25.01.1971
Sameinað þing: 21. fundur, 91. löggjafarþing.
Sjá dálk 2110 í B-deild Alþingistíðinda. (2259)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Ég skal nú ekki taka upp neinar deilur við hæstv. forsrh. um það, hversu nauðsynlegt það muni hafa verið, að umrædd löggjöf var sett árið 1968. Það er málefni út af fyrir sig. Sú deila, sem nú er háð, er að verulegu leyti bundin við þá lagasetningu, sem hér er um að ræða. Ég vitna til þess, að við í þingflokki Alþb. fengum bréf frá samtökum þeirra aðila, sem nú standa í verkfalli, og ég ætla, að aðrir þingflokkar hafi fengið sams konar bréf, þar sem beinlínis var farið fram á það — það var áður en til verkfallsins kom — að þessum lögum yrði breytt, svo að grundvöllur gæti skapazt til eðlilegra samninga um þessi mál. Og eins og ég sagði áður, það, sem skiptir hér aðalmáli, eru þær kringumstæður, sem eru nú, hvort það er réttmætt að halda ákvæðum þessara laga eins og nú er komið. En hitt getur svo áfram verið deilumál aðila á milli, hvort það hafi verið rétt að setja þessi lög á sínum tíma. En aðalatriðið er auðvitað það að gera sér grein fyrir því, um hvað er deilt í dag og hvernig er hægt að leysa það. Ég vænti þess, að hæstv. forsrh. kynni sér það sérstaklega, hvort hér er ekki rétt með farið af minni hálfu, að það séu fyrst og fremst ákvæði þessara laga, sem deilunni valda.