyri, en það kom í ljós, að flugmenn óttuðust, að um einhverja bilun gæti þar verið að ræða og var því ekki að órannsökuðu máli talið þorandi öryggis vegna að senda þessa vél. Þessar eru ástæðurnar fyrir því, hvernig til tókst í gær. En vitaskuld verður það ábyggilega lengi svo, að erfitt verður að halda uppi á Íslandi mjög reglulegu innanlandsflugi í svartasta skammdegi, meðan ekki hefur verið ráðin stórbót bæði á flugvöllum og einkum og sér í lagi á lýsingu þeirra. Flugfélagið mun fagna því, ef meiri fjármunir verða frá Alþ. lagðir í þessar framkvæmdir, og sjálft hefur það í undirbúningi ýmsar aðgerðir til þess að auka sinn flugvélakost, eftir því sem efni standa til, og vonlaus er ég ekki um, að einhver úrbót fáist, en þó er þetta ekki eins auðvelt verk og margur hyggur, því að t.d. Fokkervélarnar, sem taldar eru sérstaklega heppilegar fyrir innanlandsflug á Íslandi, eru nú svo eftirsóttar, að þær fást ekki afgreiddar nema með afgreiðslutíma, sem nemur hátt á annað ár. Fjárreiður Flugfélagsins hafa því miður ekki verið með þeim hætti, að það hafi getað ráðizt í stórátök. Þó hafa þeir hlutir mjög færzt til betra horfs, þannig að Flugfélagið hefur getað staðið í skilum við ríkisábyrgðasjóð, og Flugfélagið hefur í athugun öflun nýrra tækja, ef kostur verður á, t.d. þotu í viðbót, og vissulega þyrfti það einnig að eignast nýjan Fokker.

Ég skil vel, að það komi illa við fólk í dreifbýlinu, ekki sízt núna rétt fyrir jólin, þegar mikið er um sendingar og margir þurfa að ferðast milli staða, ef ekki er hægt að halda uppi nægilegu flugi. En þessi eru okkar rök. Þetta er ekki viljaverk, þetta er hlutur, sem við ekki fengum ráðið við, og ég vona, að þingheimur skilji það.