14.12.1970
Neðri deild: 30. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2109 í B-deild Alþingistíðinda. (2256)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég þakka hæstv. samgmrh. fyrir ágætar undirtektir við það mál, sem ég hreyfði hér í upphafi, og ég treysti því, að hann geri sitt til þess að kippa þessum málum í liðinn, þannig að vel megi við una. Efnislega ætla ég ekki að fara að ræða þetta, enda ekki tími til þess, en ég vil aðeins út af því, sem hv. 5. þm. Reykv. sagði, út af Flugfélagi Íslands endurtaka það, að ég var ekki að ásaka Flugfélag Íslands fyrir að fljúga ekki, þegar ekki er hægt að fljúga, ekki er veður til þess að halda uppi flugferðum. Ásakanir mínar á hendur Flugfélaginu voru þær að hugsa ekki fyrir nægilegum flugflota til þess að halda uppi auglýstu áætlunarflugi. Það hefur Flugfélagið ekki gert og það kom ekki fram í hans skýringum, að það væri neitt á leiðinni að gera það. Flugfélagið missti eina vél og tók aðra úr innanlandsfluginu í stað þeirrar, sem það missti, og það er ekki vitað til, að það hafi verið neitt gert til þess að halda þessu uppi.
Ég segi fyrir mitt leyti, ég vil sem þm. stuðla að því, að ríkissjóður greiði á allan hátt fyrir Flugfélagi Íslands vegna kaupa á vél eða leigu á vél. Flugfélagið er alls góðs maklegt í þeim efnum. En við erum að hugsa um það, að þessari þjónustu verður að halda uppi. Flugfélagið hefur gert það á margan hátt vel, en núna að undanförnu hefur þetta komið fyrir, sem hefur verið gert hér að umræðuefni.
Að lokum vil ég einnig geta þess í sambandi við vöruflutningana út á land frá stærri skipafélögum, sem flytja vöruna til landsins, og út af orðum samgmrh., að mér er það ljóst, að hér er um einkafyrirtæki að ræða. En þjóðfélagið hefur nú oft hlaupið undir bagga fyrir þessi fyrirtæki á ýmsan veg og greitt fyrir þeim. Þjóðfélagið hefur líka og verðlagsyfirvöldin í hendi sér að samþykkja taxta fyrir þessi félög, og þessir taxtar, sem áður giltu, voru settir á þeim forsendum, að þessi félög önnuðust framhaldsflutninga á vörum út um land. Það hygg ég, að ríkisstj. ætti að taka til vandlegrar og alvarlegrar íhugunar, ef ekki fæst neitt jákvætt svar frá þessum aðilum hvað þetta snertir.